Old Trafford
Old Trafford - „Leikhús draumanna"
Það eru engum blöðum um það að fletta að heimavöllur Manchester United, Old Trafford er einn glæsilegasti heimavöllur á Englandi. Hann er jafnframt sá völlur á Englandi sem flesta áhorfendur tekur, að Wembley undanskildum.
Old Trafford hefur verið heimavöllur Manchester United síðan í febrúar 1910, fyrsti leikurinn sem var leikinn á vellinum var á móti erkifjendunum í Liverpool hinn 19. febrúar 1910. Skemmst frá því að setja að Liverpool vann leikinn sem endaði 4 - 3 fyrir framan 45.000 manns.
Old Trafford hefur farið í gegnum margar breytingar síðan hann var byggður. Upprunalega var leikvangurinn reistur fyrir 60.000 pund. Þá var stúka á þrjá vegu. Árin 1911 og 1915 var spilað til úrslita í FA cup á Old Trafford og árið 1920 var aðsóknarmet í deildarleik sett, þegar Aston Villa kom í heimsókn. Þá mættu 70.504 á völlinn og var það met ekki slegið fyrr en eftir seinni heimstyrjöldina.
Flestir áhorfendur á Old Trafford voru hins vegar 76.962 á bikarleik milli Úlfanna og Grimsby árið 1939. Ekki hefur sá fjöldi verið toppaður hingað til.
Leikvangurinn varð fyrir miklum skemmdum í seinni heimstríðöldinni og spilaði United um tíma á velli nágrannanna í Manchester City, Maine Road eða á árunum 1946 - 49 og hafa United menn þakkað City fyrir sig með því að vinna þá á þeim velli oft og iðulega.
Old Trafford var notaður í Heimsmeistarakeppninni árið 1966 og var einnig vetvangur í Umspili um FA bikarinn árið 1970 á milli Chelsea og Leeds. Árið 1960 varð mikil breyting á leikvanginum þegar stefnan var tekin á að hann þar nútímalegar stúkur, breytingarnar hafa komið í stökkum allt frá 1960 til dagsins í dag.
Árið 1973 var t.a.m. fyrstu einkastúkurnar eða hólfin byggð og varð Old Trafford þar með fyrsti völlurinn á Englandi til að bjóða upp á þann möguleika. Er það til marks um framsýni og viðskiptavit stjórnenda Manchester United á þeim tíma, að í dag eru flestir nýir vellir ríkulega búnum slíkum hólfum.
Á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum var hægt að troða u.þ.b 58.000 manns á völlinn, en ekki var selt í sæti heldur aðeins stæði. Eftir hið hörmulega Hillsborough slys var gerð krafa um að aðeins mætti selja í sæti en ekki stæði líkt og tíðkaðist.
Í framhaldi af þessum beytingum minnkaði sætafjöldinn niður í 44.000 sæti sem þótti of lítið þegar United byrjaði sitt gullaldarskeið á tíunda áratugnum. Við svo búið var völlurinn stækkaður og tók eftir þá breytingu 55.000 manns. Eftir þrennuna frægu var svo aftur hafist handa við að stækka. Eftir þá stækkun voru sæti fyrir 68.000 manns, mun fleiri en önnur lið á Englandi gátu boðið upp á.
Með því að bæta við annarri hæð í norð-vestur og norð-austur hornin hefur svo verið skapað pláss fyrir 8.000 fleiri áhorfendur og áhorfendamet hafa fallið í hverjum leiknum á fætur öðrum. Það met sem stendur í dag er 76.098 áhorfendur, sem mættu þegar United sigraði Blackburn örugglega 4-1, leiktíðina 2006-07.
Framtíðarplönin eru óráðin en Sir Alex Ferguson vill sjá völlinn ná 100.000 sæta markinu. Til þess að svo geti orðið þarf þó heilmiklar framkvæmdir. Suðurstúkan, sem er sú sem býður upp á stækkunarmöguleika, liggur nálægt lestarteinum og húsnæði. Almennt er talið að ryðja þyrfti um 50 húsum til að stækkunin geti orðið að veruleika.
Þetta er talið ákaflega kostnaðarsamt og því ólíklegt á allra næstu árum. Hugmyndir hafa þó verið reifaðar um að stækka hin hornin, þ.e. þau sem liggja að suðurstúkunni.














