Leikmenn
17.3.2010
Fletcher: Megum ekki vanmeta Liverpool

Darren Fletcher segir að hann og liðsfélagar sínir megi alls ekki vanmeta Liverpool liðið þrátt fyrir dapurt gengi þeirra á þessari leiktíð. United og Liverpool mætast um næstu helgi á Old Tafford en United hafa tapað síðustu þremur viðureignum sínum við liðið frá bítlaborginni og hefur Nemanja Vidic verið rekinn af velli í þeim öllum.
Liverpool hefur átt erfitt uppdráttar á þessu tímabili eftir að hafa náð sínum besta árangri í ensku úrvalsdeildinni í mörg ár á síðasta tímabili þegar þeir enduðu í 2. sæti deildarinnar. Þeir eru hinsvegar úr leik í titilbaráttunni í ár en berjast engu að síður fyrir hinu eftirsótta 4. sæti sem gefur þátttökurétt í meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.
Fletcher varar liðsfélaga sína við að halda að þeir séu að fara að mæta veikburða Liverpool liði þrátt fyrir slakt gengi þeirra undanfarið.
„Það er mjög hættulegt að halda við séum að mæta lélegu Liverpool liði á Old Trafford þar sem þeir eru allt annað en slakt lið." sagði Fletcher.
„Það væru mikil mistök að halda að Liverpool séu ekki ógnandi. Þeir hafa kannski ekki átt jafn gott tímabil eins og búist var við eftir árangur þeirra í fyrra, en þeir eru samt hættulegt lið. Þeir eru nokkurn veginn með sama leikmannahóp ennþá."
„Við vitum vel hversu megnugir þeir geta verið þar sem þeir unnu okkur hér í fyrra og á Anfield fyrr á þessari leiktíð. Þessir ósigrar eru enn ferskir í minnum okkar. Liverpool hafa enn til mikils að vinna þar sem þeir berjast um fjórða sætið. Þeir geta unnið hvern sem er á góðum degi. Við verðum að læra af mistökum okkar frá því í fyrra, viðvörunarmerkin eru til staðar. Ef þú ert ekki með 100% einbeitingu og gerir mistök þá munu þeir refsa þér fyrir það. Það kemur mér svolítið á óvart að þeir skulu ekki vera með okkur í titilbaráttunni. En þeir verða engu að síður tilbúnir í leikinn á Old Trafford og vilja sigra." sagði Fletcher að lokum.
Ef liðin í kringum Liverpool í töflunni vinna þá leiki sem þau eiga inni eins og staðan er í dag, þá mun Liverpool færast niður í sjöunda sæti deildarinnar, 5 stigum á eftir City og 4 stigum á eftir Tottenham og Aston Villa. Þeir leggja því væntanlega allt í sölurnar til að tryggja sér öll þrjú stigin á Old Trafford þar sem þeir þurfa sárlega á þeim að halda í baráttunni um meistaradeildarsætið. Sama má segja um United sem eru í harðri baráttu við Chelsea og Arsenal um Englandsmeistaratitilinn. Það er því von á miklum baráttuleik eins og venjan er þegar þessir erkifjendur mætast.
- Daði Már
Athugasemdir »
Red Devil
fyrsti united maður sem skorar (vonandi) má hlaupa að einni ákveðinni myndatökuvél
og þurrka viðbjóðslega slefið eftir Gerrard.
ottoman
Rakel

Mills
Mills
Mills
omarino
Það má nú segja að tími sé til komin að vinna þessa Púnga !
Og vonum að það verði svo !
GÍSLI
Manchester United |
|














magnum 44