Beint á leiðarkerfi vefsins

Úrvalsdeildin

14.3.2010

ManUtd 3 - Fulham 0

United endurheimti toppsæti deildarinnar þegar þeir lögðu Fulham að velli 3-0 á Old Trafford í dag. Wayne Rooney heldur uppteknum hætti og skoraði tvö mörk. Berbatov sýndi góð tilþrif og skoraði sjálfur eitt marka United undir lok leiksins. 

 

Rooney er því kominn með 25 mörk í deildinni og 32 mörk í öllum keppnum. Berbatov skoraði sitt 10 deildarmark og var valinn maður leiksins af fjölmörgum erlendum íþróttamiðlum.

United eru núna með tveggja stiga forskot á Chelsea og Arsenal á toppnum, en Chelsea menn hafa leikið einum leik færra en bæði United og Arsenal.

Á þessum tímapunkti tímabilsins fylgir hverri umferð aukin pressa þar sem hver leikur gæti skorið úr um hvaða lið stendur uppi sem Englandsmeistari í vor. United voru settir undir pressu af bæði Arsenal og Chelsea um helgina en bæði lið unnu sína leiki sem þýddi að United þurfti á 3 stigum að halda til að halda pressunni á andstæðingum sínum.

Síðast þegar United mætti Fulham á Craven Cottage í desember fóru þeir hvítklæddu með 3-0 sigur af hólmi. Á þeim tíma var meiðslalisti United gríðarlega langur og sá listi samanstóð aðallega af varnarmönnum sem þýddi að Ferguson neyddist til að nota Michael Carrick og Darren Fletcher í vörninni ásamt Tomasz Kuszczak í markinu.

Í dag var sagan hinsvegar önnur þar sem bæði Rio Ferdinand og Nemanja Vidic spiluðu í hjarta varnarinnar. United voru ívið meira með boltann í fyrri hálfleik og ógnuðu mun meira en gestirnir. Rooney komst nálægt því að koma United yfir eftir frábært þríhyrningsspil Darren Fletcher og Dimitar Berbatov. Fletcher var óeigingjarn og setti knöttinn fyrir markið á Rooney en hann hitti knöttinn illa og sluppu Fulham menn svo sannarlega með skrekkinn eftir vel útfærða sókn United.

Mark Schwarzer varði glæsilega frá Rooney stuttu seinna en enski framherjinn átti þá fast skot af um 20 metra færi. Berbatov komst einnig í tvígang nálægt því að skora í fyrri hálfleik en í báðum tilvikum fóru skallar hans rétt framhjá markinu.

Strax í byrjun seinni hálfleiks leit þó fyrsta mark leiksins ljós. Berbatov skallaði þá knöttinn í hlaupaleið Rooney sem kom boltanum út á vinstri vænginn til Nani. Portúgalinn sendi lága sendingu inn í teiginn þar sem Rooney var mættur og setti knöttinn auðveldlega í netið.

Þar með var ísinn brotinn en United menn máttu þó bíða eftir seinna markinu sem gerði algjörlega út um leikinn. Bæði Rooney og Berbatov fengu hálffæri sem fóru forgörðum og átti Berbatov meðal annars bakfallsspyrnu sem hefði án efa orðið glæsileg ef hann hefði hitt knöttinn betur.

Parice Evra tók einnig þátt í sóknarleiknum og komst í tvígang í góðar skotstöður en sýndi þá af hverju hann er meira þekktur fyrir stoðsendingar en að skora sjálfur með þrumuskotum. Fyrra skot Evra endaði í innkasti þó það seinna hafi verið nærri markinu. Sjálfur hafði Evra gaman af þessu og sást glotta í báðum tilvikum þegar myndavélin náði nærmynd af honum.

Fulham menn fengu þó dauðafæri í stöðunni 1-0 og slapp þá Bobby Zamora einn inn fyrir vörn United eftir að knötturinn féll óvænt fyrir fætur hans. Vidic var þá fljótur að hugsa og keyrði til baka og náði á ótrúlegan hátt að fleygja sér fyrir skotið frá Zamora og kom þar hugsanlega í veg fyrir jöfnunarmark Fulham manna, glæsilega gert hjá Vidic.

Berbatov lagði svo loks upp seinna mark United manna á 84. mínútu leiksins. Búlgarinn tók þá glæsilega á móti boltanum eins og hann er þekktur fyrir, fór snyrtilega framhjá tveimur varnarmönnum Fulham áður en hann sendi boltann fyrir markið á Wayne Rooney sem skaut viðstöðulaust í fjærhornið.

Berbatov skoraði svo sjálfur fimm mínútum síðar með fínu skallamarki eftir fyrirgjöf frá varamanninum Ji-Sung Park sem kom inn á í seinni hálfleik fyrir Antonio Valencia.

Mikilvæg þrjú stig í hús í dag og geta nú leikmenn United einbeitt sér að næsta verkefni um komandi helgi. Þá fá United menn erkifjendurna í Liverpool í heimsókn á Old Trafford og verður án efa hart barist eins og venjan er þegar þessi tvö lið mætast, en Liverpool menn eru sem stendur í mikilli baráttu við Tottenham, Man City og Aston Villa um hið eftirsótta fjórða sæti sem gefur þátttökurétt í meistaradeildinni á næsta tímabili.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

Rakel

18.3.2010 11:06
LIKE!Þögull sem gröfin

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista

Old Trafford

MUFC bolur