Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikmenn

6.9.2010

Bebe í meistaradeildarhópnum eftir allt saman

Fréttir þess efnis um að Bebe hefði ekki verið valinn í meistaradeildarhóp Manhcester United reyndust rangar. UEFA hafa staðfest að Bebe er í liðshópnum sem United tilkynnti eftir allt saman.

 

United skiluðu inn 25 manna liðshópi í meistaradeildinni í síðustu viku þar sem Owen Hargreaves var á meðal leikmanna sem voru skildir útundan. Ferguson ætlar sér greinilega ekki að taka mikla áhættu með Hargreaves enda hefur hann verið að glíma við þrálát hnémeiðsli undanfarin tvö ár og engin veit hvort eða hvenær hann kemur til baka.

Svo virtist sem Bebe hefði einnig verið skilinn útundan og margir fjölmiðlar héldu því fram að Ferguson hefði einungis valið 24 manna hóp í meistaradeildina. Hinsvegar hafa UEFA núna staðfest það að þessi 20 ára gamli leikmaður er á meðal nafnanna sem United tilkynnti í meistaradeildina og verður því löglegur með liðinu í riðlakeppninni sem hefst þann 14. september næstkomandi þegar United leika gegn Rangers á Old Trafford.

Það er þó ekki mjög líklegt að Bebe muni taka þátt í þeim leik. Það verður að teljast mun líklegra að Bebe muni spila sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir United þegar liðið mætir Scunthorpe í Carling Cup bikarnum vikuna eftir leikinn gegn Rangers. Ekkert er þó víst í þeim efnum þar sem Ferguson sagði nýlega að leikmaðurinn yrði að vinna í líkamsformi sínu næstu vikurnar.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

Oskar

6.9.2010 17:20
fyrst hann er i meistaradeildarhópnum þá hlýtur SAF að ætla sér að nota hann eitthvað í vetur ! er orðinn helvíti spenntur að sjá þennan strák
2

Hemmi

6.9.2010 17:53

Eða þá að hann hafi sett hann í hópinn til að fjölmiðlar myndu halda kjafti.

 

 

 

3

Evra3

6.9.2010 17:59
sammala 1
4

Oskar

6.9.2010 19:02
hehe helduru að honum sé ekki alveg nákvæmlega sama hvað fjölmiðlar séu að segja...hann væri ekki að eyða sæti i meistaradeildarhópnum svo einhverjir fjölmiðlar haldi kjafti
5

united

6.9.2010 19:07
sammala 1 og 4 hann var samt ekki godur a moti englandi nema reyndar einn mjög finn sprettur
6

Bud

6.9.2010 19:49
Í U21 leiknum gegn Englandi var allt portúgalska liðið slakt þannig að það er kannski ósanngjarnt að einblína á frammistöðu Bebe í leiknum. Hinsvegar stóð Tom Cleverley sig gríðarlega vel í þeim leik og fékk mikið lof fyrir sína frammistöðu.
7

united

6.9.2010 20:36
ja það er vissulega rett. en ja cleverly lagði upp eina mark leiksins
8

Vinur bebe

7.9.2010 00:06
Einhversstaðar heyrði ég það að lið þyrftu ekki að velja þá sem væru 21árs og yngri í ákveðinn meistaradeildarhóp. Heldur alltaf sé hægt að kalla þá inn vegna aldurs. Leiðréttið mig ef þetta er vitlaust?
9

Friðrik

7.9.2010 00:13
@Vinur Bebe.Það er í 25 manna hópnum sem þarf að velja fyrir ensku úrvalsdeildina, þá þarftu ekki að velja gæja sem eru undir 21. En allavegana þá get ég ekki beðið eftir að sjá hann spila. Ef hann er ömurlegur þá verð ég brjálaður því þessi 7 m pund sem fóru í hann áttu sko að vera hluti af verðinu sem átti að fara til að kaupa Özil.
10

Bud

7.9.2010 16:26
Bebe búinn að skora fyrir U21 landslið Portúgala sem eru að spila við Makedóníu þessa stundina.
11

united

7.9.2010 20:50
ja herdu ég sá seinni halfleikhann er góður dribbler og með gott flair hann heillaði frekar i þessum leik en að sjalfsögðu ekki nálægt þvi að sanna sig sjaum til hvernig hann stendur sig fyrir varalið
12

ari1

8.9.2010 20:59
jaa ef fergie valdi hann þá er það rétt að velja hann .

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista
 

 Manchester United

Stofnað: 1878

Heimvöllur: Old Trafford

Áhorfendur: 76312

Gælunafn:

The Red Devils

Rauðu Djöflarnir

Knattspyrnustjóri: Alex Ferguson

 

Premier League/Division One: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967, 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009, 2011
Runners-up: 1947, 1948, 1949, 1951, 1959, 1964, 1968, 1980, 1988, 1992, 1995, 1998, 2006
FA Cup winners: 1909, 1948, 1963, 1977, 1983, 1985, 1990, 1994, 1996, 1999, 2004
League Cup winners: 1992, 2006
European Cup winners: 1968, 1999, 2008
European Cup-winners Cup winners: 1991