Beint á leiðarkerfi vefsins

Meistaradeildin

17.12.2011

Möguleiki á Meistaradeildinni eftir allt saman?

Opnast hefur fyrir þann möguleika að Manchester United leiki í Meistaradeildinni eftir áramót. Upp komst um svik hjá svissnenska liðinu FC Sion þegar þeir notuðu ólöglegan leikmann á móti Celtic í Evrópudeildinni. Þetta gæti orsakað það að FC Basel muni leika í Evrópukeppninni en United í Meistaradeildinni.

16.12.2011

Evrópudeildin: United mætir Ajax

Dregið var í 32- liða úrslit Evrópudeildarinnar í dag. Manchester United dróst gegn hollenska liðinu Ajax sem Kolbeinn Sigþórsson leikur með. Leikirnir munu fara fram þann 16. og 23. febrúar næstkomandi.

8.12.2011

Evra: Þetta er eins og martröð

Patrice Evra, varafyrirliði Manchester United, segir að leikmenn Manchester United verði að taka sig saman í andlitinu og axla sameiginlega ábyrgð á óförunum í Meistaradeildinni. Sjálfum líði honum eins og í martröð sem hann bíði þess að vakna upp úr.

8.12.2011

Keane: United fékk það sem það átti skilið

Roy Keane segir Manchester United ekki hafa staðið sig nógu vel til að komast áfram í Meistaradeildinni. Yngri leikmenn verði að læra af vonbrigðunum í Basel í gærkvöldi. Gary Neville segir slakan varnarleik gegn svissneska liðinu hafa orðið United að falli.

8.12.2011

Ferguson: Við verðum að láta okkur þetta að kenningu verða

Sir Alex Ferguson skorar á leikmenn sína að nota vonbrigðin eftir tapið gegn Basel í Meistaradeildinni í gærkvöldi sem hvatningu til að gera betur framvegi. United dugði jafntefli í leiknum til að komast í 16 liða úrslit keppninnar. Það tókst ekki og því bíður Evrópudeildin eftir áramót.

7.12.2011

Basel 2 - ManUtd 1

Manchester United tóku á móti Basel í Meistaradeildinni í kvöld. Jafntefli hefði dugað United mönnum það var hægara sagt en gert að brjótast í gegn um vörn Basel liðsins. Leikurinn endaði með 2-1 sigri Basel manna en þeir komust í 2-0 áður en Phil Jones minnkaði muninn í 2-1 á lokamínútunum.

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista