Meistaradeildin
16.2.2010
AC Milan 2 - ManUtd 3

Manchester United tryggði sér gríðarlega mikilvægan 3-2 útisigur gegn AC Milan í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar en þau mætast aftur þann 10. mars á Old Trafford. Það er því ljóst að United mætir þá til leiks með yfirhöndina í einvíginu.
Þeir ítölsku fengu hinsvegar draumabyrjun þegar þeir komust yfir strax á 3. mínútu leiksins eftir að skot frá Ronaldinho hafði viðkomu í Michael Carrick og fór þaðan í netið.
Paul Scholes jafnaði leikinn seint í síðari hálfleik með skrautlegu marki. Scholes hitti ekki knöttinn með hægri fæti en hann fór hinsvegar í vinstri fót Scholes og þaðan í stöngina og inn. Heppnisstimpill yfir markinu en það telur jafn mikið og önnur.
Wayne Rooney kom svo United í tveggja marka forystu með tveimur skallamörkum í síðari hálfleik. AC Milan náði þó að laga stöðuna 5. mínútum fyrir leikslok með glæsilegu marki frá Clarence Seedorf.
Ronaldinho var líflegur strax í upphafi leiks. Einungis eru 5 vikur í að hann gangi í hóp þeirra leikmanna AC Milan sem eru þrítugir eða eldri, en meðalaldur Milan liðsins er nokkuð hár. Undanfarin misseri hefur það verið talið að Ronaldinho, fyrrum besti knattspyrnumaður heims, væri búinn að glata ástríðu sinni og gleði við að spila knattspyrnu.
Það er hæpið að hinn ungi hægri bakvörður United, Rafael da Silva, hafi gleypt við slíkum staðhæfingum fyrir leikinn en hann fékk það verkefni að kljást við landa sinn frá Brasilíu. Þetta var stærsta verkefni sem bakvörðurinn hefur fengið í meistaradeildinni og gekk honum fremur brösulega að ráða við Ronaldinho í upphafi leiks.
Hið margfræga bros Ronaldinho, sem átti að hafa dofnað undanfarin ár, mátti svo sannarlega sjá aftur eftir að hann kom Milan í 1-0 forystu eftir einungis 3. mínútur á klukkunni. Brasilíumaðurinn dansaði samba dans um leið og hann fagnaði markinu skælbrosandi út að eyrum.
Þetta var virkilega slæm byrjun fyrir rauðu djöflana og alls ekki sú sem þeir óskuðu sér. En á meðan Rafael gat afsakað sig með reynsluleysi enda ungur að árum þá var Patrice Evra einnig í vandræðum vinstra megin í vörninni.
Evra hefur verið einn af betri leikmönnum United á tímabilinu og halda margir stuðningsmenn því fram að hann sé besti vinstri bakvörður heims um þessar mundir. En tvítugur sóknarmaður Milan, hinn brasilíski Pato, lét Evra líta illa út á köflum og neyddi Frakkann til að brjóta á sér á þriðju mínútu leiksins.
Upp úr þeirri aukaspyrnu varð fyrsta mark Milan að veruleika. David Beckham kom með góða aukaspyrnu inn á teiginn sem Evra náði ekki að hreinsa nógu vel úr teignum. Boltinn barst til Ronaldinho sem skaut að marki. Knötturinn breytti um stefnu eftir viðkomu í Michael Carrick og setti þar með Van der Sar úr jafnvægi sem var búinn að skutla sér í nærhornið og er eftirleikurinn alkunnur.
Þar með var ljóst að United þyrftu helst að skora gegn Milan til að taka eitthvað með sér í seinni leikinn. Sagan var ekki á bandi United þar sem tölfræði þeirra á San Siro í gegnum tíðina benti ekki til þess að þeir myndu skora.
Rio Ferdinand var að spila sinn fyrsta leik í dágóðan tíma en hann er að klára afplánun á 4 leikja banni í ensku úrvalsdeildinni. Leikform hans var því kannski ekki upp á sitt besta fyrir stórleik sem þennan. Jonny Evans hefur staðið sig með prýði í undanförnum leikjum en stöðugleiki hans beið mikla hnekki þetta kvöld og sást meðal annars til Sir Alex Ferguson hella sér yfir hinn unga Norður-Íra á hliðarlínunni. United þurftu því ekki einungis að einbeita sér að því að koma marki á Milan liðið heldur einnig stöðva þá ítölsku í að skora fleiri.
Varnarleikur United var taugatrekkjandi og hikandi á löngum köflum í leiknum. Milan hefði með réttu átt að nýta sér það en United lifði af pressuna og upp úr þurru tókst þeim að jafna á 37. mínútu. Þar með náði United dýrmætu útivallarmarki en þau geta reynst gulls ígildi í þessari keppni.
Scholes, sem er þekktur fyrir sín þrumuskot, skoraði þetta mikilvæga jöfnunarmark með heldur óvenjulegum hætti. Darren Fletcher tókst að rífa sig lausan frá David Beckham hægra megin á vellinum og sendi fastan lágan bolta fyrir markið. Scholes hitti ekki boltann með hægri fæti en knötturinn fór engu að síður í vinstri fót miðjumannsins, þaðan lak hann í stöngina og inn framhjá Dida í markinu.
En United mönnum var alveg sama þótt heppnisstimpill væri yfir markinu, það telur jafn mikið og hin. Það þarf alltaf ákveðna heppni til að fara alla leið í þessari keppni og United virtust ætla að nýta sér hana til fullnustu þetta kvöld.
Það kom nokkuð á óvart að leikar skyldu standa jafnir 1-1 í leikhléi miðað við spilamennsku United liðsins í fyrri hálfleik. Það voru án efa United sem voru ánægðari með stöðuna þar sem AC Milan hafði ekki nýtt sín tækifæri og var refsað grimmilega fyrir það.
Markið hjá Scholes virtist virka sem vítamínssprauta í lið United sem fékk meira sjálfstraust í seinni hálfleik. Á móti virtust Milan menn þreytast auðveldlega og voru ekki jafn beittir og áður.
Edwin Van der Sar er eldri en elsti leikmaður Milan liðsins en hann sýndi engu að síður að hann er enn í fullu fjöri þegar hann varði glæsilega frá Pirlo og Ronaldinho í seinni hálfleik.
Wayne Rooney sá svo um að refsa Milan fyrir vannýtt tækifæri fyrir framan mark United manna. Miðjumenn United komu Rooney meira inn í spil liðsins í seinni hálfleik og það virtist skila sér í mun ógnandi og beittari sóknarleik. Reynslumiklir varnarmenn Milan réðu illa við sjóðheitan framherjann sem skoraði loks á 66. mínútu með góðum skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Antonio Valencia, en Valencia var nýkominn inn á völlinn fyrir Nani sem hafði ollið vonbrigðum í fyrri hálfleik.
Ferguson hafði sagt fyrir leikinn að Rooney væri á hraðri leið með að flokkast í hópi bestu leikmanna heims með nöfnum á borð við Lionel Messi, Kaka og Cristiano Ronaldo. Rooney stóð svo sannarlega undir þeirri nafnbót.
United jók hraðann og Milan menn virtust agndofa. Hraði og kraftur Wayne Rooney lét vörn ítalska liðsins líta illa út þar sem þeir fundu engin svör til að stöðva enska baráttujaxlinn.
Rooney var aftur á ferðinni á 74. mínútu þegar hann átti frábært hlaup inn í svæðið milla varnarlínu og markmanns og skallaði glæsilega fyrirgjöf Darren Fletcher yfirvegað í netið.
Staðan var því orðin 3-1 fyrir United og það þýddi að Milan menn þyrftu að mæta á Old Trafford og skora 3 mörk til að fara áfram í keppninni.
En ítalska liðið nældi sér þó í líflínu með marki frá Clarence Seedorf á 85. mínútu. Hollendingurinn skoraði af stuttu færi með hælspyrnu eftir góða sendingu frá Ronaldinho. Markið var stórglæsilegt í alla staði en varnarmenn United virtust missa einbeitinguna um stund. Evans reyndi að renna sér fyrir skot Seedorf en var búinn að missa hann of langt frá sér í teignum.
Michael Carrick fékk svo að líta sitt annað gula spjald í uppbótartíma þegar dómarinn taldi hann hafa spyrnt knettinum í burtu eftir að hann hafði flautað aukaspyrnu á United liðið. Carrick var steinhissa á dómaranum og sagði eftir leik að hann hefði einungis rétt potað boltanum í átt að Pato, sóknarmanni AC Milan. Hvað sem því líður þá verður Carrick í banni í seinni leiknum sem fer fram 10. mars á Old Trafford.
United fara engu að síður inn í seinni leikinn með yfirhöndina, 1 marka forskot og 3 útivallarmörk í farteskinu sem gætu reynst mjög dýrmæt þegar uppi er staðið.














Rooney og Giggs
vá hvað var gaman að horfa á seinni hálfleikinn, ég er svo ánægð með þetta, var samt á barmi þess að fá taugaáfall síðustu mínuturnar, þegar að pressan var sem mest hehe:)
en flott hjá þeim og ég trúi ekki öðru en að við vinnum á old trafford,
já ég væri til í að sjá fleiri commenta, þegar að við vinnum það segir enginn neitt,en eins og þegar að við töpuðum á móti Leeds þá voru allir geðveikir... en allvega þá endilega segiði hvað strákarnir eru góðir:D