Leikmenn
8.3.2010
Rooney tæpur fyrir leikinn gegn Mílan: Brown frá út tímabilið?

Óvíst er hvort Wayne Rooney verði með Manchester United gegn AC Mílan í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudagskvöld en hann missti af leiknum gegn Wolves um helgina. Dimitar Berbatov virðist á móti í stöðugri framför. Wes Brown kann að vera frá út leiktíðina vegna ristarbrots.
„Það er því miður hæpið að Rooney verði með gegn Mílan. Þetta er tóm óheppni. Wembley-völlurinn gerði út af við hann,“ sagði Sir Alex Ferguson eftir 0-1 sigur United á Úlfunum á laugardag.
Rooney var upphaflega hvíldur fyrir úrslitaleik deildarbikarsins gegn Aston Villa á Wembley. Hann kom inn á eftir að Michael Owen meiddist og skoraði sigurmarkið. Hann lék síðan aftur á Wembely í vináttulandsleik Englendinga gegn Egyptum í vikunni, nokkuð sem Sir Alex sagði síðar að Rooney hefði ekki átt að gera.
Ferguson var á móti ánægður með framlag Dimitars Berbatovs á laugardag. „Hann stóð sig vel og byrjar líklega frammi á miðvikudag.“
Meiðslalisti United lengist stöðugt. Wes Brown fór út af í hálfleik um helgina. Samkvæmt fyrstu fréttum var hann meiddur á hné en ensku blöðin segja í dag að hann hafi ristarbrotnað og verði frá næstu þrjá mánuðina. Það hefur ekki verið staðfest af United.
Ryan Giggs er meiddur á hendi, Johnny Evans hefur strítt við hnémeiðsli og að auki eru Anderson og John O‘Shea frá út leiktíðina
Á móti styttist í Owen Hargreaves og Kiko Macheda. Sá fyrrnefndi á að spila með varaliðinu á fimmtudag og sá síðarnefndi er mættur til æfinga. „Það er mikilvægt að fá Macheda aftur því hann getur skorað og okkur vantar slíkan mann því Michael Owen er frá út leiktíðina.“
-Zunderman
Athugasemdir »
Hargo
Jon
Manchester United |
|














Sindri