Úrvalsdeildin
31.7.2010
Airtricity League XI 1 - ManUtd 7

Manchester United mætti Airtricity League XI, úrvalsliði írsku deildarinnar, í kvöld (4. ágúst) í Dublin. Leikar enduðu með öruggum 7-1 sigri United og sáu Park, Owen, Chicharito, Valencia, Evans og Nani um markaskorunina.
Leikið var á nýjum glæsilegum £350 milljón punda knattspyrnuvelli í Dublin, Aviva Stadium, og var að sjálfsögðu uppselt á leikinn enda eiga United mikið af aðdáendum á Írlandi. Park, Carrick, Rooney og Vidic komu inn í liðshópinn eftir hafa fengið lengra frí eftir HM. Michael Owen og Antonio Valencia spiluðu einnig en þeir hafa verið að glíma við meiðsli að undanförnu.
Fyrsta mark leiksins kom strax á 13. mínútu eftir mistök í vörn Airtricity. Varnarmaður þeirra var of lengi að hreinsa frá marki í sínum eigin vítateig og var undir pressu frá Ji-Sung Park sem tókst að komast í boltann og þaðan fór hann í netið.
Rooney klúðraði fínu dauðafæri á 23. mínútu. Michael Owen kom United hinsvegar í 2-0 með glæsilegri vippu yfir markmanninn stuttu seinna. Owen fékk sendingu inn á teiginn, tók boltann með sér og náði að koma knettinum yfir markmanninn þrátt fyrir að vera undir pressu frá tveimur varnarmönnum. Vel afgreitt hjá Owen og gaman að sjá hann aftur eftir meiðslin.
Carrick neyddist til að fara af velli í fyrri hálfleik vegna meiðsla en í hans stað kom Darren Fletcher. Í seinni hálfleik gerði Ferguson nokkrar breytingar á liði sínu og þeir Chicharito, Berbatov, Nani og Amos komu allir inn á sem varamenn í leiknum.
Strax í upphafi seinni hálfleiks var staðan orðin 3-0. Chicharito skoraði með sinni fyrstu snertingu í leiknum eftir lága fyrirgjöf inn á teiginn frá Antonio Valencia á hægri vængnum, en sá síðarnefndi var valinn maður leiksins.
Á 60. mínútu fékk Valencia sendingu inn fyrir vörnina á hægri vængnum og setti knöttinn í netið með vinstri fæti eftir að hafa leikið varnarmenn Airtricity grátt.
Eftir þetta virtust flóðgáttirnar opnast. Á 63. mínútu skoraði Park sitt annað mark í leiknum með laglegu skoti sem hann smurði upp í fjærhornið. Örfáum mínútum síðar var svo staðan orðin 6-0 eftir að Jonny Evans skallaði knöttinn í netið eftir hornspyrnu.
Airtricity tókst að klóra örlítið í bakkann á 78. mínútu þegar Dave Mulcahy skoraði framhjá Ben Amos í markinu eftir ágæta skyndisókn frá írska liðinu.
En United voru ekki hættir. Á 82. mínútu krækti Javier „Chicharito" Hernandez í vítaspyrnu eftir að hafa verið á góðri leið með að komast framhjá varnarmanni inn í vítateignum. Nani tók spyrnuna og skoraði af miklu öryggi.
Fleiri urðu mörkin ekki en næsti leikur United er þann 8. ágúst gegn Chelsea í Samfélagsskildinum.
Áhorfendur: 49.861
Maður leiksins: Antonio Valencia
Byrjunarlið United: Kuszczak (Amos 64); Evans, Smalling, Vidic, O'Shea; Valencia, Carrick (Fletcher 37), Gibson, Park (Nani 64); Rooney (Hernandez 45), Owen (Berbatov 45)
- Daði Már
Athugasemdir »
Óskar
united
mmm
,,,
Sjugandi hestur
Árni Þórður
Smirjaldur
united
united
Nani fan
Smirjaldur
hernandez
siggi
Smirjaldur er annaðhvort lesblindur og fullur, eða alger vanviti. Hver skrifar svona nema að vera alvarlega greindarskertur?
Nema hann sé svona andskoti gott tröll. Aðstandendur þessarar síðu ættu að hætta að vera með númeraðan öryggiskóða, og vera heldur með ruslpóstvörn á borð við: hver er summan af 2 og 3? Þá myndu margir þessara þrolla sem hér skrifa neyðast til að fara á liverpool spjallið til hinna mongóanna.
Smirjaldur
Heyrðu sigg ekki vera reiður utaf því að ég veit að þú svast hjá magga, og hvað ert þú svo að gera inna man utd spjallbordinu?


















mmm