Leikmenn
5.9.2010
Rooney sendur heim?

Fréttirnar hafa ekki enn verið staðfestar en sagt er að Rooney hafi hitt landsliðsþjálfarann Fabio Capello í morgun og sé væntanlegur heim kvöld. Yfirlýsingar er vænst fljótlega.
Sterkar sögusagnir eru um það í Englandi að Wayne Rooney hafi verið sendur heim úr herbúðum enska landsliðsins í Sviss eftir að enskir fjölmiðlar birtu í morgun fréttir um að hann hefði haldið framhjá eiginkonu sinni með vændiskonu.
Sunnudagsblöðin Sunday Mirror og News of the World birtu í morgun frásögn vændiskonu sem sagði Rooney hafa sofið ítrekað hjá sér á meðan Colleen, eiginkona hans var ólétt. Miðað við fréttirnar var Rooney afar einbeittur og samviskulaus í svikum sínum.
Mirror segir Rooney miður sín því hann gerir sér grein fyrir að Colleen fyrirgefi honum þetta ekki. Hjónaband þeirra sé því á enda.
Rooney og Colleen hafa verið saman síðan þau voru 16 ára gömul en þau kynntust í gagnfræðiskóla í Liverpoolborg áður en hann varð heimsþekktur knattspyrnumaður. Þau giftu sig árið 2008 og eignuðust soninn Kai í fyrra. Eftir fæðingu hans hætti Rooney að leita til vændiskonunnar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rooney verður uppvís að því að halda fram hjá Colleen með vændiskonum. Bæði hafa gert upp það tímabil í sjálfsævisögum sínum. Colleen lýsti því sem erfiðum tíma þar sem veröld hennar hefði farið á hvolf. Wayne sagðist sjá eftir því. Þá svaf hann meðal annars hjá 45 ára gamalli ömmu.
Hvorki talsmenn Manchester United, enska knattspyrnusambandsins né Rooney hafa enn tjáð sig opinberlega um málið.
-Zunderman
Athugasemdir »
MR Benz
Dolli
MR Benz
united
Gummi
MR Benz
Manchester United |
|


















ari1