Úrvalsdeildin
26.6.2010
Ferguson sáttur með eigendurna

Sir Alex Ferguson ítrekar að hann geti ekki beðið um neitt meira af eigendum klúbbsins og sé sáttur við þá. Hann segir að einungis líkamleg heilsa sín muni skera úr um það hvenær hann hættir sem knattspyrnustjóri Manchester United.
Eignarhald Glazer fjölskyldunnar á Manchester United hefur verið harðlega mótmælt af stuðningsmönnum félagsins vegna gríðarlegra skulda sem þeir hafa hlaðið á klúbbinn. Mótmælaherferðin Green & Gold fékk meiri og meiri stuðning þegar leið á tímabilið og vonast þeir nú eftir því að fjárfestingarhópurinn The Red Knights nái að gera yfirtökutilboð í félagið og frelsa það undan skuldaböggum amerísku eigendanna.
Þó Ferguson segist skilja áhyggjur stuðningsmanna og þörf þeirra til að mótmæla þá segist hann vera sáttur við eigendurna þar sem þeir hafi alltaf stutt hann í öllu sem hann hefur gert.
„Það er ekkert að því mótmæla. Stuðningsmennirnir hafa sýnt óánægju sína með eigendurna. Það hefur alltaf verið þannig síðan ég hef verið hjá félaginu, fyrst með Edwards fjölskylduna, svo þegar við urðum að opinberu hlutafélagi og núna er það Glazer fjölskyldan."
„Það er alltaf ákveðinn partur stuðningsmanna sem finnst þeir eigi klúbbinn, það er skiljanlegt þar sem þeir sýna ótrúlega tryggð við félagið. Ég skil hvaðan þeir eru að koma. Mín sýn á þetta er að Glazer hefur stutt við liðið virkilega vel. Þeir skipta sér ekki af, þeir leyfa okkur að sjá um störfin okkar og þegar við höfum beðið um leikmann þá höfum við fengið hann. Hvað getum við beðið um meira?"
Ferguson hefur verið við stjórnvölin hjá Manchester United síðan árið 1986 og staðfesti að hann hefði ekki í hyggju að hætta í leiknum alveg á næstunni. Hann ætlar að leyfa heilsu sinni að ákveða hvenær sé rétti tíminn til að leggjast í helgan stein.
„Þetta er frábært félag til að vera hjá. Hvatinn til að vera hér er auðveldur þar sem ég hef haft frábæra leikmenn í 25 ár og ótrúlegan stuðning. Á hverjum morgni mæti ég á æfingu og sé þessa leikmenn æfa. Þeir gera það með mikilli hollustu, seiglu og einbeitingu. Það er unun að sjá það."
„Aldur er samt alltaf partur af þessu sem þú þarft að varast því með aldrinum koma fleiri áhættur. Heilsan er að sjálfsögðu ein þeirra. Hún ákvarðar hversu lengi þú ert hjá tilteknu félagi. Sem betur fer er ég í góðu lagi...sjö, níu þrettán." sagði Ferguson að lokum.
- Daði Már
Athugasemdir »
örn
salli
Ég vil undirstrika það sem ég hef sagt áður, það eru EINGÖNGU menn á launaskrá hjá manutd sem lýsa yfir ánægju með eigendurnar. Staðan er einföld, það eru ÖLL alvöru lið í Evrópu að styrkja sig með ALVÖRU leikmönnum. Við erum búnir að kaupa einn Mexikóa sem var nánast óþekktur fyrir HM (lofar þó góðu)
Með þessu áframhaldi þá þurfum við að fara að selja okkar bestu menn eins og Liverpool
og hvað gerir MEISTARI Ferguson þá.....ætli heilsan bili þá ekki snögglega og hann bara einfaldlega hætti. Hann er jú búin að vinna ALLT sem í boði er 
salli
http://www.mbl.is/mm/enski/frettir/2010/07/05/torres_gaeti_yfirgefid_liverpool/
Já, það eru blikur á lofti.....mun þetta enda eins og í spænsku deildinni....þar eru bara tvö ALVÖRU lið.


















beip123