Beint á leiðarkerfi vefsins

Úrvalsdeildin

6.2.2012

Ferguson: Við vorum miklu betri en Chelsea

Sir Alex Ferguson álítur United hafa tapað tveimur stigum gegn Chelsea en ekki bjargað stigi fyrir horn þegar liðið jafnaði 3-3 eftir að hafa lent 0-3 undir á Stamford Bridge í gær. United hafi einfaldlega leikið mun betur. Þjálfarar beggja liðanna voru ósáttir við dómaratríóið en ákvarðanir þess skiptu sköpum í endurkomu United.

„Ég tel okkur hafa tapað tveimur stigum því við lékum það vel. Mér fannst við betra liðið fyrir utan tíu mínútna kafla í byrjun seinni hálfleiks þar sem við fengum á okkur tvö mörk. Það er ekki auðvelt að vinna upp þriggja marka forskot og leikmennirnir unnu þar mikið afrek. Þetta var frábær leikur fyrir þá hlutlausu sem horfðu á, Chelsea á sinn þátt í þeirri skemmtun sem leikurinn varð.“

Tveir leikmenn stóðu upp úr í United-liðinu að mati Ferguson, framherjarnir Wayne Rooney og Javier Hernandez. Rooney skoraði fyrstu tvö mörk United úr vítaspyrnum en hann hafði áður klúðrað þremur af fimm vítum sem hann hafði tekið á leiktíðinni. Hernandez skoraði jöfnunarmarkið eftir fyrirgjöf Ryan Giggs.

„Wayne hefur æft sig í vítunum síðan hann klúðraði því síðasta (gegn Bolton) og ég held að það hafi borgað sig. Chicharito hefði mögulega átt að byrja inn á. Hann grillaði þá eftir að hann kom inn á. Hann var altlaf á ferðinni. Danny Welbeck hefur spilað vel og á eftir að verða frábær leikmaður en Chicharito breytti leiknum.“

Þriðji maðurinn sem ávann sér hrós Ferguson var markvörðurinn David De Gea sem bjargaði stigunum í lokin þegar hann varði aukaspyrnu Juan Mata alveg út við stöng.

„Mér fannst það ótrúleg varsla. Boltinn stefndi efst í hornið. Hann varði tvisvar eða þrisvar mjög vel í viðbót, meðal annars í fyrri hálfleik. Framlag hans skipti máli. Við vitum að strákurinn hefur hæfileika og þeim munum við treysta. Það á eftir að margborga sig eftir þrjú eða fjögur ár.

Hann hefur vissulega gert ein eða tvenn mistök. Hann hefur þurft að aðlagast enska boltanum. Hann sýndi það samt líka í dag að hann er tilbúinn að koma út í boltann og kýla hann frá þegar þess þarf.“

Ferguson og starfsbróðir hans hjá Chelsea, Andre Villas-Boas, voru sammála um að dómaratríóið undir stjórn Howards Webb, hefðu átt slæman dag. Forsendur þeirra voru misjafnar. Á meðan Ferguson sagði United hafa átt að fá fjögur víti kvartað Villas-Boas yfir því að annað víti United hefði verið rangur dómur. Svo virtist sem Danny Welbeck gerði sitt besta til að krækja fætinum í útréttan fót Branislav Ivanovic.

„Seinna vítið var mjög, mjög vafasamt,“ sagði Villas Boas. „Ég veit ekki hvort Howard Webb sá atvikið frá réttu sjónarhorni. Kannski tók aðstoðardómarinn ákvörðunina en það var afar óheppilegt að vítið skyldi dæmt. Þessi vafasami dómur snéri leiknum. Við væntum þess að í þessum toppleikjum séu fyrsta flokks dómarar en þeir hafa ekki verið okkur hliðhollir. Í báðum leikjunum okkar gegn United hafa rangar ákvarðanir haft bein áhrif á úrslitin,“ sagði Portúgalinn minnugur þess að í leiknum á Old Trafford í haust skoraði United tvö mörk sem hefði átt að dæma af vegna rangstöðu.

Minni Ferguson virkar öðruvísi, sá mundi eftir tveimur vítum sem aðstoðardómurinn Darren Cann hafði dæmt í leikjum United gegn Arsenal og Liverpool.

„Það hefði átt að reka Gary Cahill út af í fyrri hálfleik. Danny Welbeck var kominn einn í gegn þegar hann var felldur. Brotið var utan teigs en það var ekkert dæmt. Þessi dómari dæmdi víti gegn okkur af löngu færi gegn Liverpool á Anfield í fyrra og í ár gegn Arsenal – og hann getur ekki séð þetta. Ég áfellist ekki Howard Webb. Hann þurfti hjálp en fékk hana ekki. Aðstoðardómaranum, sem leiðist ekki að dæma á Old Trafford, dæmdi ekki.“

Cahill sjálfur hefur viðurkennt að hafa verið heppinn að hafa sloppið. „Ég hélt ég hefði sett takkana í boltann. Ég er búinn að sjá upptökur af atvikinu. Þegar maður fer í gegnum leikmanninn eða þvert fyrir hann til að ná til boltans fær maður stundum dæmt á sig. Ég var því heppinn að sleppa þarna en ef menn horfa á hreyfingu boltans held ég að það sjáist að ég setti takkana í hann.“

-Zunderman

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista

Old Trafford

MUFC bolur