Úrvalsdeildin
26.5.2010
UEFA kynnir nýjar fjármálareglur

UEFA hafa gefið út tilkynningu varðandi nýjar reglur um fjármál knattspyrnufélaga sem munu taka gildi tímabilið 2012/2013. Reglurnar snúast um að lækka ofurlaun leikmanna ásamt því að takmarka hversu mikið félögin geta verið skuldsett og eytt um efni fram.
Glazer fjölskyldan steypti Manchester United í miklar skuldir þegar hún yfirtók félagið árið 2005. Amerísku feðgarnir fjármögnuðu kaupin að langmestum hluta með lánum sem þeir yfirfærðu svo á félagið sjálft eftir yfirtökuna. Talið er að United og eigendurnir skuldi nú um samtals ca. £700 milljónir punda.
Nýju reglur UEFA hafa það hlutverk að koma í veg fyrir svona aðfarir. Þær bera nafnið „Financial Fair Play" og hefur tekið þrjú ár að hanna þær. Félögin þurfa að standast ákveðnar kröfur og mega meðal annars ekki steypa sér endalaust í skuldir. Þau verða einnig að skila hagnaði eða vera rekin á núlli. Eigendur mega enn fjárfesta í félögunum en þó ekki með lánum. Hinsvegar verður leyfilegt að fjárfesta í æfingaaðstöðu og aðstöðu fyrir akademíur en mjög líklega verður sett þak á laun og leikmannakaup liðanna.
Fjórtán félög í ensku úrvalsdeildinni töpuðu peningum á leiktíðinni 2008-2009. Mörg félög í deildinni eru fjármögnuð af velauðugum einstaklingum á borð við Roman Abramovich hjá Chelsea og Sheikh Mansour hjá Manchester City. Þau félög töpuðu hinsvegar £47 og £93 milljónum punda árið 2009 en lifa algjörlega á innspýtingu eigendanna til að rétta við fjárhaginn. Með nýju reglunum þurfa þessi félög að taka sig á í rekstrinum þar sem ekki verður leyfilegt lengur að skila tapi ár eftir ár.
Manchester United kom út í £6,4 milljón punda hagnaði árið 2009 þökk sé sölunni á Cristiano Ronaldo. Það verður að teljast ansi lítill hagnaður miðað við söluverð leikmannsins sem var £80,7 milljónir punda. Ástæðan fyrir þessu eru gríðarlegar vaxtaafborganir af lánum Glazer fjölskyldunnar. Ef ekki væri fyrir þær þá væri félagið að skila fínum hagnaði en eingöngu afborganir af vöxtum lánanna sem eigendurnir skelltu á félagið eru taldar vera á bilinu £45-50 milljónir punda á ári.
Erkifjendur United í Liverpool töpuðu £55 milljónum punda árið 2009. Stærsti hlutinn af því var vegna £40 milljón punda greiðslu í vexti af £250 milljón punda láni sem amerísku eigendur þeirra tóku til að kaupa félagið. Hinsvegar hefðu þessar reglur komið sér vel fyrir bæði United og Liverpool ef þær hefðu verið í gildi á sínum tíma. Þá hefðu amerísku eigendurnir ekki fengið að taka lán til að kaupa félögin, lán sem hafa nú hækkað mikið og afborganirnar að sama skapi líka.
Þessar reglur gætu opnað dyrnar fyrir fjárfestingarhópinn The Red Knights að kaupa Manchester United og að sama skapi sett pressu á Glazer að selja. Sá hópur telur um 40-50 ríka stuðningsmenn Manchester United sem vilja ólmir losna við Glazer og skuldir hans. Hópurinn stefnir á að reyna að gera tilboð í félagið áður en HM hefst þann 11. júní næstkomandi og er kauptilboðið talið vera á bilinu £1 til £1,2 milljarður punda.
En hvort sem félögin í ensku úrvalsdeildinni eru skuldum vafin eða með moldríka eigendur þá er alveg ljóst að í báðum tilfellum þarf líklega að breyta rekstri félaganna. Þessi skuldugu þurfa að finna leið til að grynnka á skuldunum og reyna að koma út á núlli, á meðan þau moldríku þurfa að finna leið til að ná jafnvægi í rekstrartölum hvað varðar endalausa eyðslu í leikmannakaup og ofurlaun.
- Daði Már


















hhh