Beint á leiðarkerfi vefsins

Meistaradeildin

15.3.2012

Sir Alex: þetta var arfaslakt

Sir Alex Ferguson var allt annað en sáttur eftir tap sinna manna gegn Athletic Bilbao. Liðið lék skelfilega gegn sterku spænsku liði og átti í rauninni aldrei séns að vinna upp 3-2 tap á Old Trafford. Llorente og Oscar de Marcos sáu um það að United færi heim

15.3.2012

Athletic Bilbao 2 - Man Utd 1

Athletic Bilbao og Manchester United áttust við í kvöld í seinni umferð Evrópukeppninnar. Með 3-2 forystu voru heimamenn með fullt sjálfstraust og spiluðu miklu betri fótbolta en Englandsmeistararnir. Wayne Rooney skoraði mark United manna 10 mínútum fyrir leikslok

14.3.2012

Sterkur hópur til Spánar

Sir Alex Ferguson tekur með sér 20 leikmenn til Spánar þar sem Manchester United liðið þarf að ná upp 3-2 tapi gegn Athletic Bilbao til þess að komast í 8-liða úrslit Evrópukeppninnar. Mesta athygli vekur að Ekvadorinn Antonio Valencia er kominn aftur í hóp eftir meiðsli

10.3.2012

De Gea: Varnarlínan var sofandi

David de Gea var ekki sáttur við varnarlínuna í leiknum gegn Athletic Bilbao. De Gea átti nokkrar heimsklassa vörslur í leiknum og Sir Alex Ferguson sagði eftir leikinn að United geti þakkað Spánverjanum unga fyrir að halda líflínu í vonum United um að komast áfram í 8-liða úrslitin. United þurfa að minnsta kosti að skora tvö mörk í seinni leiknum.

9.3.2012

Carrick: Þriðja markið var furðulegt

Miðjumaðurinn Michael Carrick sagði eftir leikinn gegn Athletic Bilbao að töluverður misskilningur hafi átt sér stað þegar Spánverjarnir skoruðu þriðja markið sitt. Leikmenn United héldu að Spánverjarnir ætluðu að láta þá fá boltann eftir aukaspyrnu sem dómarinn dæmdi á Evra fyrir að vera skólaus. Carrick tók þó fram að frammistaða United hefði ekki verið góð í leiknum.

8.3.2012

Man Utd 2 - Athletic Bilbao 3

Manchester United tók á móti Athletic Bilbao á Old Trafford í kvöld. Leikurinn byrjaði vel fyrir United en Rooney var búinn að koma heimamönnum fljótlega. Eftir það voru Athletic Bilbao menn töluvert betri og skoruðu 3 mörk fram hjá De Gea. Rooney náði síðan að klóra í bakkann úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Skráðu þig á póstlista