Úrvalsdeildin
22.1.2012
Arsenal 1 - ManUtd 2

Manchester United unnu mikilvægan útisigur á Arsenal í dag. Leikurinn var fjörugur og spennandi. United komust yfir rétt fyrir leikhlé með marki frá Valencia. Robin van Persie jafnaði leikinn í seinni hálfleik en það var svo Danny Welbeck sem tryggði stigin þrjú tæpum tíu mínútum fyrir leikslok.
Byrjunarlið United kom ekki mjög á óvart, en Rio Ferdinand var þó ekki með vegna meiðsla sem hann hlaut á æfingu. Anders Lindegaard var enn á milli stanganna og í vörninni voru þeir Jones, Smalling, Evans og Evra. Á miðjunni voru þeir Giggs og Carrick með Nani og Valencia á köntunum. Í framlínunni voru þeir Rooney og Welbeck en þeir virðast vera fyrstu kostir Ferguson í sókninni um þessar mundir.
Arsenal menn byrjuðu leikinn betur en United tóku undirtökin þegar leið á. Phil Jones meiddist hinsvegar eftir 15. mínútur og þurfti að fara af leikvelli, Rafael tók stöðu hans í hægri bakverðinum. United komust svo yfir rétt fyrir leikhlé þegar Ryan Giggs fékk tíma til að gefa boltann fyrir á vinstri kantinum og Antonio Valencia kom á ferðinni á fjærstönginni og stangaði knöttinn í netið. Glæsilega gert hjá báðum aðilum.
Arsenal byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti. Robin van Persie fékk dauðafæri á 50. mínútu eftir að Chris Smalling rann til í grasinu og missti knöttinn á mjög slæmum stað. Rosicky keyrði í átt að marki United, sendi knöttinn á Van Persie sem setti hinsvegar knöttinn framhjá markinu af stuttu færi.
Á 62. mínútu voru United hársbreidd frá því að komast í 2-0. Danny Welbeck slapp einn í gegn, lék á Szczesny í markinu og boltinn var á leiðinni í netið en varnarmanninum Per Mertesacker tókst að bjarga á marklínu rétt áður en knötturinn lak yfir línuna.
Á 71. mínútu tókst Arsenal loks að jafna metin. Hinn ungi Oxelade-Chamberlain átti góðan sprett og stakk svo boltanum inn á Robin van Persie sem setti knöttinn á milli fóta Jonny Evans og í fjærhornið. Anders Lindegaard var í boltanum en kom litlum vörnum við.
Eftir jöfnunarmarkið átti sér stað undarleg uppákoma. Arsene Wenger tók Oxelade-Chamberlain af leikvelli og setti Arshavin inn á í hans stað. Robin van Persie var meðal annars ósáttur við skiptinguna sem og stuðningsmennirnir sem bauluðu á Wenger.
Antonio Valencia hefur verið í miklu stuði í undanförnum leikjum. Hann átti aftur stóran þátt í sigurmarki United sem kom á 81. mínútu. Valencia lék á áðurnefndan Arshavin á kantinum, keyrði inn í teiginn og átti laglegt þríhyrningsspil við Park og kom boltanum svo út á Danny Welbeck sem þrumaði knettinum í netið.
Arsenal menn reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn á lokamínútunum en náðu ekki að brjóta sér leið framhjá varnarmúr United. Danny Welbeck fékk gullið tækifæri undir lok leiks til að skora þriðja mark United þegar hann slapp einn í gegn en hann náði ekki að fóta sig fyrir framan markið og færið rann út í sandinn.
United eru nú þremur stigum á eftir Man City sem sitja enn á toppnum eftir dramatískan 3-2 sigur á Tottenham í dag. Næsti leikur United er um næstu helgi þegar þeir mæta Liverpool á Anfield í FA bikarnum. Næsti deildarleikur fer svo fram þriðjudaginn 31. janúar þegar Stoke City heimsækja Old Trafford.
- Daði Már
Athugasemdir »
rallasi
Bud
Aron
MU-11
Lengi lifi Wenger í svefnpokanum sínum. Veri hann sem lengst hjá Nöllum. Flott hjá honum að taka besta leikmanninn útaf.!!!
Góður sigur í dag. Áfram ManUtd
KG
Óskiljanleg skipting hjá Wenger en hver fer annars í jakkafötum í svefnpokann. Góður leikur, hefði viljað sjá Scholes fyrr inn á til að róa spiið á miðjunni. Giggsy var orðinn lúinn í kringum 60mínúturnar. Flottur leikur hjá Valencia en skelfing gat hann Welbeck minn farið illa með tvö færi svo eitthvað sé fundið að.
Engu að síður 3 fín stig en leiðinlegt að heyra með Jones. Ég hef einmitt vissar áhyggjur varðandi Clev og Young þ.e að þeir verði látnir spila of mikið of snemma eftir svona langa fjarveru. Við verðum að eiga þessa karla góða það sem eftir er tímabils.
Hafið þið eitthvað heyrt af Nani??
Blöndal
KG
Djöfull er að heyra, ég sá haft eftir Fergie að þetta væri smávægilegt. Samkv. physioroom trjónum við enn á toppnum hvað meiðsli varðar með 11 stk. úti og hjá city, sem er með mannskap í 3 aðallið, er enginn meiddur. Þannig að þetta er ekki í vatninu í Manchester.Reyndar eru þarna inni menn eins og portúgalski útigangsmaðurinn okkar og De Laet og að sjálfsögðu M.Owen.
http://www.physioroom.com/news/english_premier_league/epl_injury_table.php
Er Park núna orðinn jafnvígur Nani. Okei, ég hlýt að hafa misst af einhverju í nótt. :)
En það styttist í Young. Svo að Park þurfi nú ekki að leysa þetta of lengi..
Blöndal
Gummi
Ghh
Já Park fyrir Nani? Setja múrstein í buxurnar hjá honum og tannstöngla undir augnalokin,þá kannski færi hann að virka.
´



















pirelli