Leikmenn
27.7.2010
Hernandez mættur til æfinga

Javier Hernandez er mættur í æfingaferð United í Bandaríkjunum og mun að öllum líkindum taka þátt í leiknum annað kvöld gegn MLS All-Stars í Houston. Eftir að hafa heimsótt Texas Children spítalann með liðinu í gær þakkaði Ferguson jafnframt útsendarateymi United fyrir að hafa sparað félaginu milljónir með því að finna drenginn áður en HM hófst í sumar.
„Hann kom til okkar í dag (26. júlí) og við verðum að meta hvað hann hefur verið að gera líkamlega undanfarnar vikur, en við myndum vilja sjá hann taka einhvern þátt í leiknum á miðvikudaginn - að hluta til vegna þess að við vitum að stór hluti Houston er mexíkóskur og það væri spennandi fyrir þá að sjá hann spila í borginni. Við viljum einnig reyna að aðlaga hann liðinu eins fljótt og auðið er og það er önnur ástæða fyrir því að láta hann spila strax. En við munum auðvitað spjalla fyrst við hann og sjá hvað hann hefur verið að gera til að halda sér í formi. Það væri ekki viturlegt að tefla honum fram án þess að hann fái neinn undirbúning." sagði Ferguson.
Hernandez skoraði tvívegis fyrir Mexíkó á HM, fyrst gegn Frakklandi og svo Argentínu. Það verður að teljast nokkuð gott miðað við spilatíma og þá staðreynd að stjörnur eins og Messi, Rooney, Kaka og Torres komust ekki á blað í allri keppninni.
Ferguson var mjög létt að ná að klófesta þennan strák fyrir HM og þakkar njósnateymi sínu fyrir að hafa uppgötvað hann tímanlega. Talið er að kaupverðið á Hernandez sé í kringum £7m punda en það hefði án efa hækkað umtalsvert eftir frammistöðuna á HM.
„Ég held að njósnateymið eigi skilið 10 í einkunn fyrir að finna hann fyrir HM og ég held að ef við hefðum farið í samningaviðræður eftir keppnina þá hefði það verið mjög erfitt. Ég tel að fleiri lið hefðu þá verið á eftir honum og við eflaust þurft að borga tvöfalt eða þrefalt meira. Það samband sem við höfum byggt upp við Chivas hefur verið frábært, þeir voru mjög liðlegir við okkur og enginn hjá félaginu sagði orð. Hjá Manchester United þá er í raun ómögulegt að halda svona fréttum frá því að leka í fjölmiðla en Chivas menn voru þöglir og það var frábært fyrir okkur, þeir eiga hrós skilið fyrir fagmennskuna sem þeir sýndu." sagði Ferguson að lokum.
- Daði Már
Athugasemdir »
gunnar
tjelsí
LOL
Lærðu að skrifa áður en þú ferð að tjá þig flónið þitt..
OMG
Dash
Hernandez a aldrei eftir ad geta neitt, akkurat ekki baun. Hann er half-negri eins og Nani, Obertan og Valencia. Allt aumingjar upp til hopa sem aldrei eiga eftir ad geta eitt ne neitt!!!!!!!!
Óskar
Sjugandi hestur
Manjú
united
Ninjólfur
lexa
hvað eru menn að rugla eins dash nani er bara að verða betri og valencia verður bara góður á næsta tímabili og hernandez lofar bara góðu. en væri samt til í að gamli kaupi eina stór stjörnu þá verður allt fullkomið
rombola76

ÉG
ÉG
Sjúgandi hestur. Þú veist það vel nema þú sért algjör þroskheftlingur að Manchester eru ekki með eitthverja fleiri milljarða til að geta keipt eitthverja stjörnuleikmenn eins og ronaldo sneijder xavi messi kaka og tevez. Man Utd eru ekki eins og Real Madrid, Chelsea, og Man Cyti að reyna kaupa eins mikið af stjörnuleikmönnum og hægt er. Man Utd nota þó allavegana leikmenn í fimm ár annað en ríku félögin sem að nota leikmenn í mestalagi 4 ár og kaupa svo nýja.
Manchester United |
|


















mmm