Úrvalsdeildin
16.8.2010
ManUtd 3 - Newcastle 0

Manchester United byrjaði tímabilið með öruggum heimasigri á Newcastle á Old Trafford í kvöld. Dimitar Berbatov, Darren Fletcher og Ryan Giggs skoruðu mörkin og var sigurinn aldrei í hættu.
Ferguson stillti þeim Scholes og Fletcher upp á miðjunni og stjórnuðu þeir algjörlega miðjuspilinu í leiknum. Nemanja Vidic var fyrirliði liðsins í dag og Wayne Rooney byrjaði í framlínunni þrátt fyrir orðróm fyrir leik að hann væri lítillega meiddur.
Fyrsta hálftímann í fyrri hálfleik var ekki mikið um færi en United voru meira með boltann. Það dró svo til tíðinda á 33. mínútu þegar Scholes sendi knöttinn á Dimitar Berbatov í teignum sem skaut hnitmiðuðu skoti í fjærhornið framhjá Steve Harper í markinu.
Nani og Valencia voru líflegir á köntunum og komust oft í góðar stöður en oft vantaði eilítið upp á síðustu sendinguna inn í teiginn. Á 41. mínútu dró hinsvegar aftur til tíðinda þegar Nani sendi knöttinn á Evra sem tók hlaupið inn í teiginn. Evra sendi fastan bolta fyrir markið þar sem Rooney náði að koma boltanum á Fletcher sem setti knöttinn í netið af stuttu færi.
Staðan var því 2-0 í leikhléi. Í seinni hálfleik hélt sóknarleikur United áfram en leikmenn Newcastle reyndu að beita tilviljanakenndum skyndisóknum með litlum árangri. Berbatov fékk tvö frábær færi til að skora í seinni hálfleik en hafði ekki heppnina með sér. Scholes var að spila glimrandi vel rétt eins og gegn Chelsea í góðgerðarskildinum og átti meðal annars nokkur vel valin hlaup inn í teiginn eins og hann gerði svo oft þegar hann var yngri.
United vildu greinilega skora fleiri mörk til að halda í við markatölu Chelsea sem settu sex mörk á nýliða WBA síðastliðinn laugardag. Chicharito kom inn á sem varamaður fyrir Rooney þegar hálftími var eftir af leiknum og var honum vel tekið af áhorfendum sem greinilega kunna vel að meta Mexíkóann.
Þegar fimm mínútur voru til leiksloka átti Scholes sendingu á félaga sinn Ryan Giggs sem hafði komið inn á sem varamaður. Giggs var ekkert að tvínóna við hlutina, tók boltann viðstöðulaust á lofti og setti knöttinn snyrtilega í fjærhornið. Virkilega vel gert hjá þessum reyndu leikmönnum sem hafa verið andlit Manchester United liðsins í fjöldamörg ár.
Flottur sannfærandi sigur í fyrsta deildarleiknum á nýju tímabili því staðreynd. Myndband af mörkunum úr leiknum má finna hér á forsíðunni. Næsti leikur United er svo gegn Fulham á Craven Cottage næstkomandi sunnudag, 22. ágúst.
Áhorfendur: 75.221
Dómari: Chris Foy
Byrjunarlið United: Van der Sar; O‘Shea, Evans, Vidic, Evra (Rafael); Valencia, Scholes, Fletcher, Nani (Giggs); Rooney (Chicharito), Berbatov
- Daði Már
Athugasemdir »
Beckham
MR.Jones
Dolli
Friðrik
MR Benz
Helv.Djofs. Andsk.Helv... Helv. Fokking Fokk...
http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=95942
12.4 milj Punda. Thetta er algjor brandara. Svo eru menn ad tala umhversu "klokur" Fergusoon er a markadinum. Hann borgadi 32.fyrir Berba, 30. fyrir Rio, 28. fyrir Veron, taepar 30 fyrir Rooney, 18. fyrir Anderson og hvad 16.fyrir aumningjann hann Saha, 10.milj fyrir Hernandes og svona ma lengi telja. En hann vildi ekki yfirbjoda real og borga 14. fyrir Ozil. Djofs helv. faviti. Kann ekkert ad fara med peninga klubbsins greinilega. Borgar yfir 7.milj fyrir einhvern gotu strak fra Portugal sem enginn hefur sed spila fotbolta i alvoru fotboltaleik. Thetta er algjort hneyksli og asnaskapur, mikid djof verdur madur reidur thegar svona dauda faeri a markadinum er ekki nytt. Helv. thrjoskan alltaf i thessum djofs gamla kall pungi.
Friðgeir
Özil fer frítt eftir þetta season til Real Madrid.... Mundu... Solskjær var bara einhver gaur frá Noregi...
Ronaldo var bólugrafinn 18 ára strákur með hárlengingar... ekki efast um Sir Alex...
spyrjum frekar að leikslokum...


















Salli
Sælir félagar og til hamingju með sigurinn
Ég hef látið hafa eftir mér á þessari síðu að ég hafi áhyggjur af aldri okkar lykil manna eins og Scholes,Giggs og Van der Sar en jafnframt sagt að ég vonist til þess að ég hafi rangt fyrir mér ! Já, það voru svo sannarlega engin þreytu merki á Scholes og Van der Sar í þessum leik, síður en svo ! og ekki spillti fyrir að fá Giggs inná til þess að skora tuttugasta árið í röð..algjör snillingur ! og það hlítur að styttast í Sir Ryan Giggs, það á engin annar leikmaður á Englandi meira skilið þessa nafnbót nema þá kannski Scholes 
Einu áhyggjurnar sem ég hef eftir þennan leik er markaskorunin og er ég sammála Ferguson sem segir á Berbatov hefði getað skorað 3-4 mörk, hann lendir varla á móti lélegri vörn á þessu tímabili !