Úrvalsdeildin
29.7.2010
MLS All Stars 2 - ManUtd 5

Manchester United spilaði við úrvalslið MLS deildarinnar í gærkvöldi. Leikurinn var hin mesta skemmtun og endaði með 5-2 sigri United þar sem nýjasti liðsmaður félagsins, Javier „Chicharito" Hernandez, skoraði laglegt mark eftir að hafa komið inn á sem varamaður í seinni hálfleik.
Leikurinn fór fram á Reliant Stadium í Houston og var enn eitt áhorfendametið slegið í æfingaferðinni hjá United. Fyrir leikinn fór fram glæsileg setningarathöfn sem innihélt meðal annars 200 klappstýrur, flugelda, þjóðsöngva og fleira. Ameríkanarnir eiga svo sannarlega hrós skilið fyrir umgjörðina í kringum leikinn.
United byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru greinilega staðráðnir í að bæta upp fyrir tapið gegn Kansas City Wizards í síðasta leik. Federico Macheda skoraði eftir einungis 25 sekúndur eftir slæm mistök í vörn MLS liðsins. Macheda var fljótur að átta sig, stal boltanum af varnarmanni eftir að sá sami fékk slaka sendingu til baka og kláraði færið örugglega.
Macheda var aftur á ferðinni á 13. mínútu þegar hann skoraði sitt annað mark í leiknum. Það kom eftir hornspyrnu þar sem Ítalinn ungi var einn og óvaldaður í teignum og skallaði knöttinn örugglega í netið, óverjandi fyrir markmanninn.
Obertan neyddist til að fara af velli um miðjan fyrri hálfleik vegna meiðsla. Tom Cleverley kom í hans stað og átti eftir að láta til sín taka seinna í leiknum.
MLS All-Stars voru hættulegir í föstum leikatriðum og tókst að minnka muninn í 2-1 á 64. mínútu. Ferreira átti þá fína aukaspyrnu inn á teiginn sem Ching skallaði í netið. Stuttu áður hafði Mexíkóinn Javier Hernandez komið inn á sem varamaður fyrir United og fékk að launum mikil fagnaðarlæti frá áhorfendum, en stór hluti Houston borgar er einmitt af rómönskum uppruna.
Örfáum mínútum eftir að Hernandez kom inn á var hann búinn að koma sér í fínt færi. Á 67. mínútu átti hægri bakvörðurinn Rafael laglega sendingu fyrir markið þar sem Hernandez náði að taka boltann niður en lét verja frá sér úr fremur þröngu færi. Engu að síður vel gert hjá stráknum sem virtist einbeittur í að komast á blað í þessum leik.
Á 71. mínútu var Hernandez kominn framhjá varnarmanni MLS og var við það að sleppa í gegnum vörnina þegar á honum var brotið. Darron Gibson gerði sér lítið fyrir og skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnunni og staðan því orðin 3-1 fyrir United.
Einungis tveimur mínútum síðar var staðan orðin 4-1 eftir mark frá miðjumanninum Tom Cleverley. Fletcher vippaði boltanum inn á teiginn þar sem Cleverley stakk sér í þröngt svæði, lék á tvo varnarmenn með því að lyfta boltanum yfir þá og kláraði svo færið mjög snyrtilega.
Nýliðinn Hernandez skoraði að lokum fimmta mark United á 85. mínútu eftir langa sendingu frá Fletcher. Hernandez stakk sér inn fyrir vörnina, tók boltann á lofti og kláraði færið með því að setja knöttinn yfir markmanninn í fjærhornið. Mjög vel gert hjá stráknum og áhorfendurnir á pöllunum gríðarlega sáttir.
MLS liðinu tókst að klóra aðeins í bakkann á 90. mínútu og minnka muninn í 5-2 undir lokin. De Rosario komst framhjá Wes Brown í vörninni sem var heldur kærulaus í sínum varnarleik og má segja að hann hafi gefið Rosario markið á silfurfati.
Í heildina mjög flottur leikur hjá United og fín skemmtun fyrir áhorfendur. Hér með er æfingaferðinni í Bandaríkjunum formlega lokið en næsti leikur United er við Mexíkóska liðið Chivas Guadalajara á föstudaginn. Javier Hernandez mun vera í aðalhlutverki í þeim leik gegn sínu gamla félagi og mun spila fyrir bæði lið í leiknum. Minna má á að allir æfingaleikir United eru sýndir í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni MUTV. Finna má dagskrá stöðvarinnar hér - uppfærist daglega.
Byrjunarlið United: Van der Sar; Rafael, Brown, J.Evans, Fabio (Scholes); Nani (Hernandez), Fletcher, O'Shea, Obertan (Cleverley); Giggs (Gibson), Macheda (Welbeck).
Áhorfendur: 70.103 - mesti fjöldi sem mætt hefur á knattspyrnuleik á Reliant Stadium í Texas.
- Daði Már
Athugasemdir »
Óskar
'
Dash
sms
United maður
sölvi

rara
http://www.youtube.com/watch?v=kwQ-RTwf018
djöfull held ég að þeir verði rosalegir:D hef alveg tröllatrú á strákunum, þeir eru alveg með'etta:)
og Dash var einhver að tala við þig!!
Haukur Henriksen
mmm
Gummi
ERU ÞIÐ EITTHVAÐ VAGEFNIR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Þetta var fáranlega flottur leikur hjá ungu strákunum, Dash þú ert snarkengbrjálæðislegailla þroskaheftur og eitthvað verulega vangefinn. Neeei það er kannski rétt hjá ykkur framtíðin er ekki björt og ungu strákarnir eiga ekki eftir að geta neitt, örugglega ekki...............uuu jú það var enginn markaskoraranna yfir 22 ára svo hefur Manchester efnilegustu bakverði í heimi da Silva bræðurna, svo Dash getur troðið kjaftinum á sér upp í sandfylltu og útriðnu tussuna á mömmu sinni >:@
united
Dash
Óskar
Messi er 23
Jón
Óskar
þú ert alveg greinilega ekki Man utd maður jón...það er ekkert til hjá Man utd sem heitir að gefast upp...vissulega er eg ekkert voðalega bjartsýnn og myndi vilja sjá eitthvert stórt nafn koma til Man utd...enn þrátt fyrir það treystir maður Ferguson alveg 150%...hann hefur sýnt það að hann hefur náð ótrúlegum árangri með leikmenn sem aðrir höfðu ekki mikla trú á !! Ferguson er nottla snillingur að kalla fram það besta i mönnum...og ég get alveg fullvissað þig um það að það er ekkert lið i heiminum sem hefur svona marga góða unga leikmenn eins og Man utd er með !
Dash
ManUtdfanatic!
Dash
Ég ætla ekki að vera með dónaskap við þig eða neitt, en það sem þú skrifaðir hérna efst er ekkert nema stór skítur af kjaftæði! Ertu að reyna að segja mér það að þú haldir EKKI með Man Utd en samt hafir þú nennt að vaka til 3 til að klára að horfa á leik með þeim? Það er bara talað um hvað Man Utd skulda .. hvað með Liverpool eða Barcelona???
Jón: Ég held að það sé of snemmt að segja að leiktíðin sé búinn áður en hún byrjar ... þú mátt skrifa þegar leiktíðin er hinsvegar búinn (sem ég efast um að þú getir gert) "Leiktíðin var búin hjá Man U áður en hún byrjaði!
Leikurinn var frábær og leikmennirnir frábærir.
oooog eitt að lokum .. Óskar er með mikið í hausnum miðað við þig!
sheringham
Tommi
Simmi13
MR Benz
Þótt andstæðingarnir hafi ekki verið þeir sterkustu í heimi þá finnst mér margir þessir strákar lofa góðu. Ég hef spáð því áður og spái því enn að Tom Cleverly eigi eftir að verða frábær leikmaður ef hann heldur áfram á sömu braut. Það er ekkert auðvelt að vera ungur leikmaður í jafn stóru liði og United er og þurfa að standast pressuna frá Ferguson, hann hikar ekki við að refsa mönnum grimmilega geri þeir afdrifarík mistök bæði innan vallar sem utan. ég er bjarsýnn á þessa stráka þótt ég sé ekki viss um að þeir séu tilbúnir akkurat núna. Eitt komment að lokum, ManUdtfantic! Skuldir Barca og Liverpool eru nánast smáræði miðað við skuldir eiganda Man.Utd. Skuldir Barca eru komna vegna þess að liðið sjálft hefur spennt bogann aðeins of mikið. Allur þessi peningur hefur farið í liðið sjálft á meðan það er ekki þannig hjá Man.Utd















Dash