Beint á leiðarkerfi vefsins

Úrvalsdeildin

29.7.2010

MLS All Stars 2 - ManUtd 5

Manchester United spilaði við úrvalslið MLS deildarinnar í gærkvöldi. Leikurinn var hin mesta skemmtun og endaði með 5-2 sigri United þar sem nýjasti liðsmaður félagsins, Javier „Chicharito" Hernandez, skoraði laglegt mark eftir að hafa komið inn á sem varamaður í seinni hálfleik.

26.7.2010

Kansas City 2 - ManUtd 1

Manchester United töpuðu sínum fyrsta leik í æfingaferðinni í Bandaríkjunum í gærkvöldi. United mætti Kansas City Wizards á Arrowheads vellinum í Kansas. Leikar enduðu með 2-1 sigri Bandaríkjamannanna þrátt fyrir að þeir hafi leikið manni færri í 52. mínútur.

22.7.2010

Philadelphia Union 0 - ManUtd 1

Manchester United mætti Philadelphia Union í gærkvöldi á Lincoln Financial Field vellinum í Philadelphia. United hafði betur 1-0 með sigurmarki frá Frakkanum Gabriel Obertan.

17.7.2010

ManUtd 3 - Celtic 1

Manchester United spilaði sinn fyrsta æfingaleik á undirbúningstímabilinu í gærkvöldi gegn skoska liðinu Celtic á Rogers Center vellinum í Toronto. Leikar enduðu með 3-1 sigri United. Berbatov, Welbeck og Cleverley sáu um markaskorunina fyrir United en Georgios Samaras skoraði fyrir Celtic.

26.6.2010

Ferguson sáttur með eigendurna

Sir Alex Ferguson ítrekar að hann geti ekki beðið um neitt meira af eigendum klúbbsins og sé sáttur við þá. Hann segir að einungis líkamleg heilsa sín muni skera úr um það hvenær hann hættir sem knattspyrnustjóri Manchester United.

17.6.2010

Leikjaniðurröðunin 2010/2011

Enska knattspyrnu- sambandið hefur opinberað leikjaniðurröðun næsta tímabils í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hefja mótið með því að fá 1. deildarmeistarana í Newcastle í heimsókn á Old Trafford í fyrstu umferðinni.

Skráðu þig á póstlista

Old Trafford

MUFC bolur