Leikmenn
2.9.2010
Bebe lofaður í bak og fyrir

Bebe fær frábær meðmæli frá fyrrum þjálfara sínum, Jorge Paxaio. Fyrrverandi umboðsmaður leikmannsins hefur að auki hrósað Bebe hástert en hann hefur fengið nokkuð neikvæða umfjöllun götublaðanna á Englandi eftir vistaskiptin til United. Einnig berast fregnir frá því að Bebe hafi hrifið liðsfélaga sína í U21 árs landsliði Portúgala á æfingu með þeim í vikunni.
Bebe hefur fengið á sig þó nokkra gagnrýni upp á síðkastið, þó aðallega vegna kaupverðsins sem hann var keyptur á. Leikmaðurinn ólst upp á götunni sem barn og hefur því stjarna hans risið hratt upp á síðkastið. Sir Alex Ferguson hefur viðurkennt að hafa gert undanþágu varðandi verklagsreglur sínar við kaup á leikmönnum þegar hann frétti af Bebe og hafði hraðar hendur í að tryggja sér leikmanninn, en forráðamenn Real Madrid voru einnig farnir að fylgjast með honum. Kaupverðið á Bebe var ekki gefið upp en er talið vera um £7m punda.
Ensku götublöðin efuðust um hæfileika Bebe þegar hann var ekki valinn í liðshóp United fyrir varaliðsleik í síðustu viku og sögðu að Ferguson hefði hugsanlega keypt köttinn í sekknum. Ferguson hefur síðan þá leiðrétt þann misskilning og sagði að fjarvera Bebe væri einungis vegna þess að leikmaðurinn væri að fylgja sérhæfðri æfingaráætlun til að koma sér í betra líkamlegt form og gagnrýndi á móti óvandaða umfjöllun blaðanna á liðsmanni sínum sem væri rétt að hefja aðlögun sína hjá félaginu.
Stuttu eftir þetta var Bebe valinn í U21 árs landsliðshóp Portúgala í fyrsta skipti og hefur slegið í gegn á æfingum með þeim samkvæmt nýjustu fregnum. Meðal annars hefur hann fengið hrós frá samherjum sínum þar fyrir hæfileika sína og útsjónarsemi. Á sinni fyrstu æfingu með þeim skoraði hann þrennu í æfingaleik, þar af stórglæsilegt mark þegar hann sat á jörðinni með bakið í markið, lyfti boltanum upp með hægri fæti og klippti hann svo viðstöðulaust upp í topphornið. Myndin með þessari frétt er einmitt af því augnabliki.
Jorge Paxaio, fyrrum þjálfari Bebe hjá Estrela, hefur fulla trú á Bebe og gefur lítið fyrir gagnrýnisraddirnar sem hafa verið uppi. Hinsvegar hefur hann smá áhyggjur af andlegum bakgrunni leikmannsins sem ólst upp með ekki neitt á milli handanna en er skyndilega kominn í þá stöðu að hafa aðgang að miklum peningum.
„Manchester United eru að fá ótrúlegan strák. Munið það hinsvegar að þar til hann var 16 ára þá var hann bara að spila með vinum sínum. Hann hefur þróast svakalega hratt. Í fyrsta skipti sem hann mun spila með Manchester United - og ég er viss um að hann muni slá í gegn þar - þá mun fólk taka eftir honum þar sem hann er öðruvísi. Hann er með hæfileika sem ekki margir leikmenn í deildinni búa yfir. Hann er einnig líkamlega sterkur, hann verður eins og Ronaldo hvað það varðar. En þú verður að bíða eftir því að hann verði tilbúinn. Þá meina ég ekki bara knattspyrnulega séð heldur líka andlega. Einn daginn átti hann ekkert og þann næsta á hann allt. Það verður mikið sjokk fyrir hann, jafnvel þó hann hafi ekki áttað sig á því ennþá. Hann var í skýli fyrir heimilislausa á hverjum degi þegar hann æfði með okkur. Hann ferðaðist um með almenningssamgöngum á æfingar. Hann var eins og krakki hvað það varðar." sagði Paxaio.
Bebe er einmitt í Portúgal í augnablikinu og nýtti tækifærið til að heimsækja skýlið sem hann kallaði heimili sitt í átta ár og ákvað að gista þar. Það er greinilegt að leikmaðurinn er ekki búinn að gleyma uppruna sínum og er lýst sem auðmjúkum og góðhjörtuðum dreng. Hann gekk um og þakkaði öllu starfsfólkinu og öðrum á svæðinu fyrir sig og tók í höndina á öllum sagði yfirmaður skýlisins.
Fyrrum umboðsmaður Bebe, Goncalo Reis, hrósar einnig Bebe og telur að leikmaðurinn verði einn daginn betri en landi sinn Nani. Sem stendur er Nani sá leikmaður sem er að hjálpa Bebe hvað mest að venjast aðstæðum hjá United þar sem Bebe talar ekki mikla ensku enn sem komið er.
„Ég þekki gæðin sem Bebe býr yfir og einn daginn mun hann fá tækifæri í aðalliðinu. Það verður ekki auðvelt að komast þangað en honum mun takast það. Hann mun kannski ekki verða jafn góður og Ronaldo en ég held að hann verði betri en Nani. Einhversstaðar þar á milli. En hann mun vera auðmjúkur og tilbúinn til að læra. Hann mun vera eins og lítill strákur innan um Ferguson, hann mun bara bíða eftir skiptunum. Svo einn daginn mun hann springa út á vellinum." sagði Reis.
Spennandi verður að fylgjast með framförunum hjá þessum strák sem hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarið, bæði hjá stuðningsmönnum United og annarra liða. Einungis tíminn mun leiða það í ljós hvort að Ferguson hafi veðjað á réttan hest þegar hann ákvað að fá leikmanninn til félagsins.
- Daði Már
Athugasemdir »
Spjons
Rúnar

united
Grallarinn
Haha, allir að segja að man utd sé með besta ungmennaliðið,
Gulacsi
Darby – Ayala – Wilson – Irwin
Eccleston – Spearing – Shelvey – Amoo
Ngog-Babel
eigið ekki séns i þessa
Oskar
ahahah
baldur
Liverpool er skíta lið... end of story
Ben amos
Rafael Smallings cathcart Fabio
Diouf Gibbson Cleverley Obertan
Macheda Welbeck
Þetta lið myndi pakka þeim saman
sindri
benni
skil ekki alveg þessa liverpool menn og þeirra skoðanir, ef maður lítur yfir liðið þeirra þá á það ekki breik í þetta varalið sem manchester getur teflt fram og að eitthverjum detti í hug að segja að manchester eigi ekki breik er einfaldlega fáfræði og heimska..
LFC4LIFE
hernandez14
United
hvað er þetta... auðvitað mega þeir það einsog einhverjir manu menn kíkja á liverpool spjallið.
þeir poolarar eru kannski að átta sig og spá í að færa sig yfir í alvöru klúbb
united
stafsetning
Minnez
Voruð þið ekki að væla um að SAF hafi gert mistök með það að hann væri að kaupa óþekktan dreng ?
SAF kaupir leikmann, Spilar ílla í EINUM leik og SAF er þá orðinn of gamall og á að hætta og enhvað meir. En þegar hann spilar vel þá gerðist þessi hlutur aldrei í ykkar augum ! Meira andskotans rugl !
Þið áttið ykkur kanski á þessu þegar þið verðið 100 ára eins og allir UTD menn eru óþroska :) *Kaldhæðni* Neinei, bara að þið séuð ekki búnir að átta ykkur á að þessi þjálfari veit ALVEG hvað hann er að gera !
Þegar SAF hættir, vá hvað verður gaman að horfa á vælið hjá ykkur er nýr þjálfari kemur !
u
Minnez
ummæli nr. 19 *
Ekki segja mikið ! Það eiga öll lið eftir að fara á Anfield og koma út með erfið stig, 1, 0 eða 3. UTD á ekki eftir að fara á Anfield og sækja auðveld 3 stig ! Ekki eitt einasta lið ! Lofa því að sértu að lítilækka enhvað lið hvað þá stuðningsmann þess, þú munt fá það í bakið á einn eða annan hátt ! 20 ár frá því að LFC vann ensku deildina seinast ? Það hlýtur að koma að því ! :) CFC maður hér á ferð.... 3 ára maður hefur greinilega meira vit í kollinum en þú ! UTD er með sterkan hóp en ekki nógu sterkan til að fara á Anfield og sæka 3 stig á 5 mínotum ! Ekki eitt einasta lið í deildinni á eftir að gera það !!!
Vá ef LFC vinnur UTD, hvað verður gaman að horfa á vælið í þér/ykkur um mistök sem SAF gerði :'D En aldrei er hrósað andstæðingnum ! (Skil það reyndar ! en ekki með SAF dótið !)
Manchester United |
|


















united