Leikmenn
9.3.2010
Rooney æfði í morgun

Wayne Rooney tók fullan þátt í æfingu Manchester United í morgun. Það bendir sterklega til þess að hann verði leikfær þegar United tekur á móti AC Mílan í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld. Hann hefur að undanförnu glímt við hnémeiðsli og missti af seinasta leik liðsins vegna þeirra.
Michael Carrick missir af leiknum á morgun en hann verður í leikbanni. Mame Biriam Diouf gat ekki æft af fullum krafti en hann glímir við smávægileg meiðsli. Ryan Giggs æfði í morgun en hann skokkaði aðeins og er ekki leikfær enn.
Hópurinn sem æfði í morgun: Van der Sar, Kuszczak; Ferdinand, Vidic, Evans, Rafael, Evra, Neville, De Laet; Park, Scholes, Carrick, Obertan, Gibson, Valencia, Nani, Fletcher; Rooney, Berbatov, Diouf.
-Zunderman
Manchester United |
|














sindri