Úrvalsdeildin
4.3.2010
Gill: Rauðu riddararnir eru tímasóun

Stjórnarformaður Manchester United, David Gill, segir að fjárfestingarhópurinn Rauðu riddararnir séu að eyða tíma sínum í óþarfa með því að reyna að kaupa félagið af Glazer fjölskyldunni. Gill segir að Glazer sé að reka klúbbinn á réttan hátt og efast um áætlanir hópsins.
David Gill gagnrýndi þó einnig eftirminnilega fyrirhugaða yfirtöku Glazer fjölskyldunnar árið 2004 stuttu áður en til hennar kom og hafði uppi efasemdir um áætlanir þeirra á svipaðan máta og hann gerir nú með Rauðu riddarana. Meðal annars lét hann hafa eftir sér fleyg orð sem stuðningsmenn United núa honum sífellt um nasir þessa dagana: „Debt is the road to ruin" eða „Skuldsetning er leiðin til glötunar".
Hinsvegar hefur tónninn hjá Gill breyst síðan þá. Hann ítrekaði við fréttamenn að Glazer fjölskyldan ætlaði ekki að selja félagið og þeir væru að reka félagið á réttan hátt að hans mati. Einnig varði hann skuldasöfnun eigendanna og efaðist um hagkvæmni væntanlegs yfirtökutilboðs Rauðu riddarana.
Gill gagnrýndi einnig Keith Harris, talsmann sem fer fyrir fjárfestingarhópnum, en Harris hafði óskað eftir stuðningi aðdáenda United á dögunum og hvatt þá til að sniðganga söluvarning félagsins á leikdögum. Gill sagði að Harris elskaði að vera í sviðsljósinu og var harðorður í garð fyrri yfirtaka sem hann hefur stjórnað.
Gill lét hafa eftir sér á Soccerex ráðstefnunni í Manchester að Glazer væri langtímafjárfestir.
„Eigendurnir eru langtímafjárfestar og hafa sýnt það með Tampa Bay Buccaneers, sem þeir keyptu árið 1994 eða 1995 í Bandaríkjunum. Þeir eru ekki seljendur." sagði Gill.
„Það þýðir samt ekki að þessir Rauðu riddarar geti ekki komið fram og gert þeim tilboð. En Glazer fjölskyldan hefur ekki sýnt nein merki þess við mig að þeir vilji selja og þess vegna geta þeir ekki keypt eignina í þessu tilviki, hún er ekki til sölu."
Gill viðurkenndi þó að sumir þeirra sem væru í hópi Rauðu riddaranna væru trúverðugir einstaklingar en fór hinsvegar ekki fögrum orðum um Keith Harris. Hann ásamt fleirum hafa aðstoðað hópinn við að setja saman yfirtökutilboð og fundað með þeim aðilum sem hafa áhuga á að leggja fé til verksins.
„Við vitum að Jim O‘Neill (fjármálaráðgjafi hjá Goldman Sachs fjárfestingarbanka) er að aðstoða þá, hann var í stjórn hérna hjá okkur áður en Glazer eignaðist félagið. Við vitum einnig af Mark Rawlinson, hann var ráðgjafi okkar hjá Freshfields lögfræðistofunni."
„En Keith Harris mun alltaf fara þangað þar sem athyglin og sviðsljósið er, við vitum það og sættum okkur við að það eru hans vinnubrögð. En ef þú lítur á ferilsskrá hans í knattspyrnuheiminum þá finnst mér ekki mikið til hans koma."
„Þetta er engu að síður hópur af trúverðugu og traustu fólki og þau hafa allan rétt á að gera það sem þeim finnst vera best fyrir hagsmuni félagsins. En það mun ekki koma þeim langt ef Glazer feðgarnir vilja ekki selja, sem þeir hafa ekki sýnt vilja til og frá okkar sjónarhorni þá eru þeir að reka félagið á réttan hátt." sagði Gill.
Hann varði einnig eigendurna fyrir gagnrýni um að þeir mæti of sjaldan á United leiki og sýni lítinn áhuga á knattspyrnulegu hliðinni. Hann ítrekaði einnig að skuldirnar - £507 milljón punda lán í formi skuldabréfa ásamt persónulegum PIK lánum Glazer upp á £202 milljónir punda - séu í raun afborgunarhæfar og eðlilegar.
„Þeir mæta ekki á marga leiki en þeir eru mjög ástríðufullir í garð félagsins. Þeir skilja hvað þarf til að reka árangursríkt íþróttafélag, þeir vita að það þarf að fjárfesta í vörunni, í leikmönnum, í æfingasvæðinu og í leikvanginum. Þeir horfa á alla leiki í sjónvarpinu og mér finnst þeir hafa sýnt mikinn stuðning."
„Við höfum séð dæmi þess að eigendur komi inn í félög, eru mjög áberandi, reyni sjálfir að hafa áhrif á liðsvalið en Glazer feðgarnir hafa ákveðið að þeir eru ekki hér til að gera það. Ég vil ekki túlka það að slæm mæting þeirra á leiki þýði að þeir hafi ekki ástríðu fyrir félaginu." sagði Gill.
Gill ítrekaði einnig að tekjur félagsins myndu ráða við skuldabyrðina.
„Við erum með skuldir sem eru dekkaðar af sjóðsstreymi Manchester United. Við erum partur af íþrótt sem verður stærri með degi hverjum og sem eitt af stærstu liðum í heimi þá munum við hagnast á þeim vexti."
„Við trúum því að við höfum viðeigandi og sveigjanlega fjármálauppbyggingu við lýði. Í draumaheimi þá vill fólk ekki hafa húsnæðislán á eignum sínum en það nýtur engu að síður ávinnings af því að búa í húsinu þrátt fyrir að hafa ekki efni á því." sagði Gill og efaðist jafnframt um að yfirtaka og hugmyndir Rauðu riddaranna myndu virka hjá United.
„Hugmyndir Rauðu riddaranna, að hafa 20-40 manna hóp af auðugu fólki að stjórna Manchester United, ég veit ekki hvernig það myndi virka. Best reknu klúbbarnir eru þeir þar sem það er einungis einn eigandi sem tekur ákvarðanirnar, fljótlegt og skilvirkt ferli, eins og t.d. Abramovich hjá Chelsea og Mansour hjá Manchester City." sagði Gill að lokum, en taka má þó fram að þessir tveir síðastnefndu eigendur eiga sín knattspyrnufélög skuldlaust og eru vel auðugir einstaklingar.
- Daði Már
Athugasemdir »
gaur
Rakel















manutd maður