Úrvalsdeildin
6.2.2010
ManUtd 5 - Portsmouth 0

Eins og við var að búast héldu Manchester United sigurgöngu sinni áfram gegn Portsmouth með 5-0 sigri á botnliðinu. Fyrsta mark leikins kom þó ekki fyrr en eftir um 40. mínútur og var þar að verki Wayne Rooney sem hefur verið sjóðheitur fyrir framan mark andstæðinganna undanfarnar vikur.
Fyrir leik söfnuðust hundruð stuðningsmanna United fyrir framan Munich klukkuna og heiðruðu minningu leikmannanna sem fórust í flugslysinu í Munich 6. febrúar árið 1958. Áður en flautað var til leiks var einnig mínútuþögn á vellinum sjálfum.
Eftir um 7. mínútna leik vildu United menn fá vítaspyrnu þegar Rooney virtist vera hrint í teignum en dómarinn gaf til kynna að ekki væri um brot að ræða.
Áður en United komust yfir í leiknum fengu Portsmouth þó gott færi til að taka forystuna. Gary Neville var illa staðsettur hægra megin í vörninni og gaf sóknarmanni Portsmouth færi á að skjóta. Boltinn virtist vera á leið í netið, var kominn framhjá Van der Sar í markinu en Jonny Evans hafði hlaupið til baka til að verja fjærhornið og hreinsaði knöttinn af marklínunni - virkilega vel gert hjá þessum unga Norður-Íra.
En Neville átti svo stuttu seinna frábært hlaup upp hægri kantinn, kom með góðan lágan bolta inn í teig á Dimitar Berbatov en Búlgarinn skaut framhjá í algjöru dauðafæri. Hálfur völlurinn var staðinn á fætur til að fagna markinu en allt kom fyrir ekki, Berbatov virtist jafn hissa á sjálfum sér eins og stuðningsmennirnir. Myndavélarnar sýndu meðal annars Rio Ferdinand í stúkunni halda um andlit sitt eftir að þetta færi fór í súginn. En Berbatov átti eftir að bæta upp fyrir þetta klúður seinna í leiknum.
Fyrsta mark leiksins kom stuttu fyrir leikhlé. Neville tók stutta hornspyrnu á Valencia sem sendi boltann út á Darren Fletcher. Skoski baráttujaxlinn kom svo með frábæran kross fyrir markið og auðvitað var Wayne Rooney mættur á svæðið til að stanga knöttinn í netið, 1-0 fyrir United og ísinn brotinn. Eftir þetta brotnuðu Portsmouth menn algjörlega.
Áður en flautað var til leikhlés var staðan orðin 2-0. Nani geystist upp vinstri kantinn, tók nokkur skæri inn í teignum og ætlaði sér að senda knöttinn inn í teiginn í átt að Berbatov. Boltinn breytti hinsvegar um stefnu af varnarmanni Portsmouth og þaðan lak hann í netið framhjá David James sem var lagstur á hina hliðina.
Í seinni hálfleik áttu United svo stórglæsilega sókn sem hefði með réttu átt að enda með marki. Valencia hljóp með boltann á mikilli ferð í átt að marki andstæðinganna, sendi knöttinn á Berbatov sem flikkaði boltanum frábærlega yfir varnarmann Portsmouth í hlaupaleið Valencia. David James gerði hinsvegar vel í að verja skot Valencia sem hefði e.t.v. átt að reyna að setja boltann í fjærhornið. Engu að síður flott tilþrif hjá þeim tvímenningum Valencia og Berbatov.
Þriðja markið kom eftir tæpan klukkutíma leik. Michael Carrick fékk tíma og pláss fyrir utan vítateig Portsmouth og lét vaða á markið. Boltinn breytti um stefnu af varnarmanni og fór í slánna og þaðan í netið, óverjandi fyrir lánlausan David James í markinu.
Fjórða mark leiksins kom eftir einstaklingsframtak hjá Dimitar Berbatov. Hann hafði verið með boltann í um 20-30 sekúndur og virtist vera að mála sig út í horn inn í vítateig Portsmouth. Hann rak hinsvegar knöttinn aftur út fyrir teiginn, sneri sér svo að markinu aftur og skaut hnitmiðuðu skoti í fjærhornið. Flott tilþrif hjá Berbatov sem var greinilega létt með að komast á blað í leiknum.
Þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum gerði Sir Alex Ferguson þrefalda skiptingu. Af leikvelli fóru Rooney, Berbatov og Fletcher og greinilegt að Ferguson var með hugann við útileikinn gegn Aston Villa næstkomandi miðvikudag. Inn á komu Michael Owen, Mame Biram Diouf og Darron Gibson.
United voru alltaf líklegir til að skora fleiri mörk og fimmta markið kom skömmu síðar. Patrice Evra kom með góða fyrirgjöf inn á teiginn þar sem varnarmaðurinn Wilson sá um að þruma knettinum í eigið mark. Fyrir aftan hann lúrði þó Senegalinn Diouf og beið eftir boltanum.
Diouf hefði getað skorað sjötta markið eftir frábæra sendingu frá Michael Owen. Diouf var kominn einn gegn David James en var alltof bráður og skaut fast og hátt yfir markið.
En góður sigur United staðreynd. Það er alltaf ánægjulegt að skora 5 mörk í sama leiknum en taka verður með í reikninginn hversu slakir andstæðingarnir voru. Engu að síður er markatala United nú á pari við Chelsea menn og gæti hún skipt máli þegar uppi er staðið í vor. Fyrir nokkrum vikum voru United menn með töluvert lakari markatölu en Chelsea en hafa nú náð að vinna hana upp hægt og bítandi.
Með sigrinum komust United tímabundið í efsta sæti deildarinnar. En þar sem Chelsea fór með sigur af hólmi gegn Arsenal á sunnudeginum þá sitja þeir nú á toppnum með tveimur stigum meira en rauðu djöflarnir. United menn hafa þó skorað flest mörk í deildinni í vetur, 61 mark. Þeir hafa einnig fengið næstfæst mörk á sig, 20 mörk, og eru einungis Aston Villa með færri mörk fengin á sig eða 18 mörk.
Svo virðist sem langflestir stuðningsmenn United hafi verið með gula og græna trefla á leiknum og virðast mótmælin gegn Glazer einungis aukast. Stuðningsmennirnir sungu um ást sína á United og hatur sitt á Glazer um leið og þeir sveifluðu treflunum yfir höfði sér.
En næstu leikir gætu skipt sköpum í titilbaráttunni. United eiga tvo erfiða útileiki gegn Aston Villa og Everton. Aston Villa sýndu ekki mikið gegn Tottenham um helgina og Everton litu ekki út fyrir að skora í sínum leik gegn Liverpool þrátt fyrir að þeir rauðklæddu væru einum færri lungann úr leiknum. Þetta þýðir þó ekki að United eigi auðvelda leiki í vændum en gæti þó gefið til kynna að þetta sé ákjósanlegur tími til að mæta þessum liðum. Chelsea spila við Everton í næstu umferð á Goodison Park, þá mun eflaust koma í ljós við hverju United menn mega búast í þarnæstu umferð.
Sky Sports:
Maður leiksins: Nani - var ávallt ógnandi og með góð hlaup.
Mark leiksins: Berbatov - frábært hnitmiðað skot.
Markvarsla leiksins: David James - varði glæsilega frá Valencia.
Augnablik leiksins: Jonny Evans - bjargaði á línu á mikilvægum tímapunkti.
- Daði Már
Athugasemdir »
Björn
Takk fyrir fína grein. En það er smá villa, United menn eru 'bara' búnir að fá á sig 20 mörk en ekki 21. Þessi villa er búin að vera dálítið lengi í töflunum hjá fótbolta.net og einnig mbl.is en er rétt hjá Visir.is. Villan kemur út af því að leikurinn hjá Man Utd vs Wolves þann 15.des er skráður hjá þeim 3 - 1 en fór 3 - 0. Einhver tregða hjá þeim að leiðrétta þetta.
Annars er ég sammála ,að Portsmouth voru alveg skelfilegi í síðasta leik. Einnig sammála stuðningsmönnum og konum að Glazer menn eru að stórskaða þetta frábæra félag.
Takk fyrir
andoo
flottur leikur ..pompey attu aldrei sens fannst mer og hefðum getað unnið þetta ennþá stærra
rooney geggjaður enn einu sinni og virðist vera byrjaður að fullkomna sinn leik enn meira með þvi að vera orðinn svona magnaður i boxinu,, eru menn ekki sammála manni i þvi að með þessaris spilamennsku má fara að telja rooney i hóp þeirra bestu með td. messi ronaldo og félögum ?
















Rakel
vá þeir voru awesome:) er svo gaman að horfa á þegar að allt gengur upp:)
en verður að segjast að porthsmouth voru alveg hrikalega lélegir vá! vonum núna bara að chelsea fari að misstíga sig.....