Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikmenn

28.7.2010

Nýjar leikmannareglur gætu skapað vandamál

Nýjar reglur taka gildi næstu leiktíð um stærð leikmannahópa í ensku úrvalsdeildinni. Ferguson gæti neyðst til að skilja stór nöfn fyrir utan hópinn en tilkynna þarf leikmannalistann fyrir 1. september næstkomandi. Owen Hargreaves er í mestri hættu með að vera skilinn útundan.

 

Nýju reglurnar í ensku deildinni leyfa félögum að hafa 25 leikmenn 21 árs eða eldri í liðshópi sínum. Leikmenn undir 21 árs eru undanskildir og ekki taldir með í þessum fjölda. Átta af þessum 25 leikmönnum verða að vera uppaldir á Englandi, sem þýðir að þeir verða að hafa eytt þremur árum skráðir hjá ensku félagi áður en þeir urðu 21 árs.

Samkvæmt þeirri skilgreiningu er hinn meiðslahrjáði Owen Hargreaves flokkaður sem erlendur leikmaður jafnvel þótt hann sé enskur og hafi spilað fyrir enska landsliðið. Eftir að leikmannahópurinn er tilkynntur má ekki breyta honum fyrr en í janúar nema mjög sérstakar aðstæður skapist og þá er hægt að sækja um undanþágu til breytinga.

Ferguson viðurkenndi í vikunni að hann ætti í vandræðum með að ákveða hvort hann ætti að hafa þá Hargreaves og Anderson í 25 manna leikmannahópnum þar sem þeir eru báðir að glíma við meiðsli. Hann ætlar að bíða með að tilkynna hópinn eins lengi og hann getur.

Hér má sjá yfirlit yfir liðshóp Manchester United og hvernig hann skiptist samkvæmt reglunum.

Uppaldir leikmenn á Englandi eldri en 21 árs:
Wes Brown
Michael Carrick
Jonny Evans
Rio Ferdinand
Darren Fletcher
Darron Gibson
Ryan Giggs
Gary Neville
John O'Shea
Michael Owen
Wayne Rooney
Paul Scholes

Samtals: 12 leikmenn

Erlendir leikmenn eldri en 21 árs:
Nemanja Vidic
Edwin Van der Sar
Antonio Valencia
Nani
Tomasz Kuszczak
Ji-Sung Park
Patrice Evra
Mame Biram Diouf
Dimitar Berbatov
Anderson
Owen Hargreaves
Javier Hernandez
Ritchie de Laet

Samtals: 13 leikmenn

Leikmenn yngri en 21 árs:
Fabio Da Silva
Rafael Da Silva
Gabriel Obertan
Chris Smalling
Federico Macheda
Danny Welbeck
Ben Amos
Craig Cathcart
James Chester
Tom Cleverley
Corry Evans
Daniel Drinkwater
Magnus Eikrem
Oliver Gill
Joshua King
Rodrigo Possebon
Cameron Stewart

Samtals: 17 leikmenn

Sem stendur er samanlagður fjöldi erlendra leikmanna United og uppaldra leikmanna á Englandi akkúrat sá fjöldi sem leyfilegur er, eða 25 leikmenn. Því ætti Ferguson ekki að eiga í vandræðum með að leyfa Hargreaves og Anderson að vera með í þeim fjölda nema hann ætli sér að kaupa fleiri leikmenn til liðsins - þá þarf einhver að víkja nema að nýr leikmaður sé undir 21 árs.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

Spjons

28.7.2010 12:45
Benda þessar áhyggjur Sir Alex ekki til þess að hann sé enn á leikmannamarkaðnum.Ég ætla að leifa mér að vona það.Hlæjandi
2

Dash

28.7.2010 13:14
Skil ekki afhverju er ekki buid ad segja upp samningnum vid Hargo, hvad er verid ad pukka upp a hann lengur? Kannski er hann ad spa i ad kaupa einn i vidbot.
3

Guðmundur

28.7.2010 13:16
Ég á nú bágt með að trúa að hann kaupi einhvern, enda held ég að þessi hópur sé nógu sterkur. Sé s.s. ekki fram á að það verði vandamál, held að stærsta vandamálið verði að skrá 25 leikmenn á næsta ári...
4

Pirelli

28.7.2010 13:19
Owen Hargreaves var ekki erlendur leikmaður síðast þegar ég vissi.
5

Magnús

28.7.2010 15:12
Snýst ekki um þjóðerni Pirelli.
6

Guðmundur

28.7.2010 15:18
Hann er ekki "uppalinn" hjá ensku liði.

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista
 

 Manchester United

Stofnað: 1878

Heimvöllur: Old Trafford

Áhorfendur: 76312

Gælunafn:

The Red Devils

Rauðu Djöflarnir

Knattspyrnustjóri: Alex Ferguson

 

Premier League/Division One: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967, 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009, 2011
Runners-up: 1947, 1948, 1949, 1951, 1959, 1964, 1968, 1980, 1988, 1992, 1995, 1998, 2006
FA Cup winners: 1909, 1948, 1963, 1977, 1983, 1985, 1990, 1994, 1996, 1999, 2004
League Cup winners: 1992, 2006
European Cup winners: 1968, 1999, 2008
European Cup-winners Cup winners: 1991