Beint á leiðarkerfi vefsins

Úrvalsdeildin

22.8.2010

Fulham 2 - ManUtd 2

United gerði jafntefli við Fulham í fjörugum leik þar sem United fékk meðal annars vítaspyrnu, sem hefði átt að gera út um leikinn, en annað kom á daginn.  Fulham reyndust United erfiðir eins og á síðustu leiktíð.

 

Enn og aftur ætlar Craven Cottage að reynast Manchester United erfitt vígi. United pressuðu heimamenn í Fulham snemma leiks og þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta markinu. Það var auðvitað reynsluboltinn Paul Scholes sem skoraði gott mark utan af velli með föstu skoti á 11. mínútu. Scholes hefur nú skorað 150 mörk fyrir félagið.

United náðu hinsvegar ekki að fylgja forskotinu eftir og hleyptu heimamönnum aftur inn í leikinn. Edwin van der Sar þurfti meðal annars að taka á honum stóra sínum í nokkur skipti í fyrri hálfleik. Fulham gáfust ekki upp, komu sterkir inn í seinni hálfleik og náðu að jafna á 57. mínútu með marki frá Simon Davies.

United komust hinsvegar aftur yfir með sjálfsmarki frá varnarmanninum Brede Hangeland á 84. mínútu. Misheppnuð tilraun hans til að hreinsa frá marki eftir hornspyrnu United leiddi til sjálfsmarksins sem var fremur klaufalegt.

Varamaðurinn Nani fékk svo gullið tækifæri til að klára leikinn þegar United fengu vítaspyrnu eftir að Damien Duff hafði handleikið knöttinn innan vítateigs. Nani tók spyrnuna en lét Stockdale í markinu verja frá sér. Þetta átti eftir að reynast mjög dýrkeypt þar sem Brede Hangeland tókst að bæta upp fyrir sjálfsmarkið og jafna metin fyrir Fulham á 89. mínútu með skallamarki eftir hornspyrnu.

Virkilega svekkjandi og klaufalegt jafntefli því staðreynd. Sir Alex Ferguson var ekki par ánægður með að klúðra tækifærinu að tryggja öll stigin þrjú í stöðunni 2-1 fyrir United en sagði þó að Fulham menn hefðu átt stigið skilið miðað við spilamennsku þeirra í seinni hálfleik.

„Þegar allt kemur til alls þá áttu þeir líklega stigið skilið þar sem þeir spiluðu mjög vel í seinni hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var okkar eign. Markvörðurinn þeirra varði nokkrum sinnum vel þegar við hefðum getað komið okkur í þægilega stöðu. En í seinni hálfleik skiptu þeir um gír og spiluðu betur en við, ég verð að gefa þeim það - þeir áttu stigið skilið." sagði Ferguson og var jafnframt hissa á að Ryan Giggs hefði ekki tekið vítið sem Nani klúðraði.

„Við fengum tækifæri til að klára leikinn með vítaspyrnu þegar örfáar mínútur voru eftir. Ef þú skorar þá eru stigin komin í hús. En hæðin á boltanum er mikilvæg í vítaspyrnum og spyrnan var í slæmri hæð. Mér fannst að Ryan Giggs hefði átt að taka vítið. Þegar við lékum gegn Tottenham síðast þá skoraði hann úr tveimur vítaspyrnum í sama leiknum og Nani var á vellinum þá. Þú vilt ekki vera að gefa frá þér stig á kjánalegan hátt - við misstum klaufaleg stig hér í dag. Við gripum ekki tækifærið." sagði Ferguson að lokum.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

united

24.8.2010 14:19
eftir svona frammistöðu er ekki hægt að kenna nani um. vissulega átti giggs að taka vítið en það var nú bara hræðinleg frammistaða liðsins sem kostaði okkur þessi stig. Og mér fannst spilid mun betra og hradara eftir að nani kom inná og liðið mun líklegra að skora eftir það. Einnig þegar giggs kom því mér fannst valencia og park gjörsamlega vonlausir í þessum leik og hernandez átti kannski ekki hræðinlegann leik en hann gerði ekki shit! og berbatov ætti líka að spila aðeins neðar á vellinum svo hann geti hlaðað inn stungusendingum á hernandez því hann og ekki heldur scholes þessir frábæri leikmenn voru ekki að nýta sér hlaupin hans hernandez . hann tók FULLT af hlaupum en fékk enga sendingu hann fekk bara sendingu þegar hann kom djúpt til að ná í boltann og líka með þessa rosa vörn oshea-vidic-evans-evra sem að mínu mati er bara besta vörnin i man utd liðinu i augnablikinu því ferdinand átti hreinlega lélegt síðasta tímabil og er meiddur
2

united

24.8.2010 14:22
nei herðu svo finn ég einmitt quote sem sir alex sagði haha ... "I think we've still got to utilise Hernandez's pace a bit better. I think there were moments when we could have threaded a pass through but took the option of passing it wide. We just have to get used to that part of his game, but he did fine." þetta er einmitt málið
3

sss

24.8.2010 18:47
Það sem er að er það sama og var að síðasta vetur, miðja sem stjórnar ekki neitt nema í 20 mín, þeyr sem eru frammi til að skora fá ekki úr neinu að moða, vörnin var líka léleg ,vann varla bolta í föstum leikaðferðum því miður.
4

yup

24.8.2010 19:18
algjörlega sammála sss, vantar alvöru miðjumann, vegna þess að því miður er Scholes ekki eilífur. Svo er O'Shea varla gæðaleikmaður
5

united

24.8.2010 19:49
nei en hann er besti hægri bakvörður í united og ætti að höndla pressuna frá fulham
6

rara

24.8.2010 20:03
ég myndi nú telja rafael mun hraðari og betri bakvörður en o'shea hann þarf bara smá upp á leikreynsluna
7

Dolli

24.8.2010 20:24
Staðreyndin er sú, að það má telja á fingrum annara handar þá leikmenn sem voru að vinna fyrir sínum himinháu launum á sunnudaginn.Fýldur
8

Rúnar

25.8.2010 07:49
Voðalega ætlar þessi völlur að reynast okkur erfiður. þetta er í fyrsta skifti á þrem leiktíðum sem við fáum stig á cravern cottage. við áttum að vera búnir að ganga frá þessum leik í fyrrihálfleik, hefðu men verð aðeins meira vakandi fyrir spili og stungusendingum hefðu við verið 2-3 mörkum yfir í hálfleik
9

Ibbi

26.8.2010 23:09
Við erum nú með besta miðjumann í heimi! Darren Fletcher!
10

Ingvi

26.8.2010 23:10
Að minnsta kosti mikilvægasta

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista

Old Trafford

MUFC bolur