Úrvalsdeildin
8.3.2010
Ferguson: Eins gott að við unnum Wolves

Sir Alex Ferguson segir að sér hafi verið létt þegar flautað var til leiksloka í leik Manchester United og Wolverhampton Wanderes í ensku úrvalsdeildinni á laugardag. Sigurmark United kom tuttugu mínútum fyrir leikslok þegar Paul Scholes skoraði sitt 100aðsta deildarmark. United slapp á móti með skrekkinn þegar varamaður Úlfanna, Sam Vokes, hamraði boltanum yfir í dauðafæri í uppbótartíma.
„Ég óttaðist hið versta. Þetta er eitt af þessum færum sem maður vonast eftir að fá sjálfur en blessunarlega klúðraði hann því,“ sagði Ferguson eftir leikinn.
„Það er alltaf erfitt að heimsækja Wolves en mér fannst við spila betur og verðskulda sigurinn. Þetta var mikilvægur útisigur,“ sagði stjórinn um sigurinn sem skaut United á topp deildarinnar.
„Liðið hefur leikið vel að undanförnu þrátt fyrir að missa menn í meiðsli. Þetta er í fyrsta sinn í eitt og hálft ár sem þessi vörn hefur spilað saman. Það sýnir hversu breiðan hóp við höfum.“ Þessi vörn spilar samt vart saman á næstunni. Wes Brown meiddist í leiknum en við hlið hans léku Rio Ferdinand, Nemanja Vidic og Patrice Evra.
United gekk illa að skapa sér teljandi marktækifæri þar til boltinn féll fyrir gamla refinn Paul Scholes sem lét það happ ekki úr hendi sleppa.
„Scholes er stórkostlegur leikmaður og það er mikið afrek fyrir miðjumann að skora 100 mörk. Við höfum fært hann aftar á völlinn þannig hann skorar ekki jafn mikið og hann gerði þegar hann var yngri. Ég er samt ánægður með að hann fékk færið því það var enginn betri til að nýta það.“
-Zunderman














andoo