Úrvalsdeildin
23.2.2010
ManUtd 3 - West Ham 0

Manchester United minnkaði forskot Chelsea niður í 1 stig á toppnum í kvöld með góðum 3-0 sigri á West Ham. Rooney skoraði tvö lagleg skallamörk í leiknum eftir fyrirgjafir frá Antonio Valencia. Michael Owen gulltryggði svo sigurinn með þriðja markinu 10. mínútum fyrir leikslok.
Vonir United um fjórða Englandsmeistaratitilinn í röð beið hnekki um síðustu helgi þegar liðið tapaði illa fyrir Everton á Goodison Park. Þar með jók Chelsea forskot sitt á toppnum í 4 stig.
En rauðu djöflarnir rifu sig upp í þessum leik á Old Trafford og spiluðu skemmtilega knattspyrnu. Ferguson hvíldi nokkra af leikmönnum sínum og gaf meðal annars Ben Foster tækifæri í markinu ásamt því að setja Anderson á vinstri kantinn. Gibson tók sér stöðu á miðjunni og Nemanja Vidic hirti byrjunarliðsssæti Jonny Evans í miðverðinum, en sá síðarnefndi þótti ekki standa undir væntingum gegn Everton.
Anderson þurfti að fara af leikvelli strax í fyrri hálfleik en hann virtist meiðast snemma í leiknum. Hann þrjóskaðist þó við að fara strax útaf en gafst að lokum upp og bað um skiptingu. Kóreumaðurinn Ji-Sung Park tók stöðu hans og stóð sig með prýði. Ekki er vitað um alvarleika meiðslanna hjá Anderson á þessari stundu. Þetta eru án efa mikil vonbrigði fyrir Brasilíumanninn en hann hefur ekki fengið mikið að spila upp á síðkastið.
Rooney skoraði glæsilegt skallamark undir lok fyrri hálfleiks eftir fallega fyrirgjöf frá Antonio Valencia á hægri kantinum. Valencia fékk háa sendingu frá Berbatov upp kantinn. Ekvadorinn gerði sér lítið fyrir, tók boltann á lofti og sendi viðstöðulaust fyrir markið þar sem Wayne Rooney sá um að stanga knöttinn í netið. Glæsileg sókn í alla staði.
Annað markið kom í upphafi seinni hálfleiks. Það var með svipuðum hætti og fyrra markið. Berbatov fann Valencia á kantinum sem hljóp af sér varnarmann og náði að koma knettinum fyrir markið þar sem Rooney var aftur mættur til að skalla boltann framhjá varnarlausum Robert Green í markinu.
Undir lok leiks komu Mame Biram Diouf og Michael Owen inná fyrir þá Wayne Rooney og Dimitar Berbatov. Eftir að hafa verið inn á vellinum í örfáar mínútur var Owen búinn að skora. Hann fékk flotta sendingu inn fyrir vörn West Ham og setti knöttinn yfirvegað í fjærhornið úr fremur þröngu færi.
Forysta Chelsea á toppnum er því nú einungis 1 stig en þeir mæta Man City næstkomandi laugardag. United spila hinsvegar á Wembley á sunnudeginum þegar þeir mæta Aston Villa í úrslitaleik enska deildarbikarsins.
Athugasemdir »
mercy
Eiríkur
Rakel
var geðveikt ánægð með strakana:) frábær leikur:)
leiðinlegt fyrir Anderson að meiðast samt, nýkomin aftur liðið greyið.
en áfram manutd,!!!:D














Sindri