Úrvalsdeildin
7.3.2010
Wolves 0 - ManUtd 1
United komst í efsta sæti úrvalsdeildarinnar með sigri á Wolves. Það má segja að heppnin hafi verið með United sem spiluðu án Wayne Rooney og fór ekki á milli mála að hann var ekki til staðar. Það ánægjulega var að Scholes skoraði sitt hundraðasta mark í úrvalsdeildinni.
Leikmenn Wolves veittu mikla mótspyrnu og náði United ekki að brjóta ísinn fyrr en á 73. mínútu. Wayne Rooney var ekki í liðshópnum vegna hnémeiðsla sem hafa verið að hrjá hann undanfarið og virtist liðið sakna drifkraftsins og baráttuna sem einkennir leikstíl hans. Hinsvegar var ánægjulegt að sjá Rio Ferdinand og Nemanja Vidic spila loks saman í hjarta varnarinnar aftur.
United voru meira með boltann í leiknum en áttu í erfiðleikum með að skapa sér almennileg marktækifæri. Ferguson hóf leikinn með fimm manna miðju og Berbatov sem eina framherjann á toppnum.
Í upphafi leiks virtust United eiga í erfiðleikum með að ná tökum á spilinu. Kevin Doyle, framherji Wolves, kom sér í ágætt færi en þökk sé tæklingu frá Michael Carrick fór skot hans ekki á rammann. Stephen Ward átti einnig upplagt marktækifæri þegar Matt Jarvis átti fínan kross fyrir mark United, Ward var einn og óvaldaður í teignum en skalli hans endaði í fanginu á Edwin Van der Sar.
Gary Neville kom inn á fyrir Wes Brown í hálfleik en Brown kenndi sér meins í hnénu. Innkoma Neville í liðið var kannski ekki hugsuð sem sóknarskipting en þessi reynslumikli bakvörður hjálpaði þó liðinu við að ná aðeins betri tökum á leiknum.
Patrice Evra og Michael Carrick fengu báðir fín færi og Jody Craddock, varnarmaður Wolves, þurfti að hafa sig allan við til að koma í veg fyrir að Berbatov næði að koma United yfir eftir að rangstöðutaktík Wolves klikkaði.
United komust loks yfir á 73. mínútu eftir varnarmistök áðurnefndum Jody Craddock. Nani kom með fastan lágan bolta fyrir markið og misheppnuð tilraun Craddock til að hreinsa knöttinn úr teignum endaði ekki betur en svo að boltinn barst beint fyrir fætur Paul Scholes. Craddock reyndi að henda sér fyrir skotið en Scholes fór auðveldlega framhjá honum áður en hann setti boltann örugglega í fjærhornið.
Þetta var hundraðasta mark Scholes í úrvalsdeildinni sem hefur nú skorað 148 mörk fyrir félagið í öllum keppnum á sínum ferli. Hinn 35 ára gamli Scholes hefur ekki enn samþykkt eins árs framlengingu á samningi sínum við félagið og er sagður enn vera að íhuga hvort og hvenær hann muni leggja skóna á hilluna.
Mame Biram Diouf fékk tækifæri til að sanna sig í seinni hálfleik en komst ekki á blað þrátt fyrir að eiga frían skalla að marki eftir flotta fyrirgjöf frá Gary Neville.
Í uppbótartíma fékk varamaðurinn Sam Vokes algjört dauðafæri og hefði hæglega getað bjargað stigi fyrir Wolves en skot hans fór blessunarlega hátt yfir markið.
United fóru því með sigur af hólmi og eru á toppi úrvalsdeildarinnar með tveggja stiga forskot á Chelsea, en þeir bláklæddu hafa þó leikið einum leik færra en United.
Lið Man Utd: Van der Sar, Evra, Ferdinand, Brown (Neville 46), Vidic, Carrick, Nani (Park 73), Scholes, Gibson (Diouf 62), Berbatov.
Varamenn: Foster, Neville, Rafael, Park, Fletcher, Diouf, Obertan.
Lið Wolves: Hahnemann, Craddock, Ward (Keogh 84), Berra, Zubar, Foley, Guedioura (Ebanks-Blake 84), Henry, Jones, Jarvis (Vokes 88), Doyle.
Varamenn: Hennessey, Elokobi, Mancienne, Milijas, Ebanks-Blake, Keogh, Vokes.
Dómari: Peter Walton
Áhorfendur: 28.883
- Daði Már














oskar
Þetta var frekar dapur leikur hjá mínum mönnum og ef við ætlum að fagna þessum titli í vor höfum við ekki efni á að eiga fleiri svona leiki það verða fleiri menn en Rooney að taka af skarið.