Leikmenn
15.3.2010
Slúðurfréttir: Rodwell og Angel Di Maria orðaðir við United

Manchester United eru ávallt orðaðir við fjölda leikmanna ár hvert. David Gill hefur ítrekað að Ferguson hafi enn til umráða metféð sem fékkst fyrir Cristiano Ronaldo kjósi hann að styrkja lið sitt í sumar. Nú er einungis um tveir og hálfur mánuður þar til félagsskiptaglugginn opnar aftur og ekki úr vegi að kíkja á nýjasta slúðrið sem er í pressunni þessa dagana.
Sir Alex Ferguson er sagður vera nær því að fá hinn gríðarlega efnilega varnar-og miðjumann Everton, Jack Rodwell, til liðs við sig. Rodwell er sagður kosta um £20 milljónir punda. Ferguson hefur einnig áhuga á öðru ungstirni hjá Everton, Dan Gosling, sem getur spilað á miðjunni og í hægri bakverði.
Ferguson gekk frá kaupum á Chris Smalling, ungum varnarmanni Fulham, í janúar og gengur hann til liðs við United í sumar. Fergie er sagður vilja afhjúpa Chris Smalling, Jack Rodwell og Dan Gosling alla á sama tíma og kynna þar með nýja kynslóð leikmanna sem eiga að taka við af gömlu kynslóðinni.
Ferguson er þó sagður hafa Jack Rodwell í forgangi. Moyes á að vera tregur til að selja Rodwell en mun nota peninginn sem fæst fyrir strákinn til að fjármagna kaup á Stephen Ireland, miðjumanni Man City.
(Heimild: News of the World)
Manchester United eru sagðir þurfa að berjast við Chelsea og Barcelona um kantmanninn Angel Di Maria sem spilar með Benfica í Portúgal. Spænska blaðið Del Mundo Deportivo heldur því fram að Barcelona sjái Di Maria sem ódýrari valkost heldur en Frakkann Franck Ribery sem er verðlagður talsvert hærra en Argentínumaðurinn. Di Maria er með klásúlu í samningi sínum sem gerir honum kleyft að fara ef í hann berst tilboð upp á £45 milljónir punda, en Benfica eru þó sagðir tilbúnir til að sætta sig við helming þeirrar upphæðar. Ferguson sér leikmanninn fyrir sér sem langtíma arftaka Ryan Giggs á vinstri kantinum.
(Heimild: IM Scouting)
Ferguson hefur opnað möguleikann fyrir Cristiano Ronaldo að snúa aftur til félagsins seinna meir í nýlegu viðtali. Ferguson hefur verið í reglulegu sambandi við leikmanninn síðan hann fór til Real Madrid síðastliðið sumar fyrir metfé. Fergie sagði að Real Madrid væri ekki klúbbur sem væri auðvelt að spila fyrir þar sem félaginu fylgdi fjölmiðlasirkus hvert fótmál og leikmenn félagsins fengju lítið næði. Hann sæi Ronaldo ekki fyrir sér spila þar út ferilinn, hann væri leikmaður sem vildi alltaf takast á við nýjar áskoranir og sagði ennfremur að hann og Ronaldo næðu vel saman. Ferguson hélt því einnig fram að United hefði vel getað hafnað tilboði Real Madrid í leikmanninn en þar sem Ronaldo vildi sjálfur fara var ákveðið að taka tilboðinu enda mikið fé í boði.
(Heimild: Sunday Express)
Ferguson mun fá Joe Cole til félagsins án greiðslu í sumar en samningur leikmannsins rennur út í júní næstkomandi. Joe Cole hefur einungis verið boðin eins árs framlenging á núverandi samningi sínum hjá Chelsea ásamt £36 þúsund pundum á viku í laun. Þetta á Cole að vera óánægður með þar sem aðrir leikmenn félagsins eru á margfalt hærri launum. Það spilar einnig inn í að Cole hefur fengið fá tækifæri í byrjunarliðinu undir stjórn Carlo Ancelotti. Chelsea menn eru sagðir ætla sér að kaupa Landon Donovan, leikmann LA Galaxy, á £10 milljónir punda til að fylla upp í stöðu Joe Cole hjá félaginu.
(Heimild: People.co.uk)
Florentino Lopez, forseti Real Madrid, er sagður hafa gert Wayne Rooney að næsta skotmarki sínu. Real Madrid eyddu £250 milljónum punda síðastliðið sumar í leikmannakaup og eru sagðir tilbúnir að bjóða allt að £100 milljónir punda í enska framherjann. Þessar fregnir fóru snögglega af stað eftir að stjörnulið Real Madrid var slegið úr keppni í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar í síðustu viku.
Rooney á tvö ár eftir af samningi sínum hjá United og eru forráðamenn félagsins að vinna í því að bjóða leikmanninum nýjan 5 ára samning. Sjálfur hefur Rooney sagt að hugur hans sé hjá Manchester United og verður að teljast fremur ólíklegt að hann sé viljugur að skipta yfir til Spánar líkt og Ronaldo gerði, en æskudraumur Ronaldo var ávallt að spila með spænska liðinu.
(Heimild: BBC Radio Five)
- Daði Már
Athugasemdir »
Ívar Sindri Karvelsson
Hargo
stefán
Gummi A H

Jón Rúnar
eiríkur
sindri
Manchester United |
|














jabulani