Leikmenn
12.3.2010
Joe Cole til United í sumar?

Öll stærstu liðin á Englandi eru nú orðuð við miðvallarleikmann Chelsea, Joe Cole. Leikmaðurinn verður samningslaus í sumar og lítið gengur í viðræðum milli hans og Chelsea en Lundúnarliðið vill lækka núverandi laun Cole um 40%. Sir Alex Ferguson er sagður hafa verið aðdáandi leikmannsins um árabil og fylgist grannt með gangi mála í þeirri von um að krækja í leikmanninn án greiðslu í sumar.
Cole hefur aðeins verið boðin eins árs framlenging á núverandi samningi sínum hjá Chelsea með 40% launalækkun samkvæmt heimildum Daily Star. Þetta á að hafa farið illa í leikmanninn sem og fá tækifæri í byrjunarliðinu á þessari leiktíð.
Manchester United, Liverpool, Manchester City, Arsenal og Tottenham eru öll sögð vera í viðbragðsstöðu og fylgjast vel með samningamálum leikmannsins, en Manchester United er talinn vera líklegasti áfangastaður hans af þessum liðum.
Cole hefur lítið spilað fyrir Chelsea undanfarin misseri. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum og hann hefur fengið fá tækifæri í aðalliðinu þegar hann hefur verið heill.
Ferguson er sagður hrifinn af leikstíl Cole og vill bæta miðjumönnum í liðshópinn hjá sér þar sem styttist í að Ryan Giggs og Paul Scholes leggi takkaskóna á hilluna.
Joe Cole er 28 ára gamall og getur spilað á miðri miðjunni og út á vængnum. Cole gekk í raðir Chelsea árið 2003 frá West Ham og hefur spilað 299 úrvalsdeildarleiki með báðum félögum og skorað í þeim 36 mörk.
- Daði Már
Athugasemdir »
Elvar
palli
Ívar Sindri Karvelsson
Persónulega væri ég mjög mikið til í að fá hann til liðs við United í sumar, ég tel hann vera metnaðarafullan leikmann bæði utanvalar og líka innan valar. En hvað með Titus bramble, hann er leikmaður sem ég hef alltaf verið svolítið hrifinn af, hvað finnst ykkur um hann? Myndi hann ekki fitta vel inn í þetta United lið fyrst við erum með Valencia og Nani á köntunum. Myndum fá hann á svona 11 milljónir punda.
United till I die! 4 life
Ívar Sindri Karvelsson
Hérna er dæmi um hvað þessi leikmaður getur. Hann spilar í vörn og miðjunni sko.
palli
Titus Bramble?
Er ekki allt i lagi hja þér?
Hargo
Ívar, það þýðir ekkert að pósta bara eina góða videoinu af Bramble á netinu.
Manchester United |
|


















Bjarki Jóns