Leikmenn
24.8.2010
Vidic: Erfitt að sætta sig við jafnteflið

Nemanja Vidic bar fyrirliðabandið í jafnteflisleiknum gegn Fulham um síðustu helgi. Hann segir að það hafi verið mjög erfitt að sætta sig við úrslitin þar sem United glataði gullnu tækifæri til að tryggja sér öll þrjú stigin í leiknum.
Í stað þess að vera jafnir að stigum og Chelsea sem hafa unnið báða leikina sína með markatölunni 12-0, þá eru United nú tveimur stigum á eftir Englandsmeisturunum eftir jafntefli gegn Fulham þar sem Brede Hangeland jafnaði fyrir heimamenn á 89. mínútu.
Vidic var svekktur í leikslok enda fengu United vítaspyrnu stuttu fyrir jöfnunarmark Fulham sem Nani brenndi af.
„Þetta voru slæm úrslit, sérstaklega þar sem við vorum í svo góðri stöðu á lokamínútunum. Það er erfitt að kyngja þessu jafntefli og við erum mjög svekktir með hvað gerðist undir lokin. Við þurfum að bæta okkur í föstum leikatriðum. Við ættum ekki að leyfa þeim að skora tveimur mínútum fyrir leikslok." sagði Vidic, en hann átti að sjá um að dekka Brede Hangeland í hornspyrnunni.
Vidic sér þó ekki ástæðu til að hafa miklar áhyggjur þrátt fyrir þessi mistök. United munu einnig fá aukinn liðsstyrk um næstu helgi þegar Wayne Rooney snýr aftur í liðið eftir að hafa misst af leiknum gegn Fulham vegna magakveisu.
„Við fengum nokkur slæm úrslit í byrjun síðustu leiktíðar þannig að við viljum ekki láta þessi úrslit draga okkur of mikið niður. Það eru nokkrir hlutir sem við þurfum að skoða varðandi jöfnunarmarkið og við verðum að ganga úr skugga um að þetta endurtaki sig ekki. En vonandi mætum við bara tvíefldir til leiks í næstu umferð." sagði Vidic að lokum.
- Daði Már
Manchester United |
|


















Bæta við athugasemd