Leikmenn
31.8.2010
Bebe kallaður í landsliðið

Öskubuskuævintýri Bebe heldur áfram og hefur hann nú verið kallaður í U21 árs landslið Portúgala í fyrsta skipti. Leikmaðurinn segist vera í skýjunum með að fá tækifæri að spila fyrir þjóð sína.
Þessi tvítugi leikmaður var keyptur óvænt frá Vitoria í sumar og viðurkennir að undanfarnir atburðir séu draumi líkastir. Ekki nóg með að hann sé nú hjá Manchester United þá hefur hann einnig verið kallaður í U21 árs landslið Portúgala.
Bebe vonast til þess að spila gegn U21 árs liði Englands næstkomandi föstudag þegar þjóðirnar mætast á Barcelos Cidade Stadium.
„Ég hef upplifað draum. Ég er mjög hamingjusamur. Að spila með U21 árs landsliðinu mun hjálpa til við mína framför. Ef ég mun fá tækifæri gegn Englandi þá verður það ótrúleg upplifun." sagði Bebe himinlifandi.
- Daði Már
Athugasemdir »
SMS
ef mér skjátlast ekki þa´var Van Der Vaart keyptur á 8m ??
og Bebe 7m þó svo það sé að ég held ekki allveg sannað eða vitað ? megið leiðrétta mig ef ég er að segja eh vitleysu.
hefði nu samt sem áður viljað sjá Fergie taka um veskið og borga þessa fjárhæð fyrir Van Der Vaart sem er btw enginn fyrir svona leikmann.
jon
Bebe kostaði ekki 7 milljónir punda.Það er ekkert búið að gefa fram kaupverðið á honum en það var ályktað að það væri 7,4 milljónir punda vegna þess að að það var í samningi hans að ef að boð kæmi upp á 7,4 þá yrði að samþykkja það.líkt og með Manucho sem kom og fór fyrir óuppgefna upphæð
sheringham
united
mmm
MR Benz
fff
ég hélt að menn væru næinlega skinsamir til að fatta að ferguson veit yfirleitt kvað hann er að gera ekki drulla yfir meistarann kanski voru fleiri lið saem ætluðu að kaupa þennan strák
áfram united
uss
sammála mr benz.
þú talar um skynsemi fff.... hvaða skynsemi er í því að kaupa leikmann á yfirprís sem menn hafa ekki einu sinni séð spila fótbolta... það er eins langt frá skynsemi og hægt er að komast!
Kallinn er bara gambler, færir hrossin yfir á leikmannamarkaðinn
fff
ékki finst mér þið neitt rosalega gáfaðir að afskrifa þennann mannn áður en þið sjáið hann spila og talandi um að karlinn sé ruglaður veistu kvað liðið hefur unnið síðan hann tók við
uss
já ég veit það örugglega betur en þú..
lagaðu stafsetninguna
fff
stafsetning er ekki mín sterka hlið enda tjái ég mig ekki um stafsetningu annara takk fyrir ábendinguna en mér finst nó ef fólk getur skilið kvað ég srifa ég vona að þú skiljir þetta
Bebe verður góður sama kvað hann kostaði haltu kjafti og áfram united!
Manchester United |
|


















MR Benz