Beint á leiðarkerfi vefsins

Úrvalsdeildin

26.7.2010

Kansas City 2 - ManUtd 1

Manchester United töpuðu sínum fyrsta leik í æfingaferðinni í Bandaríkjunum í gærkvöldi. United mætti Kansas City Wizards á Arrowheads vellinum í Kansas. Leikar enduðu með 2-1 sigri Bandaríkjamannanna þrátt fyrir að þeir hafi leikið manni færri í 52. mínútur.

 

Sir Alex Ferguson stillti upp mjög ungum varnarmönnum í þessum leik. Ben Amos stóð á milli stanganna og þeir Rafael, Smalling, Evans og DeLaet skipuðu varnarlínuna. Nani kom inn í byrjunarliðið en hann hefur verið frá undanfarið vegna axlarmeiðsla.

United byrjuðu rólega í þessum leik og leikmenn Kansas City ógnuðu meira til að byrja með. Á 11. mínútu komust þeir svo yfir eftir að Arnaud slapp einn í gegn og skoraði laglega framhjá Amos í markinu. Fyrsta alvöru færi United kom ekki fyrr en á 30. mínútu þegar Nani átti góðan sprett upp völlinn en skaut beint á Nielsen, markvörð Kansas City. Einungis tveimur mínútum síðar var Nani aftur nálægt því að jafna leikinn en skalli hans var glæsilega varinn af Nielsen í markinu.

Á 38. mínútu komst Berbatov einn inn fyrir vörn Kansas og var tekinn niður af varnarmanninum Conrad. Klárt víti en dómarinn rak að auki Conrad af velli með rautt spjald þar sem hann var aftasti varnarmaður. Lýsendum sjónvarpstöðvarinnar MUTV fannst það ansi harkaleg ákvörðun að gefa rautt spjald við þessar aðstæður þar sem þetta væri einungis æfingaleikur. Berbatov tók engu að síður vítaspyrnuna sjálfur og skoraði af miklu öryggi.

Á 42. mínútu tókst Kansas mönnum hinsvegar óvænt að komast aftur yfir í leiknum eftir hornspyrnu. Kamara var einn og óvaldaður á teignum og skallaði í slánna og niður. Boltinn skoppaði út úr markinu en dómarinn dæmdi svo að boltinn hefði farið yfir línuna. Ekki var sýnt nægilega vel frá atvikinu í endursýningum og því erfitt að meta hvort um mark hafi verið að ræða en tæpt var það. Dómarinn var hinsvegar ekkert á því að gefa mönnum einhvern slaka í spjöldunum þar sem hann gaf markaskoraranum gult spjald fyrir að fara úr treyjunni í fagnaðarlátunum.

Seinni hálfleikur byrjaði fjörlega og var Diouf nærri því að skora fyrir United á 46. mínútu. Um tuttugu mínútum síðar fékk hann aftur mjög gott færi eftir fínan undirbúning frá Nani og Berbatov en hitti boltann mjög illa.

Á 70. mínútu þurfti Ben Amos að taka á honum stóra sínum í markinu þegar hann varði gott skot frá Jewsbury sem stefndi upp í fjærhornið.

Síðustu fimmtán mínúturnar pressuðu United menn að marki  Bandaríkjamannanna. Obertan, Cleverley og Welbeck komu með ágætis kraft inn í sóknarleikinn eftir að þeir komu inn á sem varamenn. En allt kom fyrir ekki og leikar enduðu 2-1 fyrir Kansas City Wizards sem voru að vonum hæstánægðir með sigurinn. Engu að síður verður að teljast ansi svekkjandi að ná ekki að skora mark í seinni hálfleik gegn 10 mönnum Kansas City Wizards.

Næsti æfingaleikur United er 28. júlí við MLS All-Stars í Houston. Þar með lýkur æfingaferðinni í Bandaríkjunum en tveimur dögum síðar halda þeir svo til Mexíkó og spila við  Chivas Guadalajara.

Byrjunarlið United: Amos; Rafael, Smalling, J.Evans, De Laet (Fabio); Nani (Obertan), Scholes, Gibson (Cleverley), Giggs; Berbatov (Welbeck), Diouf (Macheda).

Áhorfendur: 52.424 - mesti áhorfandafjöldi sem mætt hefur á knattspyrnuleik í Mið-Ameríku.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

Óskar

26.7.2010 00:24
Svakalega lélegur leikur hja okkar mönnum og eiginlega ekki hægt að benda a neinn leikmann sem spilaði vel,,,reyndar kom welbeck sprækur inná og var hættulegur, hins vegar fannst mér Rafael alveg áberandi lélegasti maðurinn á vellinum, hann gat valla sent boltann
2

giggs123

26.7.2010 00:30
þettað var bara lalala leikur, en er ég sá eini hérna, sem að finnst að Paul S og Giggs ættu að hætta bara núna strax? svo er það líka stórt spurninga merki með hann Berbatöf, flott vítið hjá honum en hvað svo?
3

Giggsy

26.7.2010 09:29
rólegur giggs123... leyfðu mönnunum nú að eiga lélegt tímabil áður en þú biður þá um að hætta.. Giggs var frábær í fyrra og Scholes var mjög góður líka... Berbatov er að koma vel út úr undirbúningstímabilinu hingað til... einn lélegur leikur, so what. Þetta er undirbúningstímabilið og ekki mál gleyma því að stór hluti af liðinu inni á vellinum eru nýliðarnir/unglingarnir í liðinu.. það má alveg búast við að Utd tapi fleiri leikjum á undirbúningstímabilinu.. en það er bara allt í lagi. Þessir leikir leyfa það að tekin sé áhætta, að láta hina og þessa spila o.s.frv.
4

MR Benz

26.7.2010 10:19
Týpískur Íslendingur sem er fljótur að gleyma. Scholes var alls alls ekki góður á síðasta tímabili og hvað þá mjög góður!! Það er langur vegur frá, hann byrjaði tímabilið herfilega og átti skelfilega leiki hvað eftir annað. Reyndar vann hann á þegar á leið og hann var farinn að spila ok. Ferguson hefur greinilega tekið hann á beinið eftir skandalinn á móti Fulham þegar þeir töpuðu 3-0 og var Scholes herfilegur í þeim leik og eiginlega mikklu mikklu verri en enginn. Eftir þann leik fór hann að taka við sér en heilt á litið átti hann vont tímabil og ég skil ekki hvað er verið að halda upp á hann lengur né hvað hann er að rembast við þetta lengur, hann var herfilegur í þessum leik.
5

Eiríkur

26.7.2010 11:08
vill minna á að scholes var með nokkur lykil mörk á síðasta tímabili.... já þetta var ömurlegur leikuur en verð samt að hrósa þessum könum. en var seinna markið þeirra inni mér fannst þetta vera allveg á línunni ?
6

Drangi

26.7.2010 11:23
Var þetta ekki bara fínn leikur hjá okkur í dag,maður vinnur nú ekki alla leiki með varalðinu sínu Svalur
7

Jói

26.7.2010 13:24
Það hafa mætt fleiri á leik í Norður og Mið-Ameríku, í úrslitaleik HM 1986 í Mexíkó mættu yfir 114.000 manns og Rose Bowl þar sem útslitaleikur Hm 1994 í Bandaríkjunum tekur um 92.000 manns. En þetta var áhorfendamet á vellinum.
8

Daði

26.7.2010 14:01

Ég ætla ekki að efast um upplýsingar þínar Jói en þetta stóð á opinberri heimasíðu Kansas City Wizards og þaðan er þetta komið í fréttina hér að ofan.

"The Kansas City Wizards defeated English powerhouse Manchester United 2-1 on Sunday night at Arrowhead Stadium with 52,424 passionate soccer supporters in attendance, the largest crowd ever to witness a soccer match in Mid-America history"

9

Brandur

26.7.2010 15:50
Vantar ekki dálítið meiri sóknarþunga á miðjuna? Þá í aðalliðið líka.
10

Giggsy

26.7.2010 17:06
ég veit ekki hvaða leiki Mr Benz var að horfa á í fyrra en þeir voru greinilega ekki þeir sömu og ég. Scholes byrjaði illa.. það er satt en hann bætti sig umtalsvert þegar á leið. Og, eins og bent var á, skoraði hann nokkur lykilmörk fyrir okkur einnig. Scholes er heldur byrjaður að dala ef miðað er við Giggs, á því er enginn vafi. Hvorki hann né Giggs geta spilað hvern einasta leik en leikskilningur þeirra og sendingar ásamt reynslu reyndist mjög mikilvægur í fyrra, sérstaklega á seinni hluta tímabilsins. En ég er engu að síður þeirrar skoðunar að það þarf að finna menn í þeirra stað og það helst í fyrra! Menn sem eru farnir að eldast meiðast meira og geta minna spilað heldur en ungu strákarnir. Það vita allir. Má vel vera að Ferguson er að þjálfa upp nýja kynslóð af ungum leikmönnum en ef svo er þá megum við eflaust bíða í 2-3 ár eftir næsta Englandsmeistaratitli...

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista

Old Trafford

MUFC bolur