Úrvalsdeildin
17.7.2010
ManUtd 3 - Celtic 1
Manchester United spilaði sinn fyrsta æfingaleik á undirbúningstímabilinu í gærkvöldi gegn skoska liðinu Celtic á Rogers Center vellinum í Toronto. Leikar enduðu með 3-1 sigri United. Berbatov, Welbeck og Cleverley sáu um markaskorunina fyrir United en Georgios Samaras skoraði fyrir Celtic.
Það vantar enn marga leikmenn í liðshóp Manchester United en hópurinn er stór og því ekki vandamál að stilla upp sterku liði með blöndu af yngri og reyndari leikmönnum. Allir leikmenn United sem tóku þátt í HM í Suður-Afríku eru enn í fríi ásamt því að nokkuð er um meiðsli í herbúðum Rauðu djöflanna. Meðal annars eru Neville, Nani, Ferdinand, Valencia, Hargreaves, Anderson og Owen allir að jafna sig af meiðslum.
Manchester United byrjaði leikinn gegn Celtic af ágætis krafti og voru sterkari aðilinn í byrjun leiks. Obertan virkaði líflegur á vinstri kantinum og Paul Scholes sá um að stjórna miðjuspilinu. Á 34. mínútu tókst Berbatov að skora laglegt mark eftir fyrirgjöf frá Mame Biram Diouf. Obertan átti ágætis sprett upp miðjuna, kom boltanum á Diouf á vinstri vængnum sem sendi nokkuð erfiðan bolta fyrir markið, Berbatov tók laglega við knettinum á ferðinni og kláraði færið mjög vel. Berbatov átti eftir að koma meira við sögu í leiknum en sóknarleikur United virtist flæða nokkuð mikið í gegnum hann ofarlega á vellinum.
Í seinni hálfleik voru gerðar þó nokkrar breytingar á byrjunarliðinu eins og venjan er í æfingaleikjum. Scholes, Obertan, Rafael, Fabio, Evans, Diouf og Giggs fóru allir af velli fyrir Gibson, Welbeck, De Laet, O‘Shea, Brown, Macheda og Cleverley.
Á 61. mínútu tókst Celtic mönnum að jafna eftir að nýliðinn Chris Smalling fékk dæmda á sig ódýra vítaspyrnu eftir að hafa gripið í sóknarmann Celtic. Grikkinn Georgios Samaras tók spyrnuna og skoraði örugglega þrátt fyrir að Edwin Van der Sar hafi skutlað sér í rétt horn.
Eftir jöfnunarmarkið lifnaði aðeins yfir Celtic mönnum en á 79. mínútu náði United aftur forystunni. Dimitar Berbatov átti ágætt þríhyrningsspil við Welbeck við vítateiginn og kom boltanum að lokum fyrir markið aftur á Welbeck sem setti knöttinn í netið.
Tom Cleverley gerði svo út um leikinn þegar örfáar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Aftur var Berbatov viðriðinn í undirbúningsspilinu og gaf hælsendingu á Cleverley við vítateigshornið. Cleverley skaut að marki, boltinn breytti um stefnu af varnarmanni og setti markmanninn algjörlega úr jafnvægi. Örlítill heppnisstimpill yfir markinu en þau telja öll jafn mikið.
Ferguson var að vonum sáttur með sigurinn og móttökurnar sem liðið fékk frá áhorfendum í Toronto. Völlurinn sem leikið var á var frekar stífur og þurr, Ferguson var því ánægður með að allir leikmennirnir skyldu komast heilir í gegnum leikinn.
Næsti æfingaleikur United er við Philadelphia Union þann 21. júlí og fer fram í Philadelphia.
Áhorfendur: 39.139
Byrjunarlið United: Van der Sar; Rafael (De Laet 63), Smalling, J.Evans (Brown 45), Fabio (O'Shea 45; Obertan (Macheda 63), Fletcher, Scholes (Gibson 45), Giggs (Cleverley 45); Berbatov, Diouf (Welbeck 63).
- Daði Már
Athugasemdir »
united
Lundi123
MR Benz
Rúnar
ottoman
Giggsy
Eiríkur
Sneijder
Hann skoraði eitt fallegt mark og lagði upp 2 á glæsihátt. Svo var hann með flotta takta inn á milli. Hann var bara frábær í leiknum.


















Beckham