Meistaradeildin
15.2.2010
Upphitun: AC Milan - Man Utd

Rio Ferdinand er væntanlegur aftur í byrjunarliðið þegar Manchester United mætir AC Milan á San Siro annað kvöld í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar. Hinsvegar verða Nemanja Vidic og Ryan Giggs báðir frá vegna meiðsla. Anderson ferðaðist ekki með liðinu til Ítalíu þar sem hann var ekki valinn í liðshópinn.
Ferdinand hefur ekki mátt spila í deildinni að undanförnu vegna fjögurra leikja leikbanns sem hann var dæmdur í eftir að hafa slegið Craig Fagan í hnakkann í leik Manchester United og Hull City í janúar. Ferdinand hefur afplánað þrjá af þessum fjórum leikjum en bannið gildir ekki í meistaradeildinni og því mun hann taka sér stöðu í hjarta varnarinnar á nýjan leik, annað hvort með Wes Brown eða Jonny Evans sér við hlið.
Nemanja Vidic er meiddur á fæti og Ryan Giggs er handleggsbrotinn og verða þeir því fjarri góðu gamni annað kvöld.
Wayne Rooney á enn eftir að skora í meistaradeildinni á þessari leiktíð en hann hefur hinsvegar verið sjóðheitur í ensku úrvalsdeildinni og bókstaflega raðað inn mörkunum fyrir ensku meistaranna.
En mesta athyglin í þessu einvígi einskorðast þó við David Beckham sem leikur sinn fyrsta leik gegn sínu gamla félagi. Það þykir þó líklegt að Beckham byrji á varamannabekknum annað kvöld en það er nokkuð ljóst að hann mun mjög líklega koma eitthvað við sögu í þessum tveimur viðureignum liðanna.
Beckham var viðstaddur á blaðamannafundi í dag eftir að knattspyrnustjóri Milan hafði beðið hann um að mæta með sér.
„Viðvera hans hér í dag er okkur mikilvæg, ég bað hann persónulega um að mæta." sagði Leonardo, knattspyrnustjóri AC Milan.
„Hann er leikmaður sem kemur fram fyrir hönd félagsins og er hér vegna reynslu sinnar og persónutöfra. Hann er klár strákur, kurteis og magnaður leikmaður."
„Ef þú skoðar ferilskrá hans þá sérðu að hann hefur áorkað öllu á ferli sínum og ekki bara inn á vellinum, líka utan vallar. Hann er sterkur persónuleiki og sannar það á hverjum degi af hverju hann er okkur svona mikilvægur." sagði Leonardo.
Þrátt fyrir þetta mikla hrós þá þykir nokkuð líklegt að þessi 34 ára gamli leikmaður muni byrja á bekknum þegar þessi tvö stórlið mætast.
„Að halda markinu hreinu er alltaf mikilvægt í svona leikjum, en við erum einnig lið sem reynir að skora mörk og að breyta leikstíl okkar gæti reynst erfitt. Þessi þrá okkar að skora mörk er meðfædd, það er okkar kennimark. Það að finna jafnvægi á milli þess að skora mörk og fá ekki á sig mörk verður mjög mikilvægt gegn United." bætti Leonardo við.
David Beckham viðurkenndi að hann ætti i í erfiðleikum með tilfinningar sínar fyrir leik liðanna. Beckham mætir Manchester United í fyrsta skipti síðan hann fór frá félaginu fyrir sjö árum.
„Þetta verður tilfinningaríkur leikur, en sem Manchester United aðdáandi þá verður þetta í fyrsta skipti sem ég vona að þeir tapi." sagði Beckham.
„Sem leikmaður AC Milan vil ég sigra United og að segja það er mjög erfitt fyrir mig þar sem ég er mikill stuðningsmaður liðsins. En ég er leikmaður Milan núna og ég vil að við spilum vel og komumst lengra í keppninni."
Beckham yfirgaf Old Trafford í miklu fjölmiðlafári árið 2003 en staðhæfir þó að hann eigi einungis góðar minningar frá tíma sínum í Manchester. Hann neitaði því að hann ætlaði sér að hefna sín á Ferguson og segist einungis bera góðar tilfinningar í garð knattspyrnustjórans.
„Sir Alex hefur alltaf verið föðurímynd í mínum augum." sagði Beckham.
„Hann hefur alltaf verið það og mun alltaf vera það. Hvað sem sagt hefur verið í fortíðinni, hvort sem það er gott eða slæmt, þá man ég bara eftir góðu tímunum. Hann var maðurinn sem gaf mér tækifæri til að spila fyrir félag sem mig hafði alltaf dreymt um að fá að spila fyrir."
„Fyrir mér voru þetta bara góðir tímar. Sir Alex er virtur út um allan heim í knattspyrnunni. Félög halda áfram og minn tími var kominn til að yfirgefa félagið árið 2003, lífið hélt áfram. Ég hef tvímælalaust ekkert gegn knattspyrnustjóranum, hann er ótrúlegur maður." sagði Beckham að lokum, auðmjúkur í garð Sir Alex Ferguson.
Alexandre Pato mun taka sér stöðu í sóknarlínu Milan liðsins og verður væntanlega með Klaas Jan Huntelaar sér við hlið sem fyllir skarð Marco Borriello sem er meiddur. Ronaldinho verður svo að öllum líkindum líka í byrjunarliðinu og saman mynda þessir leikmenn þriggja manna sóknarlínu Milan liðsins.
Varnarmaðurinn Thiago Silva virðist vera búinn að ná sér af nárameiðslum eftir deildarleik AC Milan gegn Udinese síðastliðin föstudag og verður því við hlið Alessandro Nesta í vörninni.
Liðshópar:
AC Milan: Dida, Nesta, Silva, Gattuso, Abate, Pirlo, Ambrosini, Huntelaar, Ronaldinho, Favalli, Mancini, Pato, Abbiati, Jankulovski, Bonera, Flamini, Beckham, Inzaghi
Manchester United: Van der Sar, Kuszczak, Foster, Neville, Brown, Rafael, Ferdinand, Evans, Evra, Fabio, Park, Nani, Valencia, Carrick, Scholes, Fletcher, Gibson, Rooney, Owen, Berbatov, Diouf.
Lykilmaður: Ronaldinho - þessi brasilíski snillingur er að vakna aftur til lífsins og er alltaf fær um að taka upp á einhverju stórkostlegu.
- Daði Már
Athugasemdir »
Herbalife
Eiríkur
Sindri















andoo