Beint á leiðarkerfi vefsins

Meistaradeildin

17.12.2011

Möguleiki á Meistaradeildinni eftir allt saman?

Opnast hefur fyrir þann möguleika að Manchester United leiki í Meistaradeildinni eftir áramót. Upp komst um svik hjá svissnenska liðinu FC Sion þegar þeir notuðu ólöglegan leikmann á móti Celtic í Evrópudeildinni. Þetta gæti orsakað það að FC Basel muni leika í Evrópukeppninni en United í Meistaradeildinni.

Svissnenska knattspyrnusambandið hefur fengið frest frá Fifa til 13. janúar að taka á þessu máli, en Fifa menn hafa hótað að banna Sviss og liðum þaðan að taka þátt í ýmsum keppnum utan Sviss.

Ef bannið gengur í gegn mun FC Basel missa sæti sitt í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar til Manchester United, en eins og við munum allir slógu Basel menn United liðið út.

Svisslendingarnir drógust gegn Bayern Munich, sem hafa leikið gríðalega vel í Meistaradeildinni á þessu tímabili.

-Bjartur Týr

Athugasemdir »

1

Basel

17.12.2011 17:13
Nei þetta verður ekki að veruleika, ég á frænda í Basel og hann segir að þetta er lame joke til þess að fá man utd supporters til að halda að þeir séu enþá í keppninni, svo fake frétt sorry gays.
2

KG

17.12.2011 17:20

Og það ættum við hreint ekki skilið, svo mikið er víst.  En það eru svo sem miklir aurar í húfi, það er á hreinu.

Ekki þekki ég málið til hlítar en það verður þó alveg að segjast að refsingin er all hörð og bitnar á Basel mönnum sem áttu fyllilega skilið að komast áfram en ekkar menn ekki.

3

KG

17.12.2011 17:23

Sorry gays??

Þú ert ekki alveg meðetta!

4

Mu-16

17.12.2011 18:02

nei þetta er ekki fake frétt,,,það er dáltið siðann að það kom frétt um það að það gæti verið bannað lið frá swiss i evrópukeppninni.

enn eigum það ekki skilið og ekki sanngjarnt gagnvart Basel sem áttu miklu meira skilið að fara áfram

5

Nesinn

17.12.2011 19:47
audvitad eigum vid thad ekki skilid .. en vonum thad samt , en bit harsh ad lata thad bita a basel .
6

Agnar

17.12.2011 19:47
Ertu eitthvað veikur @Basel , þetta er ekkert fake frétt haha. Var í fréttunum rétt áðan.
7

Nesinn

17.12.2011 20:24
@Basel vill bara athygli hann a pottþett ekki einhvern frænda i basel hrædileg leid til thess ad fa athygli .
8

laki

17.12.2011 21:25
Nei við eigjum ekki að fara í meistaradeildina, það er ekki sanngjart,
9

Gummi

17.12.2011 22:38

hættiði að bulla.Ef þetta er rétt þá er það rétt.Verðum að komast að því 13 janúar.

það verður samt öruglega frestað þetta til 15 eða 20 janúar

10

Árni

18.12.2011 00:05
við eigum þetta ekki skilið!! en maður mundi aldrei neita því að fara í meistaradeildinna !! væri virkilega til í þetta, þó það væri ekki nema bara fjárhagslega
11

sheringham

18.12.2011 01:28

Burtséð hvort við eigum það skilið eða ekki þá er þessi möguleiki allt í einu kominn upp.

Ef við fáum inngöngu í keppnina á þessum sorglegu forsendum þá mætum við Bayern Munchen. Ef við vinnum þá er nokkuð ljóst að vera okkar í meistaradeildinni er aftur réttlætileg!

Ekki það að ég sé að trúa því að þetta sé að fara að gerast...

12

Pétur

19.12.2011 01:02
@Basel....heitir frændi þinn kannski Einar?;)
13

12345

19.12.2011 10:50
þetta er rugl

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista