Beint á leiðarkerfi vefsins

Úrvalsdeildin

24.2.2010

Ferguson ánægður með hungrað United lið

Sir Alex Ferguson var ánægður með leik Manchester United í 3-0 sigri á West Ham í gærkvöldi. Wayne Rooney skoraði tvö mörk og Michael Owen eitt í leik sem United varð að vinna til að eiga einhverja möguleika í meistarabaráttunni eftir skell gegn Everton á Goodison Park um helgina.

„Við urðum að vinna leikinn. Ég held að menn hafi verið andlega uppgefnir eftir leikinn í Mílan en menn verða að rífa sig upp og það gerðum við í kvöld,“ sagði Sir Alex eftir leikinn í gær.

„Okkur langaði til að vinna leikinn og ég held að við höfum verðskuldað það. Við spiluðum vel, sköpuðum okkur færi, nýttum plássið á vellinum vel og létum boltann ganga.

Fyrsta markið var sérlega fallegt. Boltinn var sendur þvert yfir völlinn, Valencia gaf fyrir í fyrsta á Wayne sem skallaði boltann inn. Í öðru markinu sendi Valencia frábæran bolta fyrir eftir þríhyrningaspil við Dimitar og Wayne kláraði færið vel.
 
Að lokum gerði Michael það sem hann gerir alltaf. Hann er snillingur í að koma sér á milli varnarmanna. Spilið var gott og hann kláraði færið vel. Við hefðum getað skorað fjölda marka í seinni hálfleik.“

Ben Foster var í markinu í fyrsta sinn síðan í nóvember og Nemanja Vidic í byrjunarliði í fyrsta sinn á árinu.
„Ben varði tvisvar vel í seinni hálfleik. Hann var örlítið stressaður, það sást á spyrnunum hjá honum en hann varði vel. Nemanja var stórkostlegur. Hann átti alla skallabolta og það munar um að hafa hann í  liðinu.“

Ferguson vonar líka að nágrannarnir í City geri Chelsea skráveifu þegar þau mætast í Manchester á laugardag. „Vonandi. City er með fínt lið sem ætlar sér fjórða sætið með fjölda góða leikmanna og þeir sjá sér leik á borði þar sem Chelsea verður nýbúið að spila við Inter.“

-Zunderman

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista

Old Trafford

MUFC bolur