Leikmenn
29.7.2010
Hernandez og Macheda ekki lánaðir út

Sir Alex Ferguson hefur staðfest að hann ætli ekki að senda þá Javier Hernandez og Federico Macheda á lánssamning á komandi tímabili. Það gefur þó líklega til kynna að Welbeck og Cleverley séu þeim mun líklegri til að yfirgefa félagið tímabundið.
Bæði Hernandez og Macheda voru á skotskónum gegn MLS All-Stars í gærkvöldi og stóðu sig báðir með prýði í leiknum. Til gamans má geta að meðalaldur markaskorara United í þeim leik var einungis 20,5 ár.
„Ég verð að halda Macheda og Hernandez. Fótboltinn sem þeir spila hefur mikinn tilgang. Að spila fyrir félag eins og þetta er ekki bara spurning um hæfileika. Þú þarft eitthvað meira og þeir eru með það. Ég er ánægður með þá." sagði Ferguson.
Hernandez var sneggsti leikmaðurinn á HM í Suður-Afríku í sumar og Ferguson telur að leikstíll hans geti hentað vel með Wayne Rooney í framlínunni.
„Ef við erum að tala um samstarf með Wayne þá held ég að við þurfum að aðlagast aðeins. Þeir eru báðir svipaðar týpur af leikmönnum. Við munum meta Hernandez mjög vel og ganga úr skugga um að við getum komið honum í stöðugt leikform. Það eru enn litlir hlutir sem þarf að laga en það er ekki mikið. Þegar hann venst æfingunum okkar verður hann í lagi." sagði Ferguson að lokum.
- Daði Már
Athugasemdir »
rara
mmm
Dash
Rúnar
Heizi
Jakob G
We have alredy paid for that thing so we might aswell make him run his few miles per season, although I like the way he reads the game I just as much dislike the way he play´s out of it most of the times, big like on game understanding and hope he´ll learn how his team mates play this season :P biatses :P
Gunni Jak úti :P
Manchester United |
|


















mmm