Úrvalsdeildin
2.3.2010
Yfirtökutilboð í bígerð?

Háttsettir fjármálamenn héldu leynilegan fund í vikunni varðandi yfirtökutilboð í knattspyrnufélagið Manchester United samkvæmt heimildum Sky News. Hópurinn sem um ræðir er betur þekktur undir nafninu The Red Knights.
Forráðamenn frá lögfræðistofunni Freshfields og fjárfestingarbankanum Goldman Sachs ásamt fleirum eru sagðir hafa verið viðstaddir fundinn. Fréttamaður Sky News, Mark Kleinman, komst á snoðir um fundinn.
„Ég held að fólk þurfi að vita að áætlun hópsins er enn á byrjunarstigi og þrátt fyrir að hann hafi stuðning stórra stuðningsmannasamtaka eins og Manchester United Supporter‘s Trust (MUST), þá gæti það endað svo að þeirra verði ekki endilega þörf við yfirtökuna." sagði Kleinman.
„Þrátt fyrir það þá er fyrsti fundur hópsins staðreynd og gefur til kynna að þeim sé virkilega alvara með áætlanir sínar um að ná aftur stjórn á félagi sínu, Manchester United." sagði Kleinman.
Á næstu vikum má því búast við fréttayfirlýsingu frá The Red Knights sem staðfestir tilvist hópsins og væntanlega biðja þeir um fjárhagslegan og andlegan stuðning frá stuðningsmönnum United.
Til að Glazer fjölskyldan svo mikið sem hlusti á tilboð í félagið þarf það væntanlega að vera að minnsta kosti í kringum £1 milljarð punda að sögn Kleinman. Talsmaður Glazer fjölskyldunnar fann sig tilneyddan til að tilkynna enn einu sinni að félagið væri ekki til sölu eftir fregnir af fundinum.
Stór meirihluti stuðningsmanna United eru alfarið á móti eignarhaldi Glazer á félaginu og uppsafnaðri heildarskuld félagsins sem er talin vera um £700 milljónir punda. Nýlegt skuldabréfalán Glazer upp á £500 milljónir punda var kornið sem fyllti mælinn fyrir suma og telja margir að skuldasöfnun eigendanna komi í veg fyrir að Sir Alex Ferguson geti látið til sín taka á leikmannamarkaðnum.
Cristano Ronaldo var seldur fyrir £80 milljónir punda síðasta sumar en stuðningsmenn United hafa enn ekki séð þá fjárhæð renna í fjárfestingar á þekktum leikmönnum nema að mjög litlum hluta.
Manchester United Supporter‘s Trust dreifðu mikið af mótmælavarningi gegn Glazer fjölskyldunni fyrir úrslitaleikinn gegn Aston Villa á Wembley síðastliðin sunnudag. Græni og guli liturinn vísar til félagsins Newton Heath, stofnað árið 1878, sem síðar varð að Manchester United árið 1902
- Daði Már
Athugasemdir »
stp
MR Benz
Menn hafa vitað af þessu í einhverja mánuði þannig að það er í sjálfu sér ekkert nýtt í þessu, nú bíða menn bara eftir tilboðinu sem ég er ansi ansi hræddur um að verði hafnað af þessu Glazer pakki. Þessi mótmæli stuðningsmanna eru að verða leiðinleg og það er leiðinlegt að þurfa að upplifa mótmæli í hverst skiptir sem United spilar.
Óskar
Verður að losa félagið úr þessari ánauð eða ráni sem átti sér stað! Með einni yfirtöku fór skuldlaust félag úr því að vera ríkasta félag heims í að verða skuldsettasta félag heims og stór hluti tekna fer í að borga vexti 8 milljarðar bara í vexti á síðasta ári! Hefði verið hægt að gera ýmislegt fyrir það.














Mills