Beint á leiðarkerfi vefsins

Meistaradeildin

26.8.2010

Dregið í riðlakeppni meistaradeildarinnar

Í dag var dregið í riðlakeppni meistaradeildarinnar. Manchester United lenti í C riðli með Spánverjunum í Valencia, skoska liðinu Rangers og tyrkneska félaginu Bursaspor.

 

Drátturinn fór fram í Mónakó kl. 16:00 að íslenskum tíma og var United í fyrsta styrkleikaflokki eins og svo oft áður. Sir Alex Ferguson er líklegast sáttur með að þurfa ekki að ferðast mjög langar vegalengdir í útileikina gegn Valencia og Rangers, en hann hefur margoft talað um kosti þess að sleppa við löng og erfið ferðalög í riðlakeppninni. Hinsvegar er töluvert lengra ferðalag að spila við Bursaspor í Tyrklandi.

 

 

 

Hér að neðan má sjá dráttinn í heild sinni:

A riðill:
Inter Milan
Werder Bremen
Tottenham Hotspur
Twente

B riðill:
Lyon
Benfica
Schalke
H.Tel-Aviv

C riðill:
Manchester United
Valencia
Rangers
Bursaspor

D riðill:
Barcelona
Panathinaikos
Kobenhavn
Rubin Kazan

E riðill:
Bayern Munchen
Roma
Basel
CFR Cluj

F riðill:
Chelsea
Marseille
Spartak Moskva
Zilina

G riðill:
AC Milan
Real Madrid
Ajax
Auxerre

H riðill:
Arsenal
Shakhtar Donetsk
Braga
Partizan

- Daði Már

Athugasemdir »

1

Beckham

26.8.2010 17:38
ágætis riðill sem við lentum í, hefði samt viljað fá riðilinn sem arsenal leti í eða barcelona, afhverju eru barcelona ALLTAF svona heppnir með riða? þeir voru svona heppnir í fyrra líka
2

united

26.8.2010 17:42
auðveldur riðill nema kannski nu þegar valencia eru búnir að tapa villa og silva
3

Oskar

26.8.2010 18:06

Flottur riðill sem við lentum í ! fyndist alveg eðlilegt að við færum taplausir i gegnum hann...held að valencia verði nu ekki mikil fyrirstaða fyrir okkur eftir að þeir misstu Villa og Silva

4

man

26.8.2010 18:07

Manchester United
Valencia

Flott þessi lið fara upp.

5

sheringham

26.8.2010 18:47
Ágætur riðill. Eru menn ekki sammála mér hversu skemmtilegt það er að mæta Rangers?? Finnst persónulega alltaf gaman af þessum "Battle of Britain" leikjum.  Eini gallinn er þetta lið frá Tyrklandi, þurftum að fara líka þangað í fyrra og þó svo að þetta lið sé kannski ekkert sérstakt þá er ferðalagið langt og getur haft sitt að segja, sérstaklega ef að það er útileikur helgina eftir.
6

fan4life

26.8.2010 19:43
draumariðill
7

wert

26.8.2010 22:29
þetta er ágætta riðill en eg held að valencia getur lata okkur erfiðir þó þeir hafa missa david villa og silva en þeir er erþá sterkir og þeir buin að styrka lið sitt mjög mikið i sumar.
8

Rúnar

27.8.2010 00:54
Djöfull líst mér vel á riðilinn
9

Rúnar

27.8.2010 08:42
Ég var alveg viss um að við mundum enda með real í riðli
10

siggi

27.8.2010 13:15
hvenær eru leikirnir spilaðir?

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista