Úrvalsdeildin
28.8.2010
ManUtd 3 - West Ham 0

Manchester United svöruðu fyrir sig eftir jafnteflisleikinn gegn Fulham um síðustu helgi. Leikmenn liðsins virtust einbeittir og staðráðnir í að bæta upp fyrir mistökin í þeim leik, þá sérstaklega Nani sem átti góðan dag gegn West Ham.
United stjórnuðu fyrri hálfleiknum algjörlega en tókst þó ekki að brjóta ísinn fyrr en á 33. mínútu. Ryan Giggs lék á Jonathan Spector innan vítateigs sem brást við með því að brjóta á gamla reynsluboltanum. Vítaspyrna dæmd og Wayne Rooney fór á punktinn. Robert Green í markinu veðjaði á vitlaust horn í spyrnunni og skoraði Rooney örugglega, hans fyrsta mark síðan gegn Bayern Munchen í meistaradeildinni á síðasta tímabili.
Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir United en það tók þá ekki langan tíma að tvöfalda forskotið í seinni hálfleik því á 50. mínútu átti Nani flottan sprett upp völlinn, lék á þrjá leikmenn West Ham og þrumaði svo boltanum í netið. Glæsilega gert hjá Nani.
Þriðja markið kom svo tæpum tuttugu mínútum síðar og var einnig mjög fallegt. Nani sendi knöttinn inn í teiginn þar sem Berbatov var mættur og klippti boltann á lofti af stuttu færi, óverjandi fyrir Robert Green í markinu. Berbatov fagnaði markinu með því að rífa sig úr treyjunni og sýna skilaboð sem voru skrifuð á bol sem hann var í innan undir. Skilaboðin voru á búlgörsku en þýðast á íslensku sem „Fyrir þig, faðir."
Nú fer í hönd landsleikjahlé og næsti leikur United í deildinni er ekki fyrr en 12. september gegn Everton á Goodison Park.
- Daði Már


















Beckham