Meistaradeildin
6.4.2010
Ferguson: Tek enga áhættu með Rooney

Sir Alex Ferguson sagði mjög ólíklegt að Wayne Rooney myndi taka þátt í leiknum gegn FC Bayern annað kvöld en útilokaði þó ekki alveg að hann yrði á bekknum. Rooney æfði ekki með liðinu í morgun og er mjög hæpið að hann verði klár fyrir morgundaginn.
Ferguson ítrekaði að hann myndi ekki taka neina áhættu með stjörnuframherjann sinn. Götublöðin í Englandi hafa í allan morgun velt því fyrir sér hvernig staðan á Rooney sé og hvort hann spili gegn Bayern. Viðtalið sem Sir Alex veitti í dag breytti svo sem ekki miklu um málið þar sem hann sagði fyrst að það væri útilokað að hann myndi spila en sagði svo smá möguleika á því að Rooney gæti talað sig til og fengið að vera á bekknum.
„Hann á enga möguleika. Við höfum samt náð fínum bata hjá stráknum, læknateymið hefur staðið sig ótrúlega, en ég er ekki tilbúinn að taka áhættu með leikmann sem er ekki 100% heill." sagði Ferguson.
Hann bætti því hinsvegar við að Rooney gæti hugsanlega talað sig til og fengið að vera á bekknum þó það væri ólíklegt.
„Ég held hann verði ekki á bekknum þó hann gæti hugsanlega talað mig í það, þetta er erfið ákvörðun." sagði Ferguson.
Rooney missti af æfingu á Carrington æfingasvæðinu í morgun, en það stöðvaði ekki orðróminn um að hann gæti tekið einhvern þátt í leiknum á morgun. Ferguson myndi án efa vilja nota sinn besta sóknarmann í leik sem þessum þar sem United þarf nauðsynlega á marki að halda í einvíginu gegn Þjóðverjunum.
Sóknarleikur United gegn Chelsea með Berbatov einan í fremstu víglínu var fremur bitlaus og vill Ferguson væntanlega sjá meiri ógn frá sínum mönnum við vítateig andstæðinganna. Það verður því spennandi að sjá hvort að hinn 18 ára Federico Macheda fái tækifærið við hlið Berbatov í framlínunni gegn Bayern á morgun en hann átti ágæta innkomu í leiknum gegn Chelsea.
- Daði Már
Athugasemdir »
poolari
Raunsýnismaður

Eiríkur
foolari..
hahahahahahhahahaha
Jóhann Skúli
giggsarinn
ngog og torres betri? HAHAHAHAHAHA
hver er búinn að skora flest mörk af þessum 3?? hálviti


















gummi