Beint á leiðarkerfi vefsins

Úrvalsdeildin

6.2.2012

Ferguson: Við vorum miklu betri en Chelsea

Sir Alex Ferguson álítur United hafa tapað tveimur stigum gegn Chelsea en ekki bjargað stigi fyrir horn þegar liðið jafnaði 3-3 eftir að hafa lent 0-3 undir á Stamford Bridge í gær. United hafi einfaldlega leikið mun betur. Þjálfarar beggja liðanna voru ósáttir við dómaratríóið en ákvarðanir þess skiptu sköpum í endurkomu United.

5.2.2012

Chelsea 3 - ManUtd 3

Manchester United og Chelsea gerðu jafntefli á Stamford Bridge í dag í ótrúlegum leik. Chelsea menn komust í þriggja marka forystu í síðari hálfleik en United áttu magnaða endurkomu sem hófst á 57. mínútu. Tvær vítaspyrnur frá Wayne Rooney og jöfnunarmark frá Javier Hernandez skömmu fyrir leikslok tryggðu United stig úr leik sem flestir héldu að væri svo gott sem búinn.

31.1.2012

ManUtd 2 - Stoke City 0

Manchester United unnu góðan sigur á Stoke City á Old Trafford í kvöld. Bæði mörk United komu úr vítaspyrnum. Javier Hernandez skoraði í fyrri hálfleik eftir að brotið var á Park innan vítateigs. Í síðari hálfleik var brotið á Valencia í teignum og Búlgarinn Dimitar Berbatov tók spyrnuna og skoraði.

22.1.2012

Arsenal 1 - ManUtd 2

Manchester United unnu mikilvægan útisigur á Arsenal í dag. Leikurinn var fjörugur og spennandi. United komust yfir rétt fyrir leikhlé með marki frá Valencia. Robin van Persie jafnaði leikinn í seinni hálfleik en það var svo Danny Welbeck sem tryggði stigin þrjú tæpum tíu mínútum fyrir leikslok.

16.1.2012

Ekki orðinn of gamall: Scholes skoraði gegn Bolton

Paul Scholes sýndi að hann á enn fullt erindi í lið Manchester United þegar hann skoraði fyrsta markið í 3-0 sigri á Bolton á laugardag. United yfirspilaði gestina en gekk illa að koma boltanum í netið.

4.1.2012

Newcastle 3 - ManUtd 0

Manchester United tapaði sínum öðrum deildarleik í röð þegar liðið mætti Newcastle á útivelli í kvöld. Fyrstu tvö mörk Newcastle voru af dýrari gerðinni. United lentu undir í fyrri hálfleik eftir laglegt mark frá framherjanum Demba Ba. Yohan Cabaye jók svo forystuna í þeim síðari með stórglæsilegu marki beint úr aukaspyrnu. Rétt fyrir leikslok setti Phil Jones boltann í eigið net á mjög vandræðalegan hátt.

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista

Old Trafford

MUFC bolur