Beint á leiðarkerfi vefsins

Úrvalsdeildin

22.7.2010

Philadelphia Union 0 - ManUtd 1

Manchester United mætti Philadelphia Union í gærkvöldi á Financial Field vellinum í Philadelphia. United hafði betur 1-0 með sigurmarki frá Frakkanum Gabriel Obertan.

 

Gabriel Obertan nýtti tækifærið til að ganga í augun á Sir Alex Ferguson þegar ungt lið Manchester United vann sinn annan leik í röð í æfingaferðinni í Bandaríkjunum. Þessi 21 árs gamli vængmaður skoraði eina mark leiksins, hans fyrsta mark með aðalliðinu síðan hann kom til félagsins frá Bordeaux síðasta sumar.

Áhorfendafjöldi upp á 44.213 manns mætti á Financial Field leikvanginn til að fylgjast með upprennandi stjörnum Manchester United en byrjunarliðið innihélt meðal annars unglingana Federico Macheda og Danny Welbeck ásamt því að Tom Cleverley var á miðjunni með reynsluboltanum Paul Scholes.

United væru nálægt því að komast yfir strax á 3. mínútu þegar Obertan slapp í gegn eftir sendingu frá Macheda. Obertan náði snertingu á boltann en skot hans var varið af Jordan Harvey.

Hinn vinnusami Obertan var aftur á ferðinni á 8. mínútu þegar hann skaut yfir úr ágætu færi. Welbeck og Fabio áttu sinn þátt í þeirri skyndisókn, Welbeck kom með knöttinn fyrir markið á fjærstöngina þar sem Obertan skaut yfir markið þegar hann tók boltann á lofti.

Welbeck sýndi ágæt tilþrif til að skapa sér pláss á 32. mínútu en skot hans frá um 25 metra færi fór naumlega framhjá. Welbeck átti einnig gott skot að marki fimm mínútum síðar sem markvörður Philadelphia varði vel. Hraði Welbeck og hreyfingar hans voru að skapa vandræði fyrir varnarmenn bandaríska liðsins.

Í seinni hálfleik átti Macheda skot yfir markið á 58. mínútu og lið United fór að herða tökin á leiknum. Tomasz Kusczczak þurfti hinsvegar að taka á honum stóra sínum á 69. mínútu þegar hann varði aukaspyrnu frá Kyle Nakazawa.

Fjórtán mínútum síðar tókst United loks að brjóta ísinn eftir laglegt spil hjá Welbeck og Obertan. Welbeck sendi góða sendingu inn fyrir á Obertan sem gerði vel í að klára dæmið af stuttu færi.

Varamaðurinn Dimitar Berbatov var nálægt því að tvöfalda forskot United fjórum mínútum síðar en var óheppinn að sjá knöttinn fara í slánna og út aftur.

Varamaður Philadelphia, Andrew Jacobsen, hefði getað jafnað leikinn fyrir heimaliðið í lok leiks en tilraun hans fór hátt yfir markið og United menn fóru með sigur af hólmi.

Næsti leikur í æfingaferðinni er gegn Kansas City Wizards þann 25. júlí næstkomandi. Allir æfingaleikir United eru sýndir í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni MUTV.

Byrjunarlið United: Kuszczak; O'Shea (De Laet 76), Brown (Smalling 61), J.Evans, Fabio (Rafael 61); Obertan, Scholes (C.Evans 61), Cleverley (Fletcher 61), Giggs; Welbeck, Macheda (Berbatov 61)

- Daði Már

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista

Old Trafford

MUFC bolur