Beint á leiðarkerfi vefsins

Úrvalsdeildin

14.5.2012

Valencia valinn bestur

Kantmaðurinn Antonio Valencia var valinn besti leikmaður tímabilsins hjá Manchester United tvívegis nú á dögunum. Hann fékk hin eftirsóttu Sir Matt Busby verðlaun, auk þess sem hann var valinn leikmaður ársins af leikmönnum félagsins

13.5.2012

Ferguson óskar City til hamingju

Sir Alex Ferguson var fljótur að óska Man City til hamingju með deildaritilinn eftir að þeir bláklæddu tryggðu sér dramatískan sigur á QPR í lokaumferðinni á sama tíma og United sigruðu Sunderland 1-0 á útivelli. Deildin vannst á markamun í ár en bæði United og City enduðu leiktíðina með 89 stig.

13.5.2012

Sunderland 0 - Man Utd 1, annað sætið staðreynd

Lokaumferðinn í ensku Úrvalsdeildin kláraðist í dag. Verkefni Manchester United manna var að vinna Sunderland og vona að City misstígi sig gegn QPR. Það var enn og aftur Rooney sem kláraði leik okkar manna en leikmenn Mancinis kláruðu QPR með tveimur mörkum í uppbótartíma

10.5.2012

Varalið United sigursælt

Varalið Manchester United urðu í dag varaliðsmeistarar eftir æsispennandi úrslitaleik við Aston Villa sem endaði í vítaspyrnukeppni. United voru sparkvissari í vítaspyrnunum og sigruðu 3-1 með spyrnum frá Joshua King, Jesse Lingard og Will Keane.

9.5.2012

Skoskir aðalbúningar á næsta tímabili?

Búningarnir hjá Manchester United fyrir næsta tímabil eru komnir á netið. Í gær var mynd sett á Facebook síðu Manchester United af nýju búningum sem verða að nokkuð óvenjulegir,  því búningarnir næsta tímabil verða köflóttir!

7.5.2012

Evra: United mun ekki hrynja

Patrice Evra telur að það sé enginn heimsendir þó United takist ekki að vinna ensku úrvalsdeildina í ár. Hann telur að United stórveldið muni áfram vera sigursælt næstu árin líkt og undanfarna tvo áratugi þó svo að titillinn endi í höndum City manna.


Skráðu þig á póstlista

Old Trafford

MUFC bolur