Leikmenn
1.9.2010
Ferdinand kominn á kreik

Rio Ferdinand mun spila í kvöld með varaliði Manchester United gegn Oldham Athletic. Þessi öflugi varnarmaður er að koma til baka eftir slæm hnémeiðsli sem hann hlaut á æfingu með enska landsliðinu í sumar.
Rio Ferdinand hefur verið frá síðan í júní vegna hnémeiðslanna sem hann hlaut eftir tæklingu frá Emile Heskey í sumar. Talið var að Ferdinand yrði frá keppni fram til loka september en bati hans hefur verið hraðari en búist var við.
Varaliðsleikurinn í kvöld er partur af Manchester Senior Cup keppninni. Wes Brown, Anderson og Federicho Macheda munu einnig taka þátt í leiknum. Ef Rio Ferdinand kemst heill í gegnum leikinn gæti hann hugsanlega snúið aftur í aðalliðið fyrir leikinn gegn Everton á Goodison Park þann 11. september næstkomandi.
- Daði Már
Athugasemdir »
united
sandur
snorri
hvað er langt í að hann meiðist næst..hver á að vera í staðinn?
Evans?
Stórt spurningamerki sá drengur
Kannski Neville reddi miðvarðastöðunni..
Svo er Hargreaves í 25 manna hópnum.. hvað á að bíða lengi eftir honum?
Manchester United |
|


















gler