Leikmenn
16.3.2010
Carrick: Berbatov frábær undanfarnar vikur

Michael Carrick hrósaði liðsfélaga sínum Dimitar Berbatov í hástert í nýlegu viðtali sem hann veitti á dögunum. Carrick segir að Berbatov hafi verið frábær undanfarnar vikur, sérstaklega gegn Fulham um nýliðna helgi og segir að Búlgarinn sé að toppa á réttum tíma.
Í 3-0 sigurleiknum gegn Fulham um síðastliðna helgi átti Berbatov óbeinan þátt í fyrsta markinu, lagði upp annað markið á Rooney og skoraði svo sjálfur þriðja markið.
Berbatov þótti einnig standa sig mjög vel í baráttusigrinum á Molineux vellinum gegn Wolves helgina þar áður, en eftir þann leik fékk framherjinn einnig lof frá knattspyrnustjóra sínum Sir Alex Ferguson.
„Berba var frábær gegn Fulham. Hann hefur verið framúrskarandi undanfarnar vikur." sagði Carrick.
„Gegn Wolves stóð hann sig einnig vel þar sem hann lék einn upp á toppnum. Á sunnudaginn átti hann svo sannarlega skilið að skora eftir alla sína viðleitni og erfiði undanfarna leiki. Berbatov gerði frábærlega í seinna marki Rooney og í heildina var frammistaða hans mjög góð. Hann er að toppa á réttum tíma." sagði Carrick.
United endurheimti toppsætið um helgina en hafa þó leikið einum leik meira en Chelsea menn. Allt útlit er fyrir æsispennandi toppbaráttu allt til loka þar sem þrjú stórlið berjast um titilinn, United, Chelsea og Arsenal. Bæði Chelsea og Arsenal unnu sína leiki áður en United mætti Fulham á sunnudeginum en Carrick sagði það ekki hafa truflað leikmenn United.
„Þetta er mjög jafnt á toppnum og mun eflaust ráðast í blálokin. Við verðum að vinna eins marga leiki og við mögulega getum."
„Sigur Chelsea og Arsenal á laugardeginum truflaði okkur ekki mikið fyrir okkar leik daginn eftir. Það er auðvitað ánægjulegt að vita af því fyrir leik ef andstæðingurinn hefur misst af stigum en þegar leikurinn sjálfur hefst þá ertu ekki að hugsa um það. Þú ferð inn í leikinn með fulla einbeitingu á leiknum sjálfum."
„Ef þú setur of mikla pressu á sjálfan þig muntu gera mistök. Við verðum bara að trúa á okkur sjálfa og trúa á okkur sem liðsheild þar sem liðið er að spila mjög vel um þessar mundir. Við erum að skora fullt af mörkum og vonandi heldur það áfram." sagði Carrick.
Wayne Rooney er langmarkahæsti leikmaður liðsins með 32 mörk í öllum keppnum, þar af 25 í deildinni. Carrick vonar að þessi markasúpa hjá Rooney muni ekki taka enda fyrr en í lok júlí þegar HM klárast, en Carrick og Rooney eru einnig liðsfélagar í enska landsliðinu.
„Hvenær mun þetta enda hjá Rooney? Vonandi ekki fyrr en í lok júlí. En það er langur vegur framundan, markaskorun hans á þessu tímabili er engu að síður ótrúleg. Ég er viss um að hann mun halda áfram á þessari braut. Hvort sem hann mun halda áfram að skora mörk eða búa þau til fyrir aðra skiptir ekki öllu. Hann mun segja þér það sjálfur að það skipti hann ekki máli þar sem hann vill bara að liðið vinni titla. En þetta er gaman fyrir hann." sagði Carrick að lokum.
Berbatov hefur sjálfur skorað 10 mörk í deildinni en segist einnig vera ánægður með að búa til færi fyrir Rooney til að klára. Hann vonast til þess að hjálpa Rooney að skora yfir 40 mörk á þessari leiktíð.
„Ef við sigrum þá skiptir ekki máli hver skorar svo lengi sem við endum uppi sem meistarar í maí. Ég reyni alltaf að búa til færi. Í allri hreinskilni þá fannst mér ánægjulegra að leggja upp seinna markið fyrir Wayne gegn Fulham heldur en að skora sjálfur það þriðja. Stundum er betra að leggja upp mark heldur en að skora sjálfur." sagði Berbatov hógvær.
„Wayne getur vel farið yfir 40 marka múrinn á þessari leiktíð, það er nóg af leikjum eftir. Ég óska honum góðs gengis og við munum allir reyna að hjálpa honum að komast í þann fjölda. Svo lengi sem hann helst heill getur hann náð öllum þeim markmiðum sem hann setur sér." sagði Berbatov að lokum.
- Daði Már
Athugasemdir »
giggs
Manchester United |
|














Gummi A H