Beint á leiðarkerfi vefsins

Meistaradeildin

10.3.2010

ManUtd 4 - AC Milan 0

Manchester United keyrði yfir AC Milan á Old Trafford í kvöld. Milan átti ekkert svar við leikglöðum Unitedmönnum með Wayne Rooney fremstan í flokki. Rooney skoraði tvö mörk og er kominn með 30 mörk í öllum keppnum.

 

United fór inn í leikinn í góðri stöðu þar sem þeir unnu fyrri leikinn á San Siro 3-2 í lok febrúar og því þurftu Milan menn að skora í það minnsta tvö mörk á United til að komast áfram. En þeir sáu í raun aldrei til sólar. Rooney kom United yfir strax á 13. mínútu og var svo aftur á ferðinni strax í upphafi seinni hálfleiks. Ji-Sung Park og Darren Fletcher skoruðu svo sitt markið hvor áður en yfir lauk.

Ferguson sagði eftir leik að þetta væri tímamótasigur og mikil innspýting fyrir móralinn í hópnum.

Þrátt fyrir glæsilega frammistöðu United liðsins þá fundu einhverjir aðeins til með David Beckham sem kom inn á í seinni hálfleik þegar öll von var úti fyrir AC Milan. En stuðningsmenn United sáu til þess að Beckham fengi hlýjar móttökur og stóð öll stúkan á fætur þegar hann kom inná.

Það er erfitt að ímynda sér að margir höfðu miklar áhyggjur af hnénu á Rooney fyrir leik, það var ekki að sjá á honum að hann hefði verið tæpur fyrir leikinn. Meira að segja Ferguson sjálfur hafði efasemdir um hvort þessi sjóðheiti framherji yrði klár fyrir leikinn og taldi víst að hann myndi láta Berbatov byrja leikinn.

En læknateymi United liðsins vann verk sitt vel, Rooney byrjaði leikinn og var í ótrúlegu formi. Strax á þriðju mínútu leiksins átti hann fast vinstrifótarskot sem fór rétt framhjá markinu. Á 6. mínútu átti hann aðra góða tilraun sem fór rétt yfir markið. Meira að segja Neville spilaði mjög framarlega á vellinum í upphafi leiks í þeirri von um að ná snemmbúnu marki á ítölsku andstæðingana.

Upphafsmínúturnar voru hinsvegar ekki algjörlega eign United, Milan menn áttu sín augnablik. Sagan hefði ef til vill orðið önnur ef Ronaldinho hefði á 8. mínútu náð að stýra skalla sínum örlítið meira til vinstri eftir aukaspyrnu frá Pirlo.

Á hinum enda vallarins hefði meira að segja meistari Beckham verið stoltur af sendingunni sem Gary Neville sendi á kollinn á Wayne Rooney. Hinn hvíti Pele, eins og stuðningsmennirnir kalla gjarnan Rooney, gerði engin mistök og skallaði knöttinn óverjandi í hornið framhjá Abbiati í markinu.

United voru því búnir að ná markinu sem Fergie hafði vonast eftir til að drepa í vonum Milan manna strax í upphafi leiks. Einungis skot frá Andrea Pirlo á 20. mínútu sýndi að Milan liðið væri enn með lífsmarki. United menn voru í bílstjórasætinu eftir þetta og misstu aldrei tökin á leiknum.

Leonardo, knattspyrnustjóri Milan, hefur eflaust vonast eftir marki frá sínum mönnum snemma í seinni hálfleik til að eygja einhverja von um kraftaverka endurkomu. Það var hinsvegar Wayne Rooney sem var aftur á ferðinni á 46. mínútu eftir frábæra fyrirgjöf frá Nani. Portúgalinn geystist upp vinstri kantinn, sendi knöttinn snögglega fyrir markið með utanfótarsendingu sem Rooney sá um að afgreiða snyrtilega framhjá lánlausum Abbiati í markinu sem rétt missti af knettinum í úthlaupinu.

Ji-Sung Park kom svo United í 3-0 eftir sendingu frá reynsluboltanum Paul Scholes. Stuttu eftir það kom Beckham inná í leik sem var svo gott sem búinn og nokkuð ljóst að hann myndi ekki stela fyrirsögnunum í blöðunum daginn eftir. Stuðningsmenn United tóku gríðarlega vel á móti Beckham og var hann einnig hylltur í leikslok.

Beckham sýndi þó góða takta og átti meðal annars gríðarlega fast skot að marki sem Edwin Van der Sar þurfti að slá yfir markið. Hann átti einnig flotta sendingu á Inzaghi undir lok leiks en Ítalinn, sem var meira og minna rangstæður á þeim tíma sem hann var inn á vellinum, klúðraði færinu með því að hitta boltann mjög illa.

United áttu síðasta orðið þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Varamaðurinn Rafael átti þá góða fyrirgjöf á Darren Fletcher á fjærstönginni sem skallaði knöttinn í netið.

Glæsilegur sigur United á AC Milan staðreynd. Samanlagt sigruðu þeir ítalska stórliðið 7-2 í þessum tveimur viðureignum, lokatölur sem bjartsýnustu menn hefðu varla þorað að vonast eftir. Spennandi verður að sjá hverjir verða næstu mótherjar United í 8-liða úrslitum keppninnar en væntanlega verða mörg lið á nálum við tilhugsunina um að mæta United í þessum ham. Sá útdráttur sem mun ákveða hvaða lið mætast í 8-liða úrslitunum og undanúrslitunum keppninnar mun fara fram þann 19. mars næstkomandi.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

Rakel

12.3.2010 09:50

vá hvað þessi leikur var mikil snilld!!! djöfull er ég ánægð með þá, bara keep up the good work:)

get ekki beðið eftir að sjá hvaða liði við mætum í 8 liðaÞögull sem gröfin

2

Kallinn

13.3.2010 11:46
LegendarySvalur

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista