Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikmenn

2.9.2010

Vidic stoltur af fyrirliðabandinu

Nemanja Vidic segist vera gríðarlega stoltur af því að fá að bera fyrirliðabandið undanfarna leiki. Hann hefur verið útnefndur fyrirliði í fjarveru Rio Ferdinand og Gary Neville.

 

Eftir að hafa skrifað undir nýjan fjögurra ára samning í sumar hefur Nemanja Vidic tekið við af Patrice Evra sem varafyrirliði á eftir þeim Rio Ferdinand og Gary Neville. Vidic var meðal annars fyrirliði í leiknum gegn West Ham um síðustu helgi þrátt fyrir að reynsluboltinn Ryan Giggs byrjaði inn á. Þetta er því gríðarleg viðurkenning fyrir Vidic sem hefur svo sannarlega staðið fyrir sínu síðan hann kom til félagsins frá Spartak Moskvu fyrir £7m punda fyrir tæplega fimm árum síðan.

„Þetta er stórt afrek fyrir mig. Enginn mun neita því að vilja vera fyrirliði Manchester United og ég er mjög ánægður með það. Þetta er auðvitað mikil ábyrgð en mér hefur alltaf líkað vel við að bera ábyrgð. Ég er ekki leikmaður sem reyni að forðast það. Ekkert hefur í raun breyst hvað það varðar." sagði Vidic.

Aldur Vidic og reynsla hans hjá félaginu setur hann í hóp með reyndari leikmönnum á Old Trafford. Hinsvegar er ferill hans hjá United ansi stuttur samanborið við þá Giggs, Scholes og Neville sem eru að nálgast tveggja áratuga þjónustu við félagið.

„Við vitum allir að fyrirliðar liðsins eru Gary Neville, Ryan Giggs, Paul Scholes og Rio Ferdinand. Þeir eru allir alvöru leiðtogar. Hinir leikmennirnir fylgjast með hvernig þeir gera hlutina. Þeir þurfa ekki að gera neitt sérstakt, þeir þurfa bara að vera þeir sjálfur til að setja hinum leikmönnunum fordæmi. Þegar þeir eru ekki inn á vellinum þá reyni ég bara að gera mitt besta og nota þá reynslu sem ég hef fengið á mínum árum með Manchester United." sagði Vidic að lokum.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

Alexander

2.9.2010 17:49
Hann á það alveg skilið
2

rara

2.9.2010 20:02
like á þettaHlæjandi
3

united

2.9.2010 20:10
er hann ekki fyrirliði serbíu líka? hann er bara mjög góður kostur
4

ari1

2.9.2010 21:30
yes þessi besti varnamaður orðin firyliði
5

Rúnar

3.9.2010 12:21

Vidic er vel að fyriliðabandinu komin. baráttuandin í honum er rosalegur og hann ætti að vera stoltur í þann tíma sem hann heldur því. hann er einn besti varnarmaður í heimi og ekki skrítið að hann sé sí og æ orðaur við hin toppliðin í heiminum

6

ndia

5.9.2010 08:23
samála alexanderi bara ömurlegt að owen sé farin til LIVERPOOL

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista
 

 Manchester United

Stofnað: 1878

Heimvöllur: Old Trafford

Áhorfendur: 76312

Gælunafn:

The Red Devils

Rauðu Djöflarnir

Knattspyrnustjóri: Alex Ferguson

 

Premier League/Division One: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967, 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009, 2011
Runners-up: 1947, 1948, 1949, 1951, 1959, 1964, 1968, 1980, 1988, 1992, 1995, 1998, 2006
FA Cup winners: 1909, 1948, 1963, 1977, 1983, 1985, 1990, 1994, 1996, 1999, 2004
League Cup winners: 1992, 2006
European Cup winners: 1968, 1999, 2008
European Cup-winners Cup winners: 1991