Beint á leiðarkerfi vefsins

Meistaradeildin

5.9.2010

Hvorki Bebe né Hargreaves í Meistaradeildarhópnum

Nýliðinn Bebe og hinn símeiddi Owen Hargreaves komust hvorugur í þrjátíu manna leikmannahóp sem Manchester United notar í Meistaradeildinni.

Hargreaves hefur aðeins spilað nokkrar mínútur fyrir United undanfarin tvö ár. Hann fór til Colorado í Bandaríkjunum í sumar til hnésérfræðings í von um að bjarga knattspyrnuferlinum. Hann er í 25 manna úrvalsdeildarhópi United en ólíklegt er að hann verði nokkuð með fyrir jól.

United lagði fram nöfn 24 A leikmanna en þeir mega vera 25. Til viðbótar eru nokkur nöfn á B lista leikmanna 21 árs og yngri sem hafa verið hjá félaginu í að minnsta kosti tvö ár. Ekki er ljóst hvers vegna eitt sæti er skilið eftir laust.

Bebe hefur ekki enn leikið með Manchester United þótt varaliðið hafi spilað tvo leiki síðan hann kom. Hann lék á móti með portúgalska U-21 árs landsliðinu gegn því enska á föstudagskvöld. Hann spilaði allan leikinn og átti eitt ágætis færi eftir að hafa hlaupið af sér ensku vörnina. Í fyrri hálfleik spilaði hann einn frammi en var síðan færður út á hægri kant. Í viðtali eftir leikinn sagðist Bebe fyrst og fremst vera kantmaður.

Belgíski varnarmaðurinn Ritchie de Laet komst heldur ekki í Meistaradeildarhópinn.

A hópurinn: Van der Sar, Kuszczak, Neville, Evra, J.Evans, Ferdinand, W.Brown, Smalling, Vidic, O'Shea, Nani, Anderson, Giggs, Park, Carrick, Scholes, Fletcher, Valencia, Gibson, Berbatov, Rooney, Hernandez, Owen, Obertan.

B hópurinn: Macheda, Amos, Fabio, Rafael, Corry Evans, Oliver Gill.

-Zunderman

Athugasemdir »

1

Oskar

5.9.2010 18:34
hmm biddu þarf nokkuð að tilkynna menn sem eru yngri enn 21 ára ??
2

MR Benz

5.9.2010 21:30

Thad ma tha segja ad Bebe se verri en enginn. Hargo er natturulega ekki a listanum thar sem hann er meiddur og nanast buinn ad vera.

3

mmm

6.9.2010 07:36
hagro er drasl

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista