Meistaradeildin
7.4.2010
ManUtd 3 - Bayern 2

United vann leikinn í kvöld 3-2 en samanlögð úrslit eru 4-4 og kemst Bayern áfram á fleiri mörkum á útivelli. Darron Gibson kom United yfir strax á þriðju mínútu leiksins og Nani bætti svo við tveimur mörkum til viðbótar. En þetta dugði United ekki og eru þeir því úr leik í meistaradeildinni.
Wayne Rooney var í byrjunarliði United og kom það mörgum á óvart. Fyrir leik var talið útilokað að hann myndi spila leikinn en bati hans undanfarna tvo daga hefur verið ótrúlegur að sögn Sir Alex Ferguson.
United byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust strax yfir á 3. mínútu með marki frá miðjumanninum Darron Gibson. Einungis þremur mínútum síðar skoraði Nani annað mark United með laglegri hælspyrnu eftir fyrirgjöf frá Valencia á hægri kantinum. United héldu áfram að pressa Þjóðverjana hátt á vellinum og gáfu þeim engan tíma á boltann. Það virtist vera að ganga virkilega vel upp þar sem United stjórnuðu leiknum algjörlega á þessum tímapunkti. Á 41. mínútu skoraði Nani þriðja mark United aftur eftir góðan undirbúning frá Antonio Valencia og virtist allt stefna í að United menn væru að tryggja sér öruggan sigur miðað við gang mála.
Stuttu fyrir leikhlé náðu þó Bayern menn mikilvægu útivallarmarki sem gaf þeim aukinn kraft. Ivica Olic skoraði úr þröngu færi eftir slaka varnarvinnu hjá Michael Carrick sem féll fremur auðveldlega til jarðar í einvígi sínu við króatíska framherjann.
Staðan í hálfleik var því 3-1 United í vil. Í byrjun seinni hálfleiks breyttist hinsvegar leikurinn algjörlega. Hinn ungi bakvörður Rafael da Silva fékk að líta sitt annað gula spjald í leiknum og var þar með rekinn af velli. United menn þurftu því að leika einum færri í rúmar 40 mínútur það sem eftir lifði leiks. Bayern menn nýttu sér það og fóru að pressa meira að marki United. Rooney var tekinn út af í kjölfarið en hann hafði fengið högg á ökklann fyrr í leiknum og gekk sýnilega ekki alveg heill til skógar. Varnarmaðurinn John O‘Shea kom inn á völlinn í hans stað, en þetta var fyrsti leikur O‘Shea síðan í nóvember á síðasta ári.
Bayern Munchen sóttu stíft en United fengu engu að síður nokkur ágæt færi þrátt fyrir að vera manni færri. Á 72. mínútu fengu Þjóðverjarnir hinsvegar hornspyrnu, boltinn barst á Arjen Robben sem tók boltann laglega á lofti og spyrnti honum í fjærhornið, óverjandi fyrir Van der Sar í markinu. Þar með var staðan orðin 3-2 fyrir United, samanlögð úrslit hinsvegar 4-4 og Bayern menn með útivallarregluna sér í hag.
Vonbrigðin leyndu sér ekki í andlitum leikmanna United í leikslok, sérstaklega þar sem spilamennskan var virkilega góð áður en þeir urðu manni færri. En vindar breytast hratt í knattspyrnunni og því ekki hægt að ganga að neinu vísu. Nú verða United menn að einbeita sér að deildinni en þeir sitja þar í 2. sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Chelsea. Fimm umferðir eru eftir og er næsti leikur United gegn Blackburn á útivelli næstkomandi laugardag.
Athugasemdir »
gnusi
Eiríkur
ottoman
Þetta er allt að óásættanlegt, það eru klaufamörkin í báðum viðureignum sem gefa Bayern sigurinn í orrustunni. Einnig klaufaskapur í Rafael sem fram að seinna spjaldinu hafði Ribery gjörsamlega í handjárnum, maðurinn komst ekkert áfram. Carrick má segja að sé skúrkur í fyrra markinu og enginn maður á Robben í því síðara.. Bayern hefur ekkert í Barcelona að gera, lítið í Inter sömuleiðis, en verða vonandi teknir í nefið gegn Lyon. Manu verður nú að einbeita sér að því að klára deildina með stæl og komast yfir Liverpool í titilsöfnun!
Hef fulla trú á því.
Gísli
noddy
Manjú
fp
stefán andri
giggsarinn
noddy
Óli
þetta áti aldrei að vera rautt á Rafael. fyrra spjaldið var klár aukaspyrna á Bayern og í því seinna báðu Bæjarar um spjald sem samkvæmt reglunum má ekki og átti Ribery strangt til tekið að fá spjaldið. ég verð að viðurkenna að Ferguson hefur ekki stillt liðinu vel upp síðustu og ekki notað skiptingarnar sínar rétt en að láta hann fara væri bara bull. Ég meina hann er sigursælasti þjálfari á Englandi.
Og eitt enn djöfull rústaði Valencia Badstuber þá sérstaklega í fyrri hálfleik Badstuber gat ekki neitt og átti að fá rautt í seinni hálfleik þegar hann tæklaði Valencia
Celsea
jæja, ég hef verið að skoða atugunarsemdirnar á fréttunum hér....
Og það er komið nóg með þetta "Freguson á að hætta" Ferguson er einn sigursælasti þjálvari englands, og hva vann úrvaldsdeildina 3 ár í röð og það seinast á seinasta tímabili. þið hljótið að sjá að hann hefur bara ekki átt 7 dagana sæla þarna og eftir 2 eða 3 tapleiki ja jú í í röð þá eigi hann bara að hætta eða vera rekinn er barabull, í alvöru farið að styðja þjálvarann aðeins, hann er nú einn af bestu og virtustu þjálvörum heims og þessir 2 tapleikir í röð, voru þá líka gegn liðum sem eru mjög góð og alveg á styrkleika lista Man Utd....
jafnvel þótt hann geri mistök í 2/3 leikjum í röð þá á hann ekki að hætta, ýmindið ykkur hvar þið væruð hef hann hefði ekki komið.


















Rakel
áttum svo skilið að fara áfram, spiluðum alveg glimrandi vel og djöfull var ég ánægð með Rafael þótt að hann hafi fengið rautt spjald, að hann gjörsamlega ÁT Ribery upp til agna!!!! en ég held að við munum vinna deldina, að þvi að chelsea held ég geri jafntefli við annahvort city eða liverpool:D:D
ein spurning fannst ykkur síðara gula spjaldið á Rafael vera gullt? ég er ekki að reyna að afsaka neitt, en mér fannst það ekki......